Morgunblaðið - 25.10.2011, Side 29
Ólafur Gunnarsson hefursent frá sér á annan tugskáldsagna síðan súfyrsta kom út árið 1977,
og hefur notið vinsælda og virð-
ingar sem sögumaður. Hans helsta
form hefur verið hin epíska skáld-
saga en nú sendir Ólafur frá sér
sitt fyrsta smásagnasafn, Meist-
araverkið og
fleiri sögur, og
tekst afar vel
upp.
Bókin hefst á
stuttum og
áhrifaríkum
prósa, „For-
spili“, sem til-
einkaður er
minningu rúss-
neska leikstjór-
ans Andreis Tarkovskys. Líta má
á hann sem eins konar stefnuskrá
fyrir sögurnar fjórtán sem á eftir
koma, og um eðli smásögunnar,
þar sem frelsið getur verið annað
og meira en í hinum stærri
raunsæislegu skáldsögum. Hér er
tíminn brotinn upp, raunveruleiki
og þrá takast á, draumar koma við
sögu og dauðinn er sínálægur.
Heimur sagnanna er kunn-
uglegur; þetta er Reykjavík og
næsta nágrenni borgarinnar, og
sögutíminn teygir sig aftur í síð-
ustu öld og inn í samtímann. Í
einni af bestu sögunum, „Eldi af
himnum“, er sögumaður í fjöl-
skyldu votta Jehóva og verður
valdur að hræðilegu slysi.
„Meistaverkið“ er ekki síður vel
skrifuð saga, um bílstjóra og son
hans sem virðist búa yfir listræn-
um hæfileikum sem umhverfið
skilur ekki. Í tveimur áhugaverð-
um sögum kveikir ást á konum at-
burðarás sem endar með glæp; í
„Hlákunni“ er það kona sem hafði
verið í „ástandinu“ sem flytur inn
til tveggja laghentra bræðra, en í
sögunni „Gimme shelter“ er það
fortíð konunnar sem súlu-
dansmeyjar sem hrindir atburða-
rásinni af stað. Í lokasögunni,
„Steindi glugginn“, er kostuleg
lýsing á nágrannaerjum sem enda
með flutningi á húsi og sést þar
vel hvernig Ólafur notar sér raun-
verulega atburði sem skáldlegan
efnivið, í þessu tilviki flutning
steindra glugga til Íslands í
heimsstyrjöldinni síðari.
Smásögur Ólafs eru mislangar
en hefðbundar í uppbyggingu.
Persónur eru skapaðar og að-
stæður þeirra kynntar, árekstrar
verða og oft afgerandi hvörf; mað-
ur er skilinn eftir til að deyja,
barn heldur að faðir sinn sé að
skilja það eftir, hlaða er brennd
eftir að ungur maður hefur látist
undir malarfargi.
Höfundi tekst vel að draga per-
sónurnar skýrum dráttum, gæða
þær lífi þótt sögurnar séu stuttar;
að vekja samkennd lesandans með
þeim. Stíllinn er tær og knappur,
og samtöl lipur. Hversdagslegt
andrúmloftið sem er splundrað
með afgerandi atburði, stundum
slysi eða óviljaverki, minnir á
stundum á einkenni sagna banda-
ríska smásagnameistarans Ray-
monds Carvers og er það ekki
leiðum að líkjast.
Oft er talað um að smásagan
eigi erfitt uppdráttar, í samkeppni
við hina löngu og hefðbundu
skáldsögu. Í vel lukkuðum smá-
sögum er þó alls ekki síður hægt
að kveikja áhugavert líf og varpa
upp heillandi heimum. Það tekst
Ólafi svo sannarlega í bestu sög-
um þessa vandaða sagnaúrvals.
Hversdagsleikanum
splundrað í sögum
Meistaraverkið og fleiri sögur
bbbbn
Eftir Ólaf Gunnarsson.
JPV útgáfa. Reykjavík, 2011. 189 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Morgunblaðið/Frikki
Ólafur Gunnarsson „Höfundi tekst vel að draga persónurnar skýrum drátt-
um, gæða þær lífi þótt sögurnar séu stuttar; að vekja samkennd lesandans
með þeim,“ segir um Meistaraverkið og fleiri sögur.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2011
Á tónleikum á Kjarvalsstöðum ann-
að kvöld, miðvikudagskvöld, klukk-
an 20 endurvekur tónlistarhópurinn
Jarðarber mörg af eftirminnilegustu
verkunum sem kennd voru við ann-
an tónlistarhóp, Musica Nova. Að-
gangur á tónleikana er ókeypis.
Á tónleikunum verða endurspegl-
aðar hræringar sem áttu sér stað í
nýrri tónlist á sjöunda áratug lið-
innar aldar, en nýjungar í raðtækni,
raftónlist, óákveðni og gjörn-
ingabrellum litu þá dagsins ljós á
nánast sama tíma. Margir tónlist-
armenn tengdust Musica Nova en á
tónleikunum verður sjónum beint að
verkum eftir Magnús Blöndal Jó-
hannsson, Atla Heimi Sveinsson,
Leif Þórarinsson, Þorkel Sig-
urbjörnsson og Þorstein Hauksson.
Af erlendum listamönnum sem
verk verða flutt eftir má nefna Nam
June Paik, en framkoma hans á tón-
leikum Musica Nova árið 1965 var
umdeild, og andi Flúxushreyfing-
arinnar svífur yfir vötnum í verkum
Yoko Ono.
Tónleikarnir eru haldnir í sam-
bandi við sýninguna Ný list verður
til á Kjarvalsstöðum.
Endurvekja tónverk
kennd við Musica Nova
Morgunblaðið/Sverrir
Eitt tónskáldanna Flutt verða verk
eftir Magnús Blöndal Jóhannsson.
Kirsuberjagarðurinn – forsala í fullum gangi
Miðasala sími: 571 5900
ALVÖRUMENN
“Hér er valinn maður í hverju rúmi...
Leikurinn er upp á fimm stjörnur.”
-Elísabet Brekkan, Fréttablaðið.
- harpa alþýðunnar
FÖS 28/10
L AU 29/10
FÖS 04/1 1
L AU 05/1 1
FÖS 1 1 / 1 1
L AU 1 2 /1 1
FÖS 18/1 1
FIM 24/1 1
FÖS 25/1 1
L AU 26/1 1
FÖS 02 /1 2
FÖS 09/1 2
L AU 10/1 2
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
Ö
Ö
U
Ö
NÝ SÝNING
NÝ SÝNING
NÝ SÝNING
NÝ SÝNING
NÝ SÝNING
NÝ SÝNING
NÝ SÝNING
NÝ SÝNING
NÝ SÝNING
NÝ SÝNING