Morgunblaðið - 25.10.2011, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 25.10.2011, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2011 Vökudeild 23D, nýburagjörgæslu Barnaspítala Hringsins, bárust síðsumars gjafir frá hjónunum Magneu Þóreyju Hilmarsdóttur og Finni Bjarka Tryggvasyni og börnum. Þau eignuðust í janúar 2011 tvíburabræðurna Bjarka Leó og Bjart Elí sem dvöldu á deild- inni fram undir lok maí. Magnea og Finnur giftu sig í sumar eftir margra ára búskap og óskuðu eftir því við brúðkaups- gesti sem vildu færa þeim gjafir að leggja frekar fé í söfnun til styrktar vökudeildinni. Þar safn- aðist svo vel að þau gátu fært deildinni 12 stóla og kerru með lúxusstól. Á myndinni eru Magn- ea, Finnur og tvíburarnir Bjarki Leó og Bjartur Elí ásamt stóra bróður Hilmari Tryggva í stól- unum góðu. Stóra systir, Andra Ósk, komst ekki með í heimsókn til vökudeildar. Þakka með gjöfum Þjóðarspegillinn XII, félagsvís- indaráðstefna Háskóla Íslands, verður haldin í Gimli, Háskólatorgi, Lögbergi og Odda föstudaginn 28. október frá klukkan 09:00 til 17:00. Um 144 fyrirlestrar verða fluttir í 39 málstofum þar sem meðal ann- ars er fjallað um stöðu og réttindi fatlaðs fólks, kynjað atvinnulíf og kynhlutverk, fjölmenningu og inn- flytjendamál, hrunið og lífsgæði. Í tengslum við ráðstefnuna verður veggspjaldasýning í Gimli og Há- skólatorgi þar sem fjölmargir fræðimenn, meistara- og dokt- orsnemar kynna rannsóknir sínar. Ráðstefnan er öllum opin og að- gangur er ókeypis. Nánari upplýs- ingar um dagskrá og málstofu- skipan er að finna www. hi.is. 144 fyrirlestrar í Þjóðarspegli XII Ráðstefna og málstofa verður á sveitahótelinu Smyrlabjörgum í Suðursveit 26.-27. október. Þar verður rætt um það m.a. hvernig staðbundin matvælafram- leiðsla getur stuðlað að sjálfbærni í ferðaþjónustu. Ráðstefnan hefst miðvikudaginn 26. október kl. 9:30 með fyrir- lestrum. Fimmtudaginn 27. október verður haldin málstofa þar sem mál verða rædd í rýnihópum. Þátttaka er ókeypis og skráning er á www.nmi.is. Staðbundinn matur Ákveðið hefur verið að stofna Hollvinasamtök líknardeilda Landspítalans á Landakoti og í Kópavogi. Stofn- fundurinn verð- ur haldinn í safn- aðarheimili Neskirkju kl. 20 miðvikudaginn 26. október. Óli Þ. Guðbjartsson, fyrr- verandi alþingismaður og skóla- stjóri, er upphafsmaður þess að stofna samtökin. Eins og fram hefur komið í frétt- um hyggst Landspítalinn leggja niður líknardeildina á Landakoti vegna niðurskurðar framlaga til spítalans í fjárlögum. Hollvinasamtök líknardeilda stofnuð STUTT Una Sighvatsdóttir una@mbl.is Viðbrögð alþingismanna og afskipti utanaðkomandi afla af ráðningu í Páls Magnússonar sem forstjóra Bankasýslu ríkisins eru megin- ástæða þess að stjórn Bankasýsl- unnar er ekki lengur sætt. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá þeim Þorsteini Þorsteinssyni, Sonju Maríu Hreiðarsdóttur og Steinunni Þórðardóttur sem óskuðu eftir því með bréfi til fjármálaráðherra í gær að vera leyst frá störfum úr stjórn Bankasýslu ríkisins. Þau segja að umræðan sem spannst á opinberum vettvangi eftir ráðningu Páls Magnússonar hafi orðið til þess að vega að trúverðug- leika Bankasýslunnar og rofið frið- inn um starfsemi hennar. „Viðbrögð alþingismanna benda til þess að erf- itt verði fyrir stofnunina að starfa með eðlilegum hætti að þeim mik- ilvægu og vandasömu verkefnum sem henni er ætlað að sinna og fram- undan eru,“ segir í yfirlýsingunni. „Rugl“ og „hneyksli“ Hart hefur verið deilt um hæfi Páls Magnússonar, sem ráðinn var forstjóri Bankasýslu ríkisins úr hópi níu umsækjenda, en þar af voru fjór- ir taldir hæfir. Ráðningin var harð- lega gagnrýnd á Alþingi. M.a. kallaði Helgi Hjörvar, for- maður efnahags- og viðskiptanefnd- ar, ráðninguna hneyksli og Björn Valur Gíslason, þingmaður Vg og varaformaður fjárlaganefndar, sagði hana rugl. Í kjölfar gagnrýninnar óskaði Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra eftir skýringum á ráðningarferlinu og fékk þau svör frá stjórn Bankasýslunnar að enginn vafi léki á því að Páll hefði verið hæf- astur. Í yfirlýsingu sinni í gær ítrekar stjórn Bankasýslunnar að sú ákvörð- un að bjóða Páli starf forstjóra hafi verið „byggð á hlutlægum og mál- efnalegum sjónarmiðum þar sem eiginleikar og hæfileikar Páls til að sinna starfinu lágu til grundvallar.“ Allir sem að ferlinu komu hafi verið sammála um að Páll væri hæfastur. Meðal þess sem gagnrýnt hefur ver- ið er að Páll Magnússon hafi hvorki menntun né reynslu af fjármála- mörkuðum. Hann er menntaður guð- fræðingur og með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu. Þá hefur pólitískur bakgrunnur Páls verið gagnrýndur, en hann hef- ur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn og var m.a. aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur viðskiptaráðherra þegar bankarnir voru einkavæddir. Miklu skiptir að friður ríki Stjórn Bankasýslunnar segist ekki líta svo á að ákvarðanir hennar séu hafnar yfir gagnrýni en umræð- an undanfarna daga vegi að trúverð- ugleika stofnunarinnar. „Það er að mati stjórnarinnar grundvallarat- riði, eigi hún áfram að geta sinnt hlutverki sínu með trúverðugum hætti, að hún njóti óskoraðs trausts og geti starfað sjálfstætt eins og lög um Bankasýslu ríkisins gera ráð fyr- ir,“ segir í yfirlýsingunni. „Það er niðurstaða stjórnarinnar að afskipti utanaðkomandi afla geri henni ókleift að starfa áfram á þeim faglega grundvelli sem stjórnin telur nauðsynlegan. Bankasýsla ríkisins mun á næstu mánuðum þurfa að taka mikilvægar ákvarðanir er snúa að íslensku fjármálakerfi. Miklu skiptir að sæmilegur friður ríki um starfsemi stofnunarinnar og þær ákvarðanir sem hún mun taka.“ Stjórnin hættir vegna afskipta  Viðbrögð alþingismanna geri stofnuninni erfitt að starfa Bankarnir Bankasýslu ríkisins er m.a. ætlað að tryggja gagnsæi í ákvarðanatöku í fjármálastarfsemi ríkisins. Bankasýsla ríkisins » Stofnunin hefur verið starf- andi í eitt ár, frá október 2010. Henni er ætlað að fara með eignarhlut ríkisins í fjármála- fyrirtækjum. » Stjórn Bankasýslunnar heyr- ir undir fjármálaráðherra en á að starfa sjálfstætt. » Þeir fjórir umsækjendur sem töldust hæfir voru, auk Páls, Karl Finnbogason hag- fræðingur, Kolbrún Jónsdóttir viðskiptafræðingur og Ólafur Örn Ingólfsson hagfræðingur. „Mér þykir mið- ur að þau skuli telja sig þurfa að grípa til þessa ráðs, segir Stein- grímur J. Sigfús- son fjár- málaráðherra um afsögn stjórnar Banka- sýslu ríkisins í kjölfar umdeildr- ar ráðningar Páls Magnússonar í starf forstjóra hennar. Steingrímur segir að ekki sé ann- að í stöðunni en að una niðurstöðu stjórnarinnar og vinna úr þeirri stöðu sem upp sé komin með því að skipa Bankasýslunni nýja stjórn, eins og beri lögum samkvæmt. Reynt verði að leysa málin þannig að þau valdi sem minnstri truflun á starfsemi stofnunarinnar. Mikilvægt að ró sé um starf- semi af þessu tagi Stjórn Bankasýslunnar vísar til þess að utanaðkomandi afskipti hafi gert henni ókleift að starfa áfram. „Hún hlýtur að hafa verið að vísa til einhvers annars en fjár- málaráðuneytisins í þeim efnum,“ segir Steingrímur aðspurður. „Því að okkar formlegu afskipti hafa eingöngu verið þau að við skrif- uðum og báðum um upplýsingar og rökstuðning.“ Hins vegar sé ljóst að mikilvægt sé að ró sé um starfsemi af slíku tagi. Spurður um þýðingu afsagn- arinnar fyrir nýráðinn forstjóra Pál Magnússon segir Steingrímur að það verði bara að bíða og sjá en er ekki tilbúinn að ræða það frekar. Harmar afsögnina Steingrímur J. Sigfússon Afsögn stjórnar Bankasýslu ríkisins kemur þingmönnum úr stjórnarand- stöðu ekki á óvart. Þeir telja hana skiljanlega í ljósi pólitískra afskipta af störfum hennar. „Lærdómurinn sem við getum dregið er að við ætt- um að huga að því að leggja þessa stofnun niður hið fyrsta. Það myndi leysa öll þessi vandamál,“ segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, for- maður þingflokks sjálfstæðismanna. „Réttmætar áhyggjur“ Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins og fulltrúi í efnahags- og viðskiptanefnd, segir að ákvörðun stjórnarinnar komi sér ekki á óvart í ljósi óeðlilegra póli- tískra afskipta stjórnmálamanna í þessu máli og lítur einnig til þess að stjórnin þurfi á næstunni að taka ákvarðanir um erfið mál sem undir hana heyra. „Ég tel að þau gífuryrði sem hafa fallið um störf stjórn- arinnar hafi valdið því að hún hafi ekki talið sér fært að starfa áfram enda átti hún að vera án afskipta stjórnmálanna,“ segir Birkir Jón. „Þetta voru klár pólitísk afskipti og greinilegt að stjórnin naut ekki trausts í þeim ákvörðunum sem hún var að taka,“ segir Ragnheiður Elín. Hún rifjar upp að hún hafi verið andvíg stofnun Bankasýslu ríkisins og ekki keypt þau rök sem fjár- málaráðherra hélt fram að þetta væri gert til að halda pólitíkinni frá. „Eftirleikurinn hefur sýnt og sannað að það voru réttmætar áhyggjur. Um leið og tekin er ákvörðun sem pólitíkinni líkar ekki fer hún að skipta sér af,“ segir Ragnheiður. helgi@mbl.is Skiljanlegt í ljósi pólitískra afskipta Ragnheiður Elín Árnadóttir Birkir Jón Jónsson Ný sending Blússubolur 5.900 kr Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 www.rita.is Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard. Hæðasmára 4 – Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind Sími 555 7355 • www.selena.is 25% afsláttur St. 36-48 Glæsilegir þýskir velúr- gallar Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Vöggusæng ur Vöggusett Póstsendum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.