Morgunblaðið - 25.10.2011, Page 27

Morgunblaðið - 25.10.2011, Page 27
DAGBÓK 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand GRETTIR, OKKUR TÓKST AÐ LIFA AF HÁTÍÐARNAR ENN EINA FERÐINA NÚ ÞURFUM VIÐ BARA AÐ LIFA AF ANNAÐ ÁR EÐA BARA DAGINN Í DAG MÉR FINNST SVO GAMAN ÞEGAR ÞÚ REYNIR AÐ HRESSA MIG VIÐ HVAÐ EF VIÐ VÆRUM FÁTÆK? HVAÐ EF VIÐ ÞYRFTUM AÐ FÁ OKKUR VINNU TIL AÐ HJÁLPA MÖMMU OG PABBA ÉG GÆTI UNNIÐ FYRIR MÉR HVAÐ GÆTIR ÞÚ GERT? ÉG GÆTI BÚIÐ UM RÚMIÐ MITT! ÉG HEF EKKERT Á MÓTI ÞVÍ AÐ ÞÚ BORÐIR Í RÚMINU EN ERTU TIL Í AÐ VERA SNÖGGUR AÐ ÞVÍ AF HVERJU LIGGUR ÞÉR SVONA MIKIÐ Á? ÉG ÞARF AÐ HAFA TÍMA TIL AÐ VASKA UPP DISKANA SVO ÉG GETI GEFIÐ ÞÉR MORGUNMAT HANN GEFST SKO EKKI UPP ÞESSI AF HVERJU MÁ ÉG EKKI KAUPA MÉR MÓTORHJÓL? SVONA NÚ, MILLJÓNIR FÓLKS AKA Á ÞEIM Á HVERJUM DEGI EF ÞÚ ERT BÚINN AÐ ÁKVEÐA ÞIG ÞÁ GET ÉG EKKI STÖÐVAÐ ÞIG EN EF ÞÚ SLASAR ÞIG EÐA TEKST AÐ DREPA ÞIG, ÞÁ MUN ÉG ALDREI FYRIRGEFA ÞÉR! HÚN SAGÐI AÐ ÞETTA VÆRI Í GÓÐU LAGI GEORG! NÆSTUM ÞVÍ KOMINN! KÓNGU- LÓAR- MAÐURINN ER Á ÞAKINU! NEI, ÉG ER EKKI ENNÞÁ KOMINN Á EFTIRLAUN EN NÚ ER ÉG KOMINN Á LEIÐARENDA HANN HEFÐI NÚ MÁTT BJÓÐAST TIL AÐ BORGA HLUTA AF FARINU! VEGNA ÞESS AÐ ÞAU ERU HÆTTULEG! KOMST ÞÚ LÍKA HINGAÐ TIL AÐ SETJAST Í HELGAN STEIN? Nokkrar línur að vestan til Páls Við sem ólumst upp við almenn sæti í Austurbæjarbíói og eina kók og eitt lakkrísrör á mánuði förum nú að verða úr- kula vonar um að fá að sjá þó ekki væri nema eina Roy Ro- gers-mynd í Tec- hnicolor frá Republic Pictures áður en við förum úr þessum táradal hér á jörðu. Þarna voru persónur eins og Roy sjálfur, hans ektakvinna Dale Evans og Gabby Hayes, að ógleymdum fær- leiknum Trigger, ásamt tríóinu Nol- an Brothers sem spiluðu á sagirnar. Svo voru þetta einhvern veginn miklu betri glæpamenn en eru í þessum haugum af algjöru drasli sem verið er að dæla nú til dags yfir saklausa íslenska þjóð í sjónvarpi og kvikmyndahúsum frá morgni til kvölds. Þarna tóku þeir til dæmis hina íðilfögru Dale og bundu hana með reipi. Þá kom Roy eins og skot á Trigger, gúbbidí, gúbbidí gúbb, frelsaði hana, batt glæpa- mennina með sama reipinu og skellti Dale á bak fyrir aftan sig. Og Gabby gamli setti tölu upp í sig og spýtti mórauðu. Einstaka sinnum kom smákusk og mold á búningana, en þá var ekkert að gera annað en bursta það af með hendinni og allt varð gott á ný. Svo var sest við varð- eldinn og sungið, þessi líka fínu lög. Roy Ro- gers-kvikmyndirnar voru að vísu 3. flokks B-myndir frá draumaverksmiðjum Hollywood. En þær eru jafngóðar fyrir það í heiðríkju minninganna hjá okkur gömlu símastaurunum. Mynd eins og The Yellow Rose of Texas er til dæmis ógleymanleg. Þar var bæði rigning og snjór. Plís Páll. Reddaðu þessu nú fyrir okkur. Hallgrímur Sveinsson. Ást er… … jafngömul Adam og Evu. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, gönguhópur kl. 10.30, tölvufærni kl. 13 og postulín, lestrarhópur kl. 13.30, jóga kl. 18. Árskógar 4 | Smíði, útskurður kl. 9. Botsía kl. 9.30. Handavinna kl. 13. Boðinn | Handavinna kl. 9, vatnsleikfimi kl. 9.15 (lokaður hópur), ganga kl. 11. Dalbraut 18-20 | Handavinna kl. 9, fé- lagsvist kl. 14. Dalbraut 27 | Handav. kl. 8, bænastund kl. 9.30, söngur/uppl. kl. 14 á 2. hæð. Fella- og Hólakirkja | Spil/spjall kl. 13. Kaffi kl. 15, framhaldssaga. Helgistund í kirkju að lokum. Félag eldri borgara, Reykjavík | Leik- fél. Snúður og Snælda æf. kl. 10. Skák kl. 13. Framsögn kl. 17. Félagsv. kl. 20. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Tré- skurður/myndlist kl. 9.30, jóga kl. 9.30 og 18, kanasta/silfursmíði kl. 13. Vetri fagnað kl. 14, börn á leiksk. Sólhvörfum syngja, lausavísur Páls Ólafssonar með sögum og söng. Haukur Ingibergsson spilar á harmonikku. Kaffihlaðborð kr. 1.000. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Qi gong kl. 8.15, trésmíði kl. 9/13, vatns- leikfimi kl. 12, bíó í kirkju kl. 13, bíll frá Jónshúsi kl. 12.40, karlaleikfimi/ bútasaumur kl. 13, botsía kl. 14, Bón- usrúta kl. 14.45, línudans kl. 15/16. Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn- arnesi | Vatnsleikfimi kl. 7.15. Gler kl. 9. Kaffispjall kl. 10.30. Jóga kl. 11. Opinn salur Skólabraut. Karlakaffi í kirkju kl. 14. Skapandi skrif Gróttusal kl. 14.30. Mál- un/teiknun kl. 17. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl. 9. Stafganga/létt ganga kl. 10.30. Perlusaum./postulín kl. 13. Hinn 27. okt. leikhúsferð á Kirsuberjagarðinn, skrán. á staðnum og s. 5757720. Grafarvogskirkja | Opið hús kl. 13.30. Helgistund, handavinna, spil og spjall. Kaffiveitingar. Grensáskirkja | Kyrrðarstund kl. 12 Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, botsía kl. 10.30, Bónusbíll kl. 12.15. Tímap hjá Helgu fótafr. í síma 6984938, hárgreiðslust. s. 8946856. Hraunsel | Qi gong kl. 10, myndmennt kl. 10/13, leikfimi kl. 11.30 Bjarkarh. Boltaleikfimi kl. 14.15, Haukah. Brids kl. 13, vatnsleikfimi kl. 14.40. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9/10. Bútasaumur kl. 9. Helgistund. Fótaað- gerðir, hársnyrting. Hæðargarður 31 | Við Hringborðið/ dagblöðin/kaffitár kl. 8.50. Stefáns- ganga kl. 9. Glersk. kl. 9. Thaichi kl. 9. Leikfimi kl. 10. Hláturjóga kl. 13.30. Tölvuleiðb.kl. 13.15. Bónusbíll kl. 12.40. Bókabíll kl. 14.15. Gáfumannakaffi kl. 15. Fjölmennt/Perlufestin kl. 16. Bók- menntah. þri. kl. 20. Íþróttafélagið Glóð | Línudans hópur I kl. 14.40, hópur II kl. 16.10, zumba kl. 17.30. í Kópavogsskóla. Korpúlfar Grafarvogi | Félagsfundur á morgun mið. kl. 13.30 Hlöðunni við Gufunesbæ. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Iðjustofa – postulín kl. 9, við hringborðið kl. 10, leikfimi kl. 11, brids/vist kl. 13, postulín o.fl. kl. 13, kaffi kl. 14.30. Norðurbrún 1 | Postulínsmálun, mynd- list, vefnaður o.fl., útskurður kl. 9. Frí- stundastarf fyrir íbúa eftir hádegi. Vesturgata 7 | Tölvuáhugafólk: Í dag kl. 10.55 kemur vefstjóri Tryggingastofn- unarinnar og kynnir vef þeirra. Skrán. í s. 535-2740. Handavinna kl. 9.15, leshópur kl. 13, kaffiv. kl. 14.30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Bútasaum- ur/glerbræðsla kl. 9, morgunst. kl. 9.30, leikfimi kl. 10.15, uppl. kl. 12.30, handav. kl. 13. Félagsvist kl. 14. Jón Gissurarson, Víðimýrarseli,yrkir svo í minningu Hólmsteins Valdimarssonar frá Blönduósi, er síð- ast var búsettur á Akranesi og borinn til moldar í Akraneskirkjugarði í gær: Þín er fölnuð brún og brá búin jarðardvölin. Héðan fáki fögrum á ferðu hinsta spölinn. Kisan Jósefína Dietrich fer mikinn á fésbókinni: „Þó það sé votviðrasamt og erfitt að vinna í garðinum hef ég ákveðið að líta á björtu hliðarnar og gleðjast yfir harðfiskinum mínum: Um herta ýsu er sannleikur og segin saga að hún kætir munn og maga mest af öllu þessa daga.“ Og ýsa er henni hugleikin: Sæl og glöð ég sofið hefi svefni værum dreymt um ýsu og yndislega osta’ og krásir alla vega. Í draumnum var ég valhoppandi um veiðilendur rakst á mikinn músaskara og margar þeirra át ég bara. Jón Ingvar Jónsson sendi henni kveðju í léttum dúr: Hungri mig svo hárin öll af höfði detti æti ég á einu bretti alla landsins gulu ketti. Pétur Stefánsson á síðasta orðið í dag: Eftir dagsins arg og strit, andinn þráir næði. Oft á kvöldin einn ég sit og yrki stef og kvæði. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af minningu og hagmæltri kisu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.