Líf og list - 01.11.1950, Blaðsíða 9

Líf og list - 01.11.1950, Blaðsíða 9
a<5 vafstra við hænsnin sín, og hann fekur þau öll inn í hús. Með hon- urn er þc kona hans, og hænsnin kannast vl við hana, því að hún er vön ; lúrða um þau; gefa þeim kornið, hreinsa til í stíunum, búa um eggjakassana og annað þess Itáttar. En nú dylst hænsnunum ekki, að það er Anton Sjdanov sjálfur sem tekið hefur stjórnina. Hann baðar ut höndunum og hnappar þeim sanian, en konan gengur í humátt a eftir honum og gerir ekki annað en brciða út svuntuna, þá er ein- hver unginn ætlar að skjótast út ur hópnum. Á milli þess ber liún svuntuhornið upp að augunum, etns og hún sé hrygg og berjist við grátinn. Alengdar standa börn Sjdanovs- hjónanna með fingurna uppi í sér °g stara stórurn hnöttóttum aug- um sínum á það tiltæki foreldr- anna að reka hænsnin í hús um há- hjartan daginn. Börnunum hefur Verið bannað að koma að hænsna- húsinu, en þau geta ekki á sér setið að skyggnast þangað í laumi. Allt í einu sjá þau, hvar einn haninn flýgur höfuðlaus niður varpann. Faðir þcirra stendur úti fyrir hænsnahúsinu með öxi í hendinni, og nú kemur móðir þeirra með annan fugl út úr hús- ‘uu, og hún krýpur nteð hann við höggstokkinn. Börnin sjá öxina hera við loft og ósjálfrátt loka þau augunum. En þegar þau opna aug- Un aftur, sjá þau hvar annar höf- uðlaus fugl veltur með vængja- slætti niður varpann. Eörnin horfa á alla athöfnina, unz flötin fram undan hænsnahús- uiu er orðin þakin hauslausum hænsnum, en húsið tæmt. Þau horfa nteð hryggð á þennan valköst °g þeirn sortnar fyrir augum er þau sjá blóðidrifið grasið. Einstaka íugl blakar enn þá Væng, hreyfir fót eða reigir blóð- ugan strjúpa. Það er eins og lífið ætli aldrei að fjara út úr þessurn höfuðlausu búkurn — enda voru þetta lífsglöð hænsni. Skömm'u síðar leggur Anton Sjdanov af stað með liænsnin sín inn í borgina, því að þau eiga að fara í steik handa herráðinu og æðstu stjórnmálamönnum þjóð- anna í kvöld, þá er þeir liafa gert út um örlög heimsins. Og fyrir miðaftan er ráðstefn- unni lokið, og hin mikilsverða á- kvörðun herráðsins og æðstu stjórnmálamanna þjóðanna kunn- gerð gervöllum heiminum: Stríð! Þannig liljóðar boðskapurinn. Þessu var ekki lengi lokið af, enda var samkomulagið á ráðstefn- unni einstaklega gott. Þar ríkti ó- venju mikil eining og friður! Ráð- stefnan stóð ekki öllu lengur yfir en rneðan líftóran var að fjara úr síðustu hænsnunum, sem höggvin voru í varpanum á búgarðinum hans Antons Sjdanov. Það munaði líka minnstu að veitingamaðurinn í stóra, skrautlega hótelinu, þar sem herráð og stjórnmálamennirn- ir höfðu pantað kvöldverð, yrði sér til skammar fyrir það, að vera of síðbúinn með matinn. Þær voru svo skolli seigar sumar hænurnar frá lionum Anton Sjdanov, að þær urðu ekki mjúkar, hversu lengi sem þær voru steiktar. Loks er kvöldverðurinn þó bor- inn í viðhafnar-borðsalinn, og her- ráðið og æðstu stjórnmálamenn þjóðanna setjast að snæðingi. Þeir gófla hænsnasteikina með hæ- verskri ró; krytja bita fyrii' bita hænsnin lians Antons, sem spók- uðu sig svo glöð og ánægð í hlað- varpanum í morgun og áttu sér einskis ills von — en lirukku aðeins ónotalega við með hrollköldum beyg, þá er flugvélin þaut yfir bú- garðinn rétt yfir höfðum þeirra. Nú liggja þau hér á stórum fötum, umflotin brúnni sósu, og stór- menni heimsins hakka þau í sig. En herráð heimsins og æðstu stjornmálamenn þjóðanna hafa nú um sitt livað að hugsa, annað en hænsnin, sem þeir eru að borða og fórnað var þeirra vegna. Sjálfir lial'a þeir nú undirbúið og fyrir- skipað stærri blóðfórn — til þess að frelsa heiminn! Þeir eru sjálfum sér þakklátir, og liugsa um það eitt á þessari stundu, að þeir hafi lokið góðu dagsverki — komið miklu í verk. Og nú njóta þeir á eftir í bróðerni ljúffengrar hænsnasteikar. Þeir velta kjötinu upp úr sósunni, bæta grænmeti á diskana og strá ofurlitlu af pipar og salti yfir. Svo skála þeir í freyð- andi kampavíni, með Ijúfmann- legt bros á vör og góðlátlega glampa í augunum. Eftir kvöldverðinn situr herráð- ið og stjórnmálamennirnir lengi að sumbli í stóra, skrautlega hótelinu og skeggræða um framtíðarhorf- urnar. Og þeir eru bjartsýnir. Nú fyrst sjá þcir hilla uppi dags- brún nýrra tírna, bjartari og feg- urri tíma, en nokkru sinni hafa komið á þessari jörð. Þetta stríð, sem þeir hafa nú komið af stað með löngu og ströngu undirbún- ingsstarfi, og af mikil'i eljusemi og þrautseigju, á að skera fyrir rætur allra meinsemda þjóðfélag- anna; byggja grunn að nýju niust- eri friðar og velsældar — eilífum friði . . . Húrra! . . . Húrra! Vínglösin eru tæmd í botn, og stórmenni þjóðanna ganga til náða, glöð og ánægð í hjarta sínu, og með sjálfsánægjuna geislandi af ásjónunni, eins og menn, scnt eru þess fullvissir, að þeir hafi gert rétt — það réttasta af öllu réttu. Þeir njóta góðra drauma. Þessa sömu nótt yfirgefa milljón- Frh. á bls. 11. LÍF og LIST 9

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.