Morgunblaðið - 25.10.2011, Síða 26
26 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2011
Sudoku
Frumstig
3 2
5 8 3
6 2
7
4 5 8 1
8 3 6 4 2
7 2
3 5 6
1 7 4
9 8
4 3 2 7
6 3 7 1
8 7 6
1 3 9 2
9 4
4 8 3
9 7 6
6
3 8 2
6 8 5
2 9
6 7 9
7 5 9 2 4
5 1
4 7
8
4 6 7 5
1 3 7 9 2 5 8 6 4
8 6 9 7 3 4 5 1 2
5 2 4 8 6 1 3 7 9
7 4 2 1 5 3 6 9 8
6 5 8 2 7 9 4 3 1
3 9 1 4 8 6 2 5 7
9 7 6 5 4 8 1 2 3
2 8 5 3 1 7 9 4 6
4 1 3 6 9 2 7 8 5
6 5 4 9 7 1 8 3 2
7 2 3 8 4 5 9 1 6
8 1 9 2 3 6 7 5 4
2 3 5 7 1 4 6 8 9
9 4 6 3 2 8 1 7 5
1 7 8 5 6 9 4 2 3
3 6 2 1 9 7 5 4 8
4 8 7 6 5 2 3 9 1
5 9 1 4 8 3 2 6 7
2 5 9 8 7 4 3 1 6
3 1 8 2 6 9 5 4 7
6 4 7 5 3 1 8 9 2
4 8 3 1 5 7 6 2 9
9 6 1 3 4 2 7 5 8
7 2 5 9 8 6 1 3 4
8 9 6 4 1 5 2 7 3
5 3 4 7 2 8 9 6 1
1 7 2 6 9 3 4 8 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 25. október,
298. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Fagnið því, þótt þér nú
um skamma stund hafið orðið að
hryggjast í margs konar raunum.
(1Pt. 1, 6.)
Sigur Manchester City á nágrönn-um sínum, Manchester United, í
ensku úrvalsdeildinni um helgina,
6:1, eru einhver ótrúlegustu úrslit
sem sögur fara af í ensku knatt-
spyrnunni. Satt best að segja bjóst
Víkverji ekki við að eiga eftir að sjá
Englandsmeistara Manchester
United niðurlægða með þessum
hætti á eigin heimavelli. Sir Alex
Ferguson fór heldur ekkert í felur,
viðurkenndi fúslega að þetta væru
verstu úrslit sem hann hefði upplifað
á langalöngum ferli, sem leikmaður
og knattspyrnustjóri, en hann verð-
ur sjötugur á gamlársdag.
Auðvitað hefur Manchester City
verið á ógurlegri siglingu í haust,
kjöldregið hvert liðið á fætur öðru
og raðað inn mörkum, bæði heima
og úti. Það hafði United svo sem
gert líka, skemmst er að minnast
gjörsigurs Rauðu djöflanna á Arsen-
al fyrr í haust, 8:2. Stuðningsmenn
Arsenal hljóta að kvíða glímunni við
City laust fyrir jól. Einföld tölfræði
segir manni að Skytturnar komi til
með að tapa þeim leik með ellefu
marka mun!
Auðvitað missti United mann af
velli í stöðunni 0:1 um helgina og
þrjú markanna komu í blálokin en
markatalan mun eigi að síður standa
um ókomna tíð: Manchester United
1, Manchester City 6.
x x x
Eðli málsins samkvæmt eruvangaveltur um valdaskipti í
Englandi hafnar, ekki bara í Man-
chester-borg. United hefur borið
höfuð og herðar yfir önnur félög í
tvo áratugi en er nú komið að hinum
nýríku nágrönnum þeirra að taka
við keflinu? Ótímabært er að kveða
upp dóm í því máli enda þótt freist-
andi sé að gera það á grundvelli um-
ræddra úrslita. Hitt er þó alveg ljóst
að Manchester City hefur tekið gríð-
arlegum framförum frá síðustu leik-
tíð, þegar liðið náði sínum langbesta
árangri í úrvalsdeildinni. Það er
óhemju vel mannað og sjóðir eigand-
ans, Sjeiks Mansour bin Zayed Al
Nahyan, hvergi nærri tæmdir. City-
menn ættu þó að muna, eins og aðr-
ir, að dramb er falli næst.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 stilltur, 4 loð-
skinns, 7 ónauðsynleg, 8
fárviðri, 9 duft, 11 pest, 13
hegða, 14 þor, 15 þvætt-
ingur, 17 klæðleysi, 20 bók,
22 fallegi, 23 sálir, 24 röð
af lögum, 25 tré.
Lóðrétt | 1 fánýtis, 2 vilsu,
3 rándýrs, 4 feiti, 5 anga, 6
kasta, 10 ódámur, 12 svik,
13 greinir, 15 nauta-
steikur, 16 slátrar, 18 lok,
19 grassverði, 20 skjögur,
21 stertur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 húskarlar, 8 ásinn, 9 faldi, 10 net, 11 seldi, 13
afrek, 15 byggs, 18 þanki, 21 tía, 22 rella, 23 niðra, 24
hillingar.
Lóðrétt 2 úrill, 3 kynni, 4 ryfta, 5 aflát, 6 báls, 7 fisk, 12
dug, 14 fáa, 15 búri, 16 gildi, 17 stagl, 18 þanin, 19
naðra, 20 iðan.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Misskilningur. A-Allir.
Norður
♠–
♥K9865
♦Á86
♣KD763
Vestur Austur
♠D1084 ♠K76532
♥Á7 ♥43
♦743 ♦KG9
♣Á1042 ♣G5
Suður
♠ÁG9
♥DG102
♦D1052
♣98
Suður spilar 5♦ doblaða.
Pólverjarnir Piotr Gawrys og Jacek
Kalita virðast ekki ná saman um grund-
vallaratriði. Þeir lentu 16 impa misskiln-
ingi í spilinu að ofan á móti Íslandi, þeg-
ar þjóðirnar mættust undir lok
umferðarkeppni HM.
Þorlákur Jónsson vakti í austur á
multi 2♦ (veikt með hálit), Gawrys pass-
aði og Jón þreifaði fyrir sér með 2♥. Ka-
lita í norður hefði betur blandað sér í
sagnir á þessum tímapunkti, en hann
kaus að bíða átekta með passi. Þorlákur
breytti í 2♠, sem Jón lyfti hindrandi í
3♠. Nú varð Kalita að gera eitthvað!
„Dobl“ er vafalaust besta sögnin, en
Kalita taldi sig geta sagt betur frá skipt-
ingunni með 3G, sem Gawrys myndi
vafalítið túlka sem „unusual“. Mikið
rétt, Gawrys bjóst við tveimur litum –
láglitunum – og stökk í 5♦. Þrír niður,
doblaðir.
25. október 1852
Barnaskólinn á Eyrarbakka
var settur í fyrsta sinn. Hann
er elsti barnaskólinn sem enn
er starfræktur.
25. október 1919
Doktorsvörn fór fram í fyrsta
sinn við Háskóla Íslands. Páll
Eggert Ólason varði rit sitt
um Jón biskup Arason. At-
höfnin fór fram í Alþingishús-
inu. „Doktorsefnið stóð í upp-
hækkuðum ræðustól,“ sagði
Vísir.
25. október 1937
Sogsvirkjun við Ljósafoss var
formlega gangsett. Þá jókst
tiltækt afl á svæði Rafmagns-
veitu Reykjavíkur úr 2,8
megavöttum í 10,8 megavött.
Þjóðviljinn sagði að orkuverið
væri „hið stórbrotnasta mann-
virki hér á landi“.
25. október 1947
Kvikmyndasýningar hófust í
Austurbæjarbíói, sem þá var
stærsta samkomuhús landsins
og rúmaði 787 manns í sæti.
Sýnd var kvikmyndin Ég hef
ætíð elskað þig, en þetta var
sögð tónlistarmynd í eðlileg-
um litum.
25. október 1986
Mjólkurstöð Mjólkursamsöl-
unnar við Bitruháls í Reykja-
vík var tekin í notkun. Gólf-
flötur hennar er 13.800
fermetrar og byggingarkostn-
aður var 850 milljónir króna.
„Nýtískulegasta mjólkurstöð
heims,“ sagði í Morg-
unblaðinu.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
„Ég fékk ýmsar gjafir og allar góðar, en vænst
þykir manni auðvitað um það þegar fólk mætir og
tekur í höndina á manni og faðmar mann,“ segir
Reynir Helgi Sciöth, fyrrum bóndi og brunavörð-
ur, sem á 70 ára afmæli í dag. Hann tók þó forskot
á sæluna um liðna helgi og hélt veislu. Þangað
komu 120 manns til að fagna honum og færðu
ýmsar gjafir, margar á fljótandi formi sem gera
þarf góð skil. Reynir er fæddur á Akureyri en hef-
ur frá sex ára aldri búð nánast óslitið á bænum
Hólshúsum í Eyjafirði. Þar var hann lengi bóndi
en eftir að hann hætti búskap var hann brunavörð-
ur í slökkviliðinu á Akureyri í 15 ár. Hann er nú sestur í helgan stein
en hefur þó ekki sagt skilið við tónlistina sem lengi hefur fylgt honum,
því frá árinu 1960 hefur Reynir spilað með hljómsveitum og gerir
enn, ásamt konu sinni Þuríði. Saman spila þau undir nafninu Þuríður
formaður og hásetarnir og hafa þau komið víða við í spilamennsku.
Auk þess hafa þau hjón verið virk leikhúsmenningunni og meðal ann-
ars tekið þátt í uppsetningum hjá Freyvangsleikhúsinu og hjá Leik-
félagi Akureyrar. Í daglega lífinu glímir hann svo við afahlutverkið,
því hann á tvo uppkomna syni sem hafa fært honum sjö barnabörn.
Reynir Helgi Sciöth 70 ára
Spilar og leikur gegnum lífið
Hlutavelta
Margrét Ásta Finn-
björnsdóttir, Birna
Sigurðardóttir,
Nadía Sigurðar-
dóttir og Karen
Ósk Arnarsdóttir
héldu brúðusýn-
ingu og tombólu og
söfnuðu kr. 40.542,
sem þær gáfu
Rauða krossi Ís-
lands.
Flóðogfjara
25. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.46 4,0 11.01 0,4 17.01 4,1 23.19 0,2 8.49 17.36
Ísafjörður 0.42 0,1 6.49 2,1 13.05 0,1 18.56 2,3 9.03 17.31
Siglufjörður 2.44 0,1 8.58 1,3 14.59 0,1 21.12 1,3 8.46 17.14
Djúpivogur 1.55 2,1 8.08 0,3 14.16 2,1 20.21 0,3 8.20 17.03
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Samskipti þín við einhvern náinn
verða þér uppspretta gleði og nýrra upplýs-
inga. Og þar sem þú þarft á hjálp að halda
skaltu vera vinalegur við alla ókunnuga.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Að vera upptekinn er ekki það sama og
að vera afkastamikill. Morgunverkunum
fylgja friður og þægileg tilfinning, sem byggja
þig upp fyrir átök dagsins.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert hrókur alls fagnaðar og allir
vilja vera nálægt þér. Kannski er ráðlegast að
hinkra eilítið með frí. Nærvera barna er end-
urnærandi og vekur spurningar um lífið.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það eru miklar líkur á einhvers konar
töfum og bilunum í vinunni hjá þér í dag.
Komdu fram við aðra eins og þú kýst að aðrir
komi fram við þig.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þessi leiðindi, sem grípa þig, eru alfarið
á þína ábyrgð. Láttu ekki koma þér úr jafn-
vægi, þú þarft bara að eyða svolitlum tíma í
að leysa vandamálin.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú sérð einhvern í nýju ljósi í dag,
hugsanlega manneskju sem þú berð mikla
virðingu fyrir. Fólk er til í að gera þér greiða
og færa þér gjafir um þessar mundir.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Láttu ekki útlit fólks slá ryki í augun á
þér. Góðlátlegt grín og skemmtilegt spjall fær
þig til að brosa í allan dag.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Varastu að eyða um efni fram í
því sem viðkemur börnum og skemmtun í
dag. Leggðu þig fram um að vera til staðar
fyrir vini þína bæði í sorg og gleði.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þér er það óvænt ánægja hvað þú
uppskerð fljótt árangur erfiðis þíns. Plönin
þín eru góð – um leið og þau komast á hreint.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú hefur unnið vel að undanförnu
og átt því skilið þín laun. Hvernig væri að taka
sér bók í hönd og hverfa í hennar heim?
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ekki byrja á nýju verkefni núna, þú
ert of annars hugar. Ef þú bregður út af van-
anum færðu nýtt sjónarhorn.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Aldur er afstæður. Haltu þér í formi
með því að vanda mataræðið og hreyfa þig
sem allra mest. Vertu vinur vina þinna.
Stjörnuspá
1. c4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 g6 4. e3
Bg7 5. d4 d6 6. d5 Rb8 7. Be2 Rf6
8. O-O O-O 9. e4 Ra6 10. Bf4 Rc7
11. Dd2 Bg4 12. h3 Bxf3 13. Bxf3
Rd7 14. Be2 He8 15. Bg5 Rf8 16.
f4 f6 17. Bh4 e5 18. f5 g5 19. Bf2
Rd7 20. a3 a5 21. Rd1 De7 22. Re3
Heb8 23. h4 b5 24. hxg5 fxg5 25. f6
Dxf6 26. Rf5 Rf8 27. Be3 h6 28.
Bh5 Rh7 29. Hf3 Hf8 30. Haf1
bxc4
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í
Rogaska Slatina í Slóveníu. Rúss-
neski stórmeistarinn Vladimir
Potkin (2671) hafði hvítt gegn
kollega sínum Þresti Þórhallssyni
(2388). 31. Bg6! Kh8 32. Bxh7
Kxh7 33. Hh3 Hab8 34. Bxg5 og
svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.