Morgunblaðið - 25.10.2011, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2011
Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
Ekki hefur verið meiri samdráttur
en nú í umsvifum hagkerfa evru-
svæðisins í meira en tvö ár, ef marka
má nýjustu mælingu á innkaupavísi-
tölu framkvæmdastjóra (e. purchas-
ing managers index). Vísitalan
mældist 47,2 stigi í þessum mánuði
en mælingin fyrir september var
49,1. Öll gildi undir fimmtíu benda til
samdráttar í hagkerfinu.
Mikil fylgni er milli mælingar á
innkaupavísitölunni og hagvexti og
þar af leiðandi er mælingin nú enn
ein vísbendingin um að evrusvæðið
sé að renna inn í nýtt samdráttar-
skeið, á sama tíma og allt er enn í
járnum vegna skuldakreppunnar á
meginlandinu. Fram kemur í frétt
Financial Times að mælingin auki
líkurnar á að Evrópski seðlabankinn
lækki stýrivexti sína á næstunni en
auk samdráttar sýnir vísitalan að
verðbólguþrýstingur fari minnkandi.
Magnast vandinn enn?
Nýtt samdráttarskeið í Evrópu
gæti orðið til þess að vandinn vegna
skuldakreppunnar magnaðist enn
frekar. Í síðustu viku lýsti matsfyr-
irtækið Standard & Poor’s því yfir að
miklar líkur væru á því að annað
samdráttarskeið á evrusvæðinu yrði
til þess að lánshæfiseinkunn franska
ríkisins auk þess ítalska, spænska,
írska og portúgalska yrði lækkuð.
Það gæti haft afdrifaríkar afleið-
ingar og sett þær lausnir sem hefur
verið rætt um í tengslum við skulda-
kreppuna í fullkomið uppnám þar
sem það græfi undan fjármögnunar-
kjörum björgunarsjóðs Evrópusam-
bandsins, sem er ætlað lykilhlutverk
við lausn vandans, og myndi skadda
efnahagsreikning evrópskra banka
enn frekar.
Vísbendingar um nýtt sam-
dráttarskeið á evrusvæðinu
Lánshæfiseinkunn franska ríkisins og þess ítalska í mikilli hættu að mati S&P
Blikur á lofti
» Innkaupavísitala fram-
kvæmdastjóra í október á
evrusvæðinu bendir til að veru-
legur samdráttur sé hafin.
» S&P hefur varað við því að
lánshæfismat ríkja á borð við
Ítalíu og Frakkland kunni að
lækka dragi úr hagvexti á evru-
svæðinu.Reuters
Þungavigtarfólk Nicolas Sarkozy og Angela Merkel fara yfir stöðuna.
STUTTAR FRÉTTIR
● Samkomulag hefur náðst um kaup
MP banka á Júpiter rekstrarfélagi hf.
Félagið var áður að hluta í eigu bankans
en aðrir eigendur voru starfsmenn fé-
lagsins, þeir Ragnar Dyer, Sigurður
Hannesson og Styrmir Guðmundsson.
Þeir munu allir starfa áfram hjá félag-
inu. Kaupverð er trúnaðarmál, að því
er segir í tilkynningu.
MP banki festir kaup á
Júpiter rekstrarfélagi
● Þrátt fyrir að
gengi hlutabréfa í
grískum bönkum
hafi fallið verulega
í gær var ekki
mikill söluþrýst-
ingur á helstu
hlutabréfamörk-
uðum Evrópu í
gær. FTSE Euro-
first 300-vísitala
stærstu skráðu
fyrirtækja álfunnar hækkaði til að
mynda um ríflega eitt prósent í við-
skiptum gærdagsins. Þetta má rekja
til væntinga um útspil ESB vegna
skuldakreppunnar á næstunni. Lækk-
anirnar í Grikklandi má rekja til þess
að allar líkur eru á því að afskriftir á
skuldum gríska ríkisins verði enn
meiri en gert hefur verið ráð fyrir.
Hækkun á evrópskum
mörkuðum
Sviptingasamt á
mörkuðum.
● Frá 14. október til 20. október var
93 kaupsamningum þinglýst á höf-
uðborgarsvæðinu. Þar af voru 79
samningar um eignir í fjölbýli, 10
samningar um sérbýli og 4 samningar
um annars konar eignir en íbúðar-
húsnæði.
Á vef Þjóðskrár Íslands segir að
heildarveltan hafi verið 2.420 millj-
ónir króna og meðalupphæð á samn-
ing 26 milljónir króna.
93 kaupsamningum
þinglýst á einni viku
● Greining Ís-
landsbanka telur
að Seðlabanki Ís-
lands muni lækka
sína verðbólguspá
til næstu missera í
nóvember og að
spá bankans muni
verða meira í takti
við verðbólguspá
Íslandsbanka.
Þetta kemur fram
í Morgunkorni Íslandsbanka.
„Lægri verðbólguspá segir að minni
þörf sé á boðaðri vaxtahækkun.
Spurningin er sú hvort breytingin
verði það mikil að hún rökstyðji að
slaka peningastefnunnar sé haldið
óbreyttum eða úr honum dregið með
vaxtahækkun,“ segir í Morgunkorni Ís-
landsbanka.
Seðlabankinn lækki
sína verðbólguspá
Íslandsbanki vænt-
ir óbreyttra vaxta.
Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
Einar Hálfdánarson, stjórnarfor-
maður EA fjárfestingafélags sem
áður hét MP banki, segir niður-
stöðu Héraðsdóms Reykjavíkur að
fella úr gildi stjórnvaldssekt Fjár-
málaeftirlitsins vera bæði „eðlilega
og rétta“. FME sektaði félagið
fyrir brot á reglum um takmark-
anir á stórum áhættuskuldbinding-
um en eftirlitið taldi að ein
áhættuskuldbindingin í bókum
bankans hinn 15. desember 2009
hefði numið 126% af eigin fé bank-
ans, en reglur kveða á um að slík-
ar skuldbindingar mega ekki fara
fram úr fjórðungi af eiginfjár-
grunni fjármálafyrirtækja.
Þetta mat FME byggðist á
þeirri túlkun að lán til þeirra Mar-
geirs Péturssonar, Sigurðar Gísla
og Jóns Pálmasona og Sigfúsar
Ingimundarsonar og félaga í
þeirra eigu væru lán til fjárhags-
legra tengdra aðila. Í krafti þessa
var félagið sektað um 30 milljónir
en síðar var sektin lækkuð niður í
15 milljónir. Þessari túlkun FME
á lánum til tengdra aðila var mót-
mælt af EA og málinu í framhald-
inu skotið fyrir dóm þar sem það
fékk flýtimeðferð. Að sögn Gunn-
ars Andersen, forstjóra FME,
verður fljótlega tekin ákvörðun um
hvort úrskurðinum verði áfrýjað
til hæstaréttar.
Sáu sig knúna að losa um
eignarhald vegna FME
Einar segir framgöngu FME í
málinu hafa valdið hluthöfum EA
miklum skaða og segir málatilbún-
að eftirlitsins aldrei haft neina
stoð í lögum og reglum eins og
dómsorð héraðsdóms í gær stað-
festi. Einar segir að aðdragandi og
úrskurður FME
á sínum tíma hafi verið afdrifa-
ríkur enda leiddi hann til þess að
fyrrum eigendur MP banka sáu
sig knúna til þess að losa um eign-
arhald sitt á bankanum.
Úrskurðurinn vonbrigði
Gunnar segir úrskurð héraðs-
dóms vera mikil vonbrigði og
áfrýjun til Hæstaréttar sé til skoð-
unar. Hann vill hinsvegar ekki
svara því beint hvort FME hafi
stuðst við sömu túlkum á reglum
um stórar áhættuskuldbindingar
og lán til tengdra aðila í þeim mál-
um sem eftirlitið hafi vísað til
rannsóknar hjá yfirvöldum. En
hann segir þó að ekkert frávik hafi
falist í málarekstrinum vegna EA
fjárfestingafélags.
Héraðsdómur ósam-
mála túlkunum FME
Felldi niður stjórnvaldssekt á EA fjárfestingafélag
Einar S.
Hálfdánarsson
Gunnar
Andersen
Grænlandsflug
hefur eignast
25% í flugfélag-
inu Norlandair,
sem flýgur á
milli Akureyrar
og Grænlands og
er í eigu Íslend-
inga. Að sögn
Friðriks Adolfs-
sonar, forstjóra
Norlandair, keypti félagið Twin
Otter-vél af Grænlandsflugi og
greiddi fyrir hana með hlutafénu.
Starfsemi Norlandair mun
aukast verulega með þessum kaup-
um, segir Friðrik. „Við verðum
með vélina á vesturströnd Græn-
lands. Að auki erum við með tvær
aðrar sem fljúga frá Akureyri til
austurstrandarinnar og norður-
hlutans.“
Norlandair flýgur á milli Ak-
ureyrar og Grænlands á tímabilinu
febrúar til október. Ekki er um al-
menna farþegaflutninga að ræða,
heldur er flogið fyrir ýmis fyr-
irtæki og stofnanir.
hordur@mbl.is
Aukin umsvif
Norlandair
Grænlandsflug eign-
ast 25% í Norlandair
Norlandair flýgur
til Grænlands.
!"# $% " &'( )* '$*
++,-.,
+/0-1,
++2-/,
0+-033
04-5//
+.-,4+
+03-0/
+-5410
+/+-0,
+5/-1
++5-4+
+/2-4/
++,-+.
0+-21+
04-1,3
+.-,50
+03-1,
+-5+41
+/+-./
+53-4,
0+,-4+42
++5-0/
+/2-50
++,-5
0+-,02
04-.+
+.-542
+24
+-5+5
+/0-20
+53-,/
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Skiptum á þrotabúi CDG ehf. (áður
Bygg Invest ehf.) í eigu byggingar-
verktakanna Gylfa Héðinssonar
múrarameistara og Gunnars Þor-
lákssonar byggingarmeistara er lok-
ið, samkvæmt því sem fram kemur í
Lögbirtingablaðinu í gær. Kröfur í
búið voru 16,2 milljarðar króna en
226 milljónir króna greiddust upp í
samþykktar almennar kröfur, eða
1,4%.
Skiptakostnaður greiddist að fullu
og engum forgangskröfum var lýst í
búið. Helgi Jóhannesson hrl. var
skiptastjóri búsins.
Nafni Bygg Invest ehf. var breytt
í CDG ehf. kjölfar hrunsins, haustið
2008. Héraðsdómur Reykjavíkur úr-
skurðaði hinn 29. apríl sl. að félagið
skyldi tekið til gjaldþrotaskipta.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var Landsbankinn lang-
stærsti körfuhafinn í þrotabúið, með
kröfur nálægt 12,5 milljörðum
króna, og aðrar fjármálastofnanir,
Íslandsbanki, Byr og gamli Glitnir,
með mun lægri upphæðir.
Félagið hóf starfsemi sem fjár-
festingafélag á árinu 2006 en fram til
þess tíma höfðu eigendurnir, Gunnar
og Gylfi, aðallega verið í verktaka-
starfsemi. Fram til þess tíma hét fé-
lagið Bygg hf.
Eftir að félagið hóf fjárfestinga-
starfsemi gerðist það umsvifamikið á
hlutabréfamarkaði og fjárfesti m.a. í
hlutabréfum í gamla Glitni, gamla
Landsbankanum og FL Group.
agnes@mbl.is
Landsbankinn tapaði
langmest á Bygg Invest
Morgunblaðið/Kristinn
Landsbankinn Tapar langmestu.
226 milljónir króna fengust upp í yfir 16 milljarða kröfur