Morgunblaðið - 25.10.2011, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 25.10.2011, Qupperneq 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2011 Ekki man ég hvað það erlangt síðan Ívar Páll félagiminn benti mér á lög eftirunglingsstúlku á rokk.is. Stúlkan, Lovísa Elísabet Sigrún- ardóttir, sté svo fram sem fullmótaður listamaður undir listamannsnafninu Lay Low á plötunni Please Don’t Hate Me fyrir fimm ár- um. Tónlistin var kántrískotin þjóða- lagatónlist ættuð frá miðvesturríkjum Bandaríkjanna, lögin lipurlega samin, enskir textarnir ungæðislegir, en beitt- ir og iðulega hnyttnir. Fátt fer slíkri tónlist betur en dep- urð, það er við hæfi að mjúklega sé sungið um ástir og beisk örlög, og á nýrri plötu er Lovísa enn við sama hey- garðshorn í textum, þó að hún sé ekki lengur að syngja eigin orð, heldur ljóð eftir íslenskar konur: Valborgu Bents- dóttur, Margréti Jónsdóttur, Huldu, Hugrúnu, Sigurlaugu Guðmunds- dóttur, Guðrúnu Magnúsdóttur, Þór- hildi Sveinsdóttur, Evu Hjálm- arsdóttur, og Undínu, en Lovísa á reyndar einn texta sjálf. Það er skiljanlegt að ungir tónlist- armenn taki upp á því að syngja á enskri tungu, enda tónlistaráhrif sótt þangað alla jafna. Enginn ætti heldur að láta það aftra sér frá því að hlusta á tónlist á hvaða máli sem er; það skiptir ekki alltaf öllu að skilja um hvað er sungið og stundum er betra að skilja það ekki. Að því sögðu þá nær ekkert eins beint til manns og móðurmálið, það tungumál sem fléttað er saman við tilfinningar okkar og upplifun á svo djúpstæðan hátt að ekkert annað tungumál kemst þar nálægt sama hversu vel maður kann það. Í því ljósi þykir mér á stundum sem ég sé að kynnast Lovísu upp á nýtt á þessari plötu, að hún syngi af næmi sem ég ekki vissi að hún ætti til og sýni aðdáunarverða dýpt í túlkun sinni á treganum í ljóðunum; ekki dimmum trega, heldur góðlátlegum, eins og hún sé að segja: Víst er hlutskipti okkar erf- itt en það er líka gleðilegt. Dæmi um það er til að mynda í laginu Vonin þar sem depurð drýpur af hverju orði: „Hún veit að enginn mun bíða þess bætur / ef holklaki leggst við hjarta- rætur“, en síðan hlánar; lagið leysist upp í vatnsklið og tregafullt klarínett og hrekkur svo af stað aftur þegar klakinn rennur „með vori og söng í vængjablaki“. Skemmtilega og smekk- lega gert. Útsetningar á plötunni eru talsvert frábrugðnar því sem maður hefur áður heyrt með Lovísu, en þær eru líka í anda hennar, í raun rökrétt framhald á því sem hún hefur verið að gera eins og heyrðist vel á stórskemmtilegum tón- leikum hennar í Hofi á laugardaginn, þar sem hún fór á kostum með hljóm- sveit sinni hvort sem það var í gömlum lögum eða nýju. Kvöldið í skógi var þannig frábærlega skemmtilegt með sínum tölvuinngangi og dimmum rödd- um í viðlaginu, Brostinn strengur líka vel heppnaður og lagið sem Lovísa samdi til móður sinnar sýnir að hún er ekki síðri textasmiður á íslensku en ensku. Hápunktur tónleikanna var svo frábært lokalag skífunnar, Sorgin, með þessum ljóðlínum Undínu: „Að gleði- boði geng ég / þar glymur kætin hátt. / Þá get ég líka hlegið svo enginn vita má / hvað hjarta mínu svíður / hvað harm- ur minn er sár / hvað höfði mínu þrengja hin óburtrunnu tár“. Þessi plata Lovísu Lay Low El- ísabetardóttur er framúrskarandi verk, tvímælalaust það besta sem hún hefur gert hingað til – þær raðast inn á topp- listann plötur ársins. Mjúklega sungið um ástir og örlög Morgunblaðið/Ómar Framúrskarandi Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, Lay Low, sýnir aðdáun- arverða dýpt í túlkun sinni á trega á Brotnum streng. Brostinn strengur bbbbm Eftir Lay Low. Lög eftir hana og einn texti, en aðrir textar eru ljóð eftir ís- lenskar skáldkonur. Record Records gefur út. ÁRNI MATTHÍASSON TÓNLIST  Óðríkur Algaula, söngvakeppni MH, fór fram á föstudaginn. Vakti framkoma nokkurra tónlistar- manna nokkra athygli, sérstaklega fyrir texta, og sá einn dómenda, Unnsteinn Manuel Stefánsson, sig knúinn til að tjá sig um ósköpin á fésbókarsíðu sinni. Færslan er eftirfarandi: „Það er alveg ljóst að Menntaskólinn við Hamrahlíð þarf að fara að bjóða upp á Feminisma 103 ásamt Tónsmíðum 103, eftir lagasmíðakeppni gærkvöldsins. Að- eins ein stelpa tók þátt en annars fjölluðu vinsælustu lögin um blóðug lök og endaþarmsmök! Krakkarnir sem lentu í þremur efstu sætunum sýndu samt metnað og heiðarleika í sínum lögum, en það þykir kannski ekki töff lengur?“ Óðríkur Algaula veldur allnokkrum úlfaþyt  Eins og fram hefur komið hlaut Eldfjall, kvikmynd Rúnars Rún- arssonar, Gullna úlfinn á kvik- myndahátíðinni í Montréal um helgina en um aðalverðlaun hátíð- arinnar er að ræða. Eldfjall hlaut silfurverðlaun á kvikmyndahátíð- inni í Chicago í liðinni viku og þykja þessar góðu viðtökur í Norður-Ameríku lofa góðu um möguleika myndarinnar á að hljóta tilnefningu til Ósk- arsverðlauna. Landar Eldfjall Óskari á næsta ári? Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Kvikmyndafræðsla fyrir börn og unglinga hófst í Bíó Paradís 13. októ- ber sl. undir stjórn Oddnýjar Sen kvikmyndafræð- ings og stendur fram í nóvember. Bíó Paradís, Töfralampinn ehf. (fyrirtæki Oddnýjar) og Reykjavíkurborg standa saman að þessu verkefni en tilgangurinn er að fræða grunn- skólabörn um kvikmyndir, gefa þeim möguleika á að kynnast myndum sem hlotið hafa alþjóðlega gæða- stimpla og hafa skapað sér sess inn- an kvikmyndasögunnar. Meðal þeirra kvikmynda sem börnin horfa á og brjóta til mergjar eru Gullæðið eftir Chaplin, Cinema Paradiso eftir Guiseppe Tornatore, Fucking Åmål eftir Lukas Moodyson og Nosferatu – Eine Symphonie des Grauens eftir F.W. Murnau. Fyrsta vampírumyndin Oddný segir börnin sem sækja bíósýningarnar vera úr öllum grunn- skólum Reykjavíkur, frá 4. bekk og upp úr en skólarnir sjá sjálfir um að skrá nemendur til þátttöku. Á fimmtudaginn, 27. október, horfa börnin á Nosferatu um morguninn og segist Oddný ætla að bera hana saman við Twilight. „Twilight er rosalega vinsæl meðal barna og ung- linga og þess vegna finnst mér nauð- synlegt að þau viti hvaðan þetta kemur. Nosferatu er meistaraverk, frá tímum þýsku gullaldarinnar og algjörlega nauðsynlegt að vita að þetta er fyrsta vampírumynd allra tíma, frá árinu 1922,“ segir Oddný. Auk Nosferatu verður The Birds eft- ir Alfred Hitchcock sýnd kl. 13 og þá eldri nemum, unglingum. Þekktu ekki Chaplin – Hvernig fer fræðslan fram? „Ég sendi kennurum ítarefni svo þeir geti farið yfir þetta með nem- endum, punkta til umhugsunar. Síð- an held ég fyrirlestur á undan mynd- inni og svo eru umræður ef tími gefst til,“ svarar Oddný. Börnin mæti því ágætlega undirbúin. – Hvernig hefur þetta gengið, hafa börnin verið virk í umræðum? „Mjög svo. Það er gaman að því að fyrsta sýningin var Gullæðið eftir Chaplin og ég var með svona pall- borð í fyrra um Chaplin, tvær sýn- ingar. Þau vissu ekkert hver hann var eða hvað hann hafði gert, höfðu ekki hugmynd um hann. Ég var með dálítið ítarlegar upplýsingar um Chaplin og ævi hans, hvernig hann þróaði flækinginn, hlutverkið og um æsku hans sem var skelfileg,“ segir Oddný. Chaplin hafi þurft að betla á götum úti og foreldrar hans verið óhæfir uppalendur sökum áfeng- issýki. Hún hafi bent börnunum á hvernig hann hafi notað þessa reynslu sína í hlutverki flækingsins, utangarðsmannsins góðkunna. „Svo fannst mér svo gaman, þegar ég var með Borgarljósin á síðustu sýningu fyrir börn, þá vissu þau heilmikið, höfðu lært um Chaplin og komu með margar spurningar.“ Gæða- og lykilmyndir – Þetta hefur vantað í grunnskóla- kennslu, kvikmyndafræði? „Algjörlega, það hefur ekki verið. Þetta er alveg nýtt,“ svarar Oddný. Lengi hafi vantað góða kennslu í kvikmyndafræðum í grunnskólum hér á landi. Spurð að því hvort þessi kvikmyndafræðikennsla sé komin til að vera segist hún vonast til þess en það velti þó á styrkjum. Boðið sé upp á gæða- og lykilmyndir í kvikmynda- sögunni og börnin læri um leið um alls konar félags- og samfélagsmál sem tengist myndunum. Kvikmynd- irnar séu því skoðaðar í mjög víðu samhengi. „Við stefnum alveg pott- þétt að því að halda áfram með verk- efnið og ég er komin með hugmyndir fyrir næsta ár sem ég vona að verði. Þá langar mig t.d. að sýna börn- unum E.T. eftir Spielberg og Jaws. Eins langar mig að vera með Galdrakarlinn í Oz og fleiri Chaplin- myndir.“ Beðið um rökstuðning – Börnin þurfa líka að skrifa rit- gerðir í þessu kvikmyndanámi? „Já, það fer að vísu eftir kenn- urum en ég sendi punkta til umhugs- unar þar sem ég bið þau um að lýsa einhverjum atriðum í myndinni sem þeim þykir skemmtileg og flott en ég vil fá rökstuðning. Af hverju er þetta flott? Hvernig tengist hitt og þetta og hvernig má setja það í samhengi við samtímann og þá kannski við kvikmyndaleikstjórann sjálfan. T.d. með Fucking Åmål spurði ég hvern- ig þau myndu leysa vandann með einelti,“ segir Oddný að lokum. Frekari fróðleik um myndirnar og verkefnið má finna á bioparadis.is. Vampíran Úr kvikmynd F.W. Murnau, Nosferatu – Eine Symphonie des Grauens, frá árinu 1922. Nosferatu og börnin  Oddný Sen sér um kvikmyndafræðslu fyrir grunnskólanema í Bíó Paradís  Nýjung í grunnskólanámi  Börnin mæta undirbúin á bíósýningar Oddný Sen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.