Morgunblaðið - 29.10.2011, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2011
✝ SigurgeirScheving, leik-
stjóri, fæddist í
Vestmannaeyjum
8. janúar 1935.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Vest-
mannaeyja 24.
október 2011. For-
eldrar hans vor
Páll Scheving, f.
21. janúar 1904, d.
15. apríl 1990 og
Jónheiður Steingrímsdóttir
Scheving, f. 24. júlí 2007, d. 25.
desember 1974. Systur Sig-
urgeirs eru Helga Rósa Schev-
ing, f. 1930 og Margrét Schev-
ing, f. 1944.
Sigurgeir kvæntist Katrínu
Sjöfn Sigurbjörnsdóttur, f.
10.11. 1940, þau skildu. Börn
þeirra eru: 1) Heiða Björg
Scheving, f. 20.6. 1960, maki
Páll Magnús Pálsson. Börn
Heiðu Bjargar eru: a) Hrund
Scheving Sigurðardóttir, maki
Jón Helgi Sveinsson, börn
þeirra eru Selma Rún og Magn-
ús Heiðar og b) Eygló Scheving
Sigurðardóttir, hennar dóttir er
Sveinbjörg Júlía Kjartansdóttir.
2) Sigurpáll Scheving, f. 27.5.
og sótti fjölmörg námskeið bæði
heima og erlendis í leiklist og
leikstjórn. Hann starfaði sem
bílstjóri og kaupmaður fyrstu
starfsár sín en leiklistarbakt-
erían sem hann fékk með móð-
urmjólkinni fékk snemma yf-
irhöndina. Fyrsta hlutverk hans
var fyrir Leikfélag Vest-
mannaeyja 1949 þegar hann var
14 ára gamall. Hann lék síðan í
fjölmörgum uppfærslum og að-
allega hjá Leikfélagi Vest-
mannaeyja. Einnig lék hann í
kvikmyndum og aðstoðaði við
leikstjórn þeirra. Seinna var
það fyrst og fremst leikstjórn
sem átti hug hans allan. Á leik-
stjóraferli sínum setti hann á
svið yfir 60 leikverk. Þar með
talin frumsamin verk og verk
samin í félagi við aðra. Á sumr-
in starfaði hann við kvikmynda-
sýningar bæði leiknar myndir
og heimildarmyndir um Vest-
mannaeyjar og eldgosið í Vest-
mannaeyjum.
Eftir að Sigurgeir kynnist
eftirlifandi eiginkonu sinni
starfaði hann ásamt henni við
eigið fyrirtæki, Eyjaferðir, sem
sérhæfir sig í ferðamannaþjón-
ustu.
Útför Sigurgeirs fer fram frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum
í dag, 29. október 2011, og hefst
athöfnin kl. 11.
1964, maki Eva
María Jónsdóttir.
Börn Sigurpáls eru
Egill Breki Schev-
ing, Hrafnkatla
Scheving, Kolfinna
Scheving, barn Sig-
urpáls og Evu er
Sigríður Scheving.
Börn Evu eru Matt-
hildur, Júlía og
Sigrún Ósk-
arsdætur. Fyrir
átti hann Bylgju Scheving, f.
10.11. 1956. Hennar börn eru: a)
Nína Dögg Filippusdóttir, maki
Gísli Örn Garðarsson, barn
þeirra er Rakel María og b)
Andri Snær Helgason.
Sigurgeir giftist eftirlifandi
eiginkonu sinni, Ruth Barböru
Zohlen, f. 29.3. 1948, 17.11.
2001. Börn hennar eru Þór
Friðriksson, maki Sandra Mjöll
Jónsdóttir og Sólrún Barbara
Friðriksdóttir, maki Rúnar
Kristinn Rúnarsson.
Sigurgeir ólst upp á Hjalla í
Vestmannaeyjum. Hann tók
landspróf frá Héraðsskólanum
að Skógum og samvinnuskóla-
próf frá Bifröst. Hann fór í
Leiklistarskóla Ævars Kvaran
Elsku pabbi.
Það eru blendnar tilfinningar
sem bærast í okkur. Sorg vegna
þess að þú hefur kvatt okkur í
síðasta skipti í þessu jarðlífi og
léttir yfir því að þú þarft ekki
meira að þjást. Það var átak-
anlegt að horfa upp á mann eins
og þig sem alltaf hefur geislað
af orku og lífskrafti, gefast upp
fyrir einhverju. Það varð þá líka
að vera eitthvað sem mannlegur
máttur ræður ekki við, ólækn-
andi sjúkdómur.
Þú varst fæddur sama dag og
Elvis Presley, báðir byrjuðuð
þið ykkar starfsferil sem vöru-
bílstjórar, báðir voru söngvarar
og báðir misnotuðuð þið áfengi.
En þar skilur á milli þín, pabbi,
og Presleys því þú sigraðir í
baráttunni við Bakkus og jú
hann gaf út fleiri plötur en þín
rödd lifði lengur.
Þú varst listamaður og varðst
þeirrar ánægju aðnjótandi að fá
að starfa við það sem þér þótti
skemmtilegast í lífinu, leiklist.
Þú lékst í fjölmörgum leikritum
og sást nokkrum sinnum á hvíta
tjaldinu. Þú settir á svið 60 leik-
verk og sum þeirra samdir þú
sjálfur. Okkur er til efs að nokk-
ur annar Íslendingur hafi afrek-
að slíkt.
Þú varst alltaf að leika og
leikstýra, alls staðar og alltaf.
Okkur er báðum mjög minnis-
stætt þegar þú lést okkur
syngja, með leikrænum tilburð-
um, Hey Jude eftir Bítlana, aft-
ur og aftur eitt kvöldið. Það var
svo gaman hjá okkur. Við systk-
inin vorum þá 5 og 9 ára og
skildum ekki texta við sungum
bara og lærðum lagið og orðin
en í dag setjum við okkar skiln-
ing í textann. Hann fjallar um
það að ef okkur finnst eitthvað
sorglegt, erfitt eða óyfirstígan-
legt hefur maður val um að gera
ástandið betra, betra, betra,
betra, betra. Pabbi, þá gerðum
við okkur ekki grein fyrir því að
þú værir að kenna okkur að já-
kvæðni og gleði bæri okkur
lengra en neikvæðni.
Eitt af því besta sem hefur
hent þig, fyrir utan auðvitað að
eiga okkur þrjú börnin þín, er
hún Ruth. Ástin og vináttan
sem hefur einkennt samband
ykkar er til eftirbreytni. Sam-
band ykkar hafði ekki staðið í
marga mánuði þegar hún
stimplaði sig inn í Leikfélag
Vestmannaeyja. Þetta voru
fyrstu jólin ykkar og Ruth var
að lesa eina af nýju jólabók-
unum fyrir Sólrúnu dóttur sína,
þá kviknaði hugmynd, að búa til
leikgerð upp úr Latabæ og
hvað, auðvitað varð það leikrit.
Það voru litlu hlutirnir sem
engin annar sá en þú tókst eftir,
þú sást kómíkina í öllum hlut-
um. Matreiddir síðan fyrir okk-
ur hin á þinn hátt og úr varð oft
óborganlegur farsi. Gleði og
kraftur var það sem einkenndi
þig ásamt gríðarlega sterkri
réttlætiskennd. Þú varst fylginn
þér og ef þú byrjaðir á ein-
hverju var það klárað. Þú máttir
ekkert aumt sjá og varst mikill
dýravinur. Það var ótrúlega
gaman að koma með börnin til
ykkar Ruthar, heimilið og garð-
urinn var alltaf fullur af dýrum.
Elsku pabbi, það verður erfitt
að hugsa sér heiminn án þín.
Þakka þér fyrir lífið sem þú
gafst okkur og gleðina sem þú
veittir okkur.
Heiða Björg og Sigurpáll.
Sigurgeir, eða Geiri frændi
eins og ég kallaði hann, er nú
farinn frá okkur eftir harða bar-
áttu við erfið veikindi. Það er
aldrei auðvelt að kveðja ástvin
hið hinsta sinn en þrátt fyrir
það get ég ekki annað en brosað
þegar ég hugsa til elsku frænda
míns. Hann var snillingur með
meiru og aldrei langt í grínið.
Mér fannst ég alltaf eiga einn
afa í Eyjum sem var mér líka
mjög góður vinur.
Heimsókn til Geira frænda og
Ruth hefur verið fastur liður í
ferðum mínum til Eyja í gegn-
um árin. Það var svo gott að
sitja á sófanum og spjalla um
daginn og veginn og allt milli
himins og jarðar. Geira fannst
heldur ekki leiðinlegt að taka
rölt um garðinn sem hann var
svo stoltur af og kynna mig fyr-
ir ýmsum fjölskyldumeðlimum
sem dvöldu í fuglabúri sem
hann hafði útbúið við eina hús-
hliðina. Geiri minn, elsku frændi
og vinur. Ég kveð þig með sökn-
uði en hlátri í hjarta vegna þess
að þannig varst þú.
Ástarkveðjur til Ruth og allra
þeirra sem sakna þín.
Þessi orð Mugison við uppá-
haldslagið mitt í dag, sem lætur
mér alltaf líða svo vel, langar
mig til að verði mín lokaorð. Ég
vona að núna líði þér líka vel.
Það er andvökubjart,
himinn kvöldsólarskart.
Finnum læk, litla laut,
tínum grös, sjóðum graut.
Stingum af í spegilsléttan fjörð,
stingum af, smá fjölskylduhjörð.
Senn fjúka barnaár, upp í loft,
út á sjó.
Verðmæt gleðitár.
Elliró, elliró.
Íris Þórarinsdóttir.
Hann Geiri frændi hefur
kvatt jarðvistina. Þegar ég sest
niður til að rita kveðjuorð til
frænda míns og vinar, koma
einkum tvær myndir upp í hug-
ann. Í fyrri myndinni erum við
strákarnir, ég, Viktor og Sig-
urpáll að leika okkur í fótbolta í
garðinum hjá afa og ömmu á
Hjalla. Það var alltaf gaman og
við gátum steingleymt okkur í
sparkinu. Ekki þótti öllum jafn
gaman að þessari iðju okkar,
sérstaklega var hjónunum í
næsta húsi, Ísleiki og Elín-
borgu, illa við íþróttastarfið.
Það var kannski eðlilegt, þau
áttu huggulegan garð og rækt-
uðu falleg blóm.
Vörubíll rennir í hlaðið og
Geiri frændi stekkur úr bílnum
og blandar sér í leikinn hjá okk-
ur strákunum af fullum krafti,
okkur til mikillar ánægju. Allt í
einu sparkar Geiri boltanum,
óskiljanlega klaufalega, inn í
garðinn hjá Ísa og hleypur svo
fyrir húshornið í felur. Það var
eins og við manninn mælt, við
gersamlega frusum, því Ísi og
garðurinn voru beintengdir,
hann kom alltaf strax út þegar
þetta gerðist með stóran hníf,
tók boltann í aðra höndina og
hélt hnífnum hátt á lofti í hinni
og sagði grafalvarlegur: „Næst
sker ég boltann.“ Við komum
aldrei upp orði í þessum kring-
umstæðum. Það sem var skrítið
við þetta var að þegar ég leit á
Geira, þá ljómaði hann allur,
það var heilmikill glettnisglampi
í augunum á honum. Honum
fannst þetta bara æðislega gam-
an. Geiri frændi minn var stór-
skemmtilegur æringi, sem ég
kunni að meta.
Í hinni myndinni er ég sendur
með mat til hans niður í Land-
lyst, þar sem hann bjó. Þar
mætti mér annar maður. Hann
situr, það er skrítin lykt af hon-
um og augun eru brostin, dimm
og þung, á bak við þau eitthvað
sem mér líkar ekki. Málrómur-
inn sólvana og særður. Ég er
feginn þegar ég slepp út. Þarna
var frændi minn á valdi kon-
ungsins sem bara blekkir, ekk-
ert gefur, bara tekur. Hann tók
mikið af frænda mínum. Geiri
yfirgaf óvin sinn og gekk úr hirð
þessa konungs seinna í lífinu,
studdur af góðri konu.
Það er því óhætt að segja að í
lífi frænda míns hafi skipst á
skin og skúrir. Geiri vann
marga sigra, var ástríðufullur
ákafamaður, sem lét verkin tala.
Hann var pólitískur og fylginn
sér, ég fylgdist með honum af
aðdáun þegar hann á dögunum
gekk í fyrirtæki í Eyjum og afl-
aði stuðnings við flutning á
sorpbrennslunni, fársjúkur af
krabbameini. Við höfum alltaf
verið góðir vinir, sú vinátta efld-
ist verulega síðasta áratuginn
eftir að ég fluttist aftur í Eyj-
arnar. Við áttum sömu hugð-
arefnin og ræddum þau.
Ég þakka Geira allar
skemmtilegu stundirnar, hvatn-
inguna, vináttuna, hlýjuna og
alla gæskuna gagnvart börnun-
um mínum. Frænda minn kveð
ég með söknuði.
Elsku Rut. Ég óska þess
heitt að friður og öll fegurð lífs-
ins fylgi þér framtíðarveginn.
Til þess hefur þú unnið. Í
brjósti fárra slær fegurra
hjarta. Bylgja, Heiða, Sigurpáll,
Þór og Sólrún, Guð blessi ykkur
öll.
Páll Scheving Ingvarsson.
Góður drengur hefur yfirgef-
ið þetta jarðlíf og haldið út á
móðuna miklu. Ég vil minnast
hans með nokkrum orðum. Ég
kynntist Sigurgeir Scheving ár-
ið 1989 og ég tilheyrði fjöl-
skyldu hans í hartnær tvo ára-
tugi. Ég hitti hann við mörg
tækifæri og spjallaði við hann
um menn og málefni; um erfiða
sem auðvelda fleti tilverunnar.
Mér fannst jafnan gott að tala
við Sigurgeir. Víst er að glað-
værari menn þekkti ég fáa.
Minnisstæð eru fjölskyldu-
boðin með Sigurgeiri, börnum
hans og barnabörnum. Í þessum
boðum var mikið hlegið og Sig-
urgeir var hrókur alls fagnaðar
og ávallt til í tuskið í gríni og
glensi. Sigurgeir var lands-
þekktur leikstjóri og enginn
skortur var á leikhæfileikum í
fjölskyldu hans. Fjölskyldufund-
ir með honum voru því tilhlökk-
unarefni og oft leið mér eins og
á bestu gamanleiksýningu þegar
brugðið var á leik í frjálsum
spuna um ýmsar spaugilegar
hliðar tilverunnar. Sigurgeir var
höfðingi heim að sækja og ég
gleymi aldrei ferðum á þjóðhá-
tíð þar sem gist var á heimili
Sigurgeirs og komið saman með
fjölskyldu hans á heimilinu, í
brekkunni eða í hvítu tjaldi í
Herjólfsdal.
Nú hefur Sigurgeir Scheving
kvatt heiminn eftir viðburðaríka
ævi. Ég á góðar minningar um
góðan dreng og ræktarsaman
afa í Eyjum. Þegar ég hugsa til
Sigurgeirs er stutt í brosið hjá
mér. Það hefði honum líklega
ekki þótt verra.
Samúðarkveðjur sendi ég eig-
inkonu hans, börnum og barna-
börnum.
Helgi Þór Ingason.
Kveðja frá Leikfélagi
Vestmannaeyja
Sigurgeir Scheving og er nú
fallinn frá, 76 ára að aldri.
Sigurgeir er okkur öllum vel
þekktur, þá helst fyrir atorku
sína og hæfileika á sviði leik-
listar, söngs og menningar.
Hann var ör og orkumikill mað-
ur sem nýttist honum vel í leik
og starfi. 14 ára steig hann fyrst
á svið með Leikfélagi Vest-
mannaeyja á kvöldskemmtun fé-
lagins árið 1949. Var það upp-
hafið að hartnær 60 ára ferli
Sigurgeirs hjá félaginu og víðar.
Sigurgeir átti ekki langt að
sækja hæfileikana. Móðir hans,
Jónheiður Scheving, var Vesta-
mannaeyingum vel kunn hjá
Leikfélaginu og léku þau Sig-
urgeir saman í einu verki árið
1955, Fjalla-Eyvindi. Það má
því í raun segja að Sigurgeir
hafi orðið leiklistinni að bráð því
á ferlinum lék hann hátt í 40
persónur í hinum ýmsu leik-
verkum. Þekktastur var hann
fyrir hlutverk Jónatans í verk-
inu Hart í bak en að sögn bæj-
arbúa átti hann skilinn Óskarinn
fyrir þann leik. Hann var einnig
góður söngvari og muna enn
margir eftir söng hans „Ég vil
fá mér kærustu“ úr verkinu
Ævintýri á gönguför frá árinu
1961. Þótti Sigurgeiri afar vænt
um það lag alla tíð.
Sigurgeir leikstýrði sínu
fyrsta verki árið 1976 en það var
verkið Klerkar í klípu. Var það
upphafið að afar farsælum ferli
hans sem leikstjóra en hann
leikstýrði einum 60 leikverkum
um ævina, bæði hér heima og
um allt land. Að sögn vina úr
Leikfélaginu hafði Sigurgeir
ótæmandi orku, var leiðbeinandi
og hvetjandi í alla staði og var
sérstaklega laginn við að finna
rétta fólkið í stöðurnar. Jafnvel
þó hann þyrfti að leita að fólki
utan úr bæ. Væri engu logið
þegar sagt væri: „Sigurgeir var
einn besti leikstjóri sem starfað
hefur með Leikfélaginu í gegn-
um tíðina.“ Hann setti upp og
samdi fyrstu leikgerðina af
Latabæ árið 1995 og var það
upphafið að því stóra ævintýri
sem úr varð með Latabæ sem
leikriti og síðar sjónvarpsþætti.
Það kom í hlut Hrundar Schev-
ing, barnabarns Sigurgeirs, að
verða fyrsti lifandi Íþróttaálf-
urinn. Þykir það miður hve litla
viðurkenningu Sigurgeir hlaut
fyrir þátt sinn í þessu ævintýri
en þeir sem til þekkja geta verið
stoltir af þeim uppruna.
Síðasta verk Sigurgeirs var
Tyrkjaránið árið 2007 en því
leikstýrði hann ásamt því að
leika þar lítið hlutverk. Þá voru
liðin nákvæmlega 58 ár frá því
að hann hóf að starfa með félag-
inu. Var Sigurgeir gerður að
heiðursfélaga Leikfélags Vest-
mannaeyja árið 2010 á 100 ára
afmæli félagsins.
Ég kveð þig, hugann heillar minning
blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Leikfélag Vestmannaeyja
kveður nú þennan einstaka fé-
laga sem hefur snert hverja ein-
ustu fjöl í starfi þess í öll þessi
ár. Með söknuði og þökk fyrir
framlag hans til leiklistar í
Vestmannaeyjum vottum við
fjölskyldu hans og vinum hjart-
ans samúð. Guð blessi góðan fé-
laga.
F.h. Leikfélags Vestmanna-
eyja,
Birkir Thór Högnason.
Sigurgeir Scheving
✝
Hjartkær föðursystir mín, mágkona og
afasystir,
HILDUR THORARENSEN,
áður til heimilis
Hagamel 42,
Reykjavík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
laugardaginn 22. október.
Jarðarförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 1. nóvember
kl. 13.00.
Ingibjörg Thorarensen, Örvar Birkir Eiríksson,
Þóra Ölversdóttir,
Þórey Inga og Lovísa Rán.
✝
Okkar ástkæra
SIGRÍÐUR JÓHANNA ANDRÉSDÓTTIR,
Hanna Andrésar frá Siglufirði,
lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, miðvikudaginn
26. október.
Andrés Ingi Vigfússon, Þórdís S. Mósesdóttir,
Sigurjón Vigfússon, Sigurlaug Jóhannsdóttir,
Hinrik Vigfússon,
Rannveig Vigfúsdóttir, Eyjólfur R. Sigurðsson,
Guðleif Hrefna Vigfúsdóttir.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir og tengda-
móðir,
BRYNJA KRISTÍN LÁRUSDÓTTIR,
Maríubaug 63,
lést miðvikudaginn 26. október á Landspítala
Fossvogi.
Útför auglýst síðar.
Júlíus Einarsson,
Lárus Viðar Sveinbjörnsson,
Einar Atli Júlíusson, Benedikta Eik,
Kristín Alda Júlíusdóttir,
Július Ármann Júlíusson, Ingibjörg Rannveig Kristjánsd.,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur bróðir okkar, mágur,
sambýlismaður og frændi,
PÁLL ÓSKARSSON,
Holti,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
miðvikudaginn 26. október.
Minningarathöfn fer fram miðvikudaginn
2. nóvember kl. 14:00 í Grensáskirkju.
Útförin fer fram laugardaginn 5. nóvember kl. 14:00 frá
Fáskrúðsfjarðarkirkju.
Arndís Óskarsdóttir,
Jóna Björg Óskarsdóttir, Víglundur Gunnarsson,
Sonja Berg, Sverrir Sigurðsson,
Sigríður Ólafía Sveinsdóttir
og aðrir aðstandendur.