Morgunblaðið - 25.10.2011, Page 36

Morgunblaðið - 25.10.2011, Page 36
 Tónleikaröðin Kaffi, kökur & rokk & ról fer fram í Edrúhöllinni, Efstaleiti 7, í kvöld. Í þetta skipti koma Retro Stefson og Nolo fram. Húsið verður opnað kl. 20, það er talið í á slaginu kl. 20.30 og tónleikum lýkur fyrir kl. 22. Aðgangseyrir er 500 kr. og heitt er á könnunni og nóg af kruðiríi. Retro Stefson og Nolo í Edrúhöllinni ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 298. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Stúlkan var hálfíslensk 2. Dó er hún varð undir legsteini 3. María Sigrún bakaði sína eigin … 4. Selja bústaði eftir innbrot »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Nýjasta afurð tónlistarkonunnar Lay Low, Lovísu Elísabetar Sigrún- ardóttur, er platan Brostinn strengur. Þar má finna lög hennar við ljóð ís- lenskra kvenskálda. Árni Matthíasson setti gripinn undir mælikerið. »32 Rýnt í nýjustu afurð Lay Low  Kattavinir munu halda styrkt- artónleika fyrir Kattholt í Fríkirkjunni fimmtudaginn 3. nóvember næst- komandi. Kettir eiga þungavigtarmenn að í tónlistarbrans- anum en Bubbi, Björgvin Hall- dórsson, Daníel Ágúst, Jóhanna Guðrún og Ragga Gröndal verða á meðal flytjenda. Munum eftir málleysingjunum Á miðvikudag Austan 5-13 m/s. Rigning eða súld austanlands og við suðvesturströndina, annars þurrt. Hiti 3 til 10 stig. Á fimmtudag Norðaustanátt og rigning, einkum austanlands, en þurrt á Suðvesturlandi. Hiti 2 til 7 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða rigning en slydda eða snjókoma norð- vestantil fram eftir degi. Úrkomulítið norðaustanlands síðdegis. VEÐUR „Það var líklega bara í yngri flokkunum með Þór eða jafnvel bara í hand- boltanum,“ sagði Aron Einar Gunnarsson hlæjandi, spurður að því hvenær hann skoraði síðast tvö mörk í leik en Aron skoraði tvö fyrir Cardiff um nýliðna helgi og hefur skorað þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum liðsins í ensku B- deildinni. »2 Aron í nýju hlutverki Íslendingar eiga einn full- trúa á 1. stigs úrtöku- mótinu fyrir bandarísku PGA-mótaröðina í golfi sem hefst í dag. Það er Birgir Leifur Hafþórs- son, kylfingur úr GKG. Þetta er í fyrsta skipti á ferl- inum sem Birgir Leif- ur reynir að komast inn á þessa sterkustu mótaröð heims í golf- heiminum. »3 Birgir á PGA-mótaröð- inni í fyrsta sinn „Ég er ósáttur við hvaða stefnu þjálf- aramálin hafa tekið hjá félaginu. Ég fer ekkert í grafgötur með það að ég er mótfallinn ráðningu Guðjóns og í ljósi þess tel ég eðlilegt að stíga til hliðar sem formaður,“ sagði Þorsteinn Gunn- arsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, við Morgunblaðið, en Grindvíkingar hafa ákveðið að ganga til viðræðna við Guðjón Þórðarson. »1 Formaðurinn mótfallinn ráðningu Guðjóns ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Una Sighvatsdóttir una@mbl.is „Ég gerði mér aldrei grein fyrir því að ég yrði hundrað ára, þetta kemur bara svona án þess að maður viti af því. Tíminn líður,“ segir Ingunn Júl- íusdóttir, sem er 100 ára gömul og einum degi betur, því hún fæddist hinn 24. október 1901 á Leiðólfs- stöðum í Stokkseyrarhreppi. Ingunn hefur hins vegar búið í Vestmannaeyjum stærstan hluta ævi sinnar. Þangað flutti hún árið 1936 og er í dag elsti íbúi Vest- mannaeyja. Sjálf segist hún að vísu ekki velta þeim titli mikið fyrir sér þótt hún sé meðvituð um hann, og telur það hreint ekki vera sérstakt afrek að ná háum aldri. „Ég hugsa bara ekkert um það og finnst ég ekkert þurfa þess. Þetta gerist bara af sjálfu sér og það er allt í lagi ef heilsan er sæmileg. Það er hún sem er fyrir öllu og ég hef alltaf verið góð til heilsunnar.“ Vann mikið um ævina Ingunn var gift Eiríki Jónssyni sjómanni en hann lést árið 1970. Saman áttu þau tvær dætur, þær Svanhildi og Guðrúnu, sem er látin. Afkomendahópurinn hefur vaxið jafnt og þétt því barnabörnin urðu fjögur og langömmubörnin eru orðin sex. Mörg þeirra búa í Vestmanna- eyjum og segist Ingunn því geta fylgst með þeim vaxa og dafna. Aðspurð hvað hafi leitt hana til Vestmannaeyja á sínum tíma svarar Ingunn að það sé ekki gott að segja. „Ég fór vegna vinnu og það rættist úr því. Ég hef starfað við allt mögu- legt um ævina, í frystihúsi og hey- skap og allt sem þurfti með. Ég vann alltaf mikið,“ segir Ingunn sem vann meðal annars í heil 30 ár í Vinnslu- stöð Vestmannaeyja. Það var ekki margt annað í boði en að vinna og þegar við bættist heimilishald og barnauppeldi segir Ingunn að lítill tími hafi gefist til áhugamála. „En ég hef alltaf verið mikið fyrir handavinnu og hef tekið í handavinnu fram að þessu en fer nú að hætta því. Það er mitt áhugamál og líka að lesa. Mér þótti gaman að lesa bækur þegar ég gat það en nú get ég ekki lesið lengur.“ En þótt Ingunn hafi aldrei stefnt að því að verða hundrað ára segir hún það vissulega skemmtilegt að geta haldið upp á þennan áfanga með fjölskyldu og ástvinum. Í tilefni afmælisins hélt hún í gær opið hús á dvalarheimilinu Hraunbúðum, en þangað flutti hún fyrir nokkrum ár- um og lætur vel af. Fjöldi manns leit inn og gladdist með Ingunni. Bjóst aldrei við að verða 100  Alltaf við góða heilsu en getur ekki lesið lengur Ljósmynd/Óskar Pétur 100 ára Ingunn ásamt barnabarnabörnunum Svanhildi, Helgu Sigrúnu, Páli, Önnu Margréti, Herdísi og Lilju. Ingunn hafði búið í Vestmannaeyjum í 37 ár þegar eldgos hófst í Heimaey, hinn 23. janúar 1973. Hún segir gosið vera atburð sem gleym- ist seint. „Þá flúði maður bara til lands, það var ekki gaman. En ég fór aftur strax og það mátti og flutti aftur í mitt hús, það brann ekki. Maður lagaði hjá sér smátt og smátt en það var mik- ið verk að koma öllu í lag og verður aldrei eins og var áður. Ég vildi ekki þurfa að upplifa það aftur.“ Vildi ekki upplifa slíkt aftur ELDGOSIÐ Í HEIMAEY GLEYMIST SEINT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.