Líf og list - 01.11.1950, Blaðsíða 17

Líf og list - 01.11.1950, Blaðsíða 17
þeim að finna þá persónu, sem þeir eiga að skapa, gera þeim ljósa stöðu þeirra í leiknum og tíð- aranda þann, sem þeir lifa í. Og hann má ekki linna, fyrr en hann hefur með þolinmæði og þraut- segju náð lýtalausum árangri. Þjóðleikhús íslendinga á að bera með sér sama hljómog„Nationalte- ater“ Norðurlanda. Og það er á valdi og ábyrgð leikstjóra vorra, hvort við föllum niður úr því áliti og Þjóðleikhús vort verði talið 2. eða 3. flokks. Og úr því höfum við af litlu að státa í því efni. Hita og þunga leiksins báru Al- freð AncLrésson og Inga Þórðar- dóttir sem hjón í tvennum skiln- ingi. Báru þau hjón sigurinn heim með prýði. í tiltölulega hröðum leik sem þessurn, kom Alfreð til- svörum sínum svo að segja alltaf á framfæri til áheyrenda. Leikur hans og tilsvör voru ágætlega „markeruð". Á skilning hans og meðferð alla varð yfirleitt ekki betur kosið. Að vísu var hér ekki um „karakter“ hlutverk að ræða, eins og einhverjir hafa kallað það, pabbi gamli var of einhliða og ó- samsettur til þess. En „stílisering" hans var í anda hlutverksins og leikur hans list á alþjóðamæli- kvarða. Inga Þórðardóttir var yndislega skemmtileg sem „mamma". Með þessu hlutverki álít ég Ingu hafa unnið sinn stærsta sigur a. m. k. af þeim hlutverkum sem ég hef séð hana í. Hér sýndi Inga, að hún býr yfir ómenguðum leikhæfileikum, sem náð hafa fullum þroska. Eunnátta og skilningur héldust hjá henni í hendur við fjölhæfni, næmleik og eðlisgróið lífsfjör. En ég verð því miður að bæta hér við leiðindaklausu. Það var oft erfitt að heyra, það sem hún sagði. Burð- urþol raddarinnar er of lítið í svona stóru leikhúsi. Jafnvel góð- um leikara, og hún er, ætti að vera hægur vandi að bæta úr þessu. Hún þarf bókstaflega að gefa sér tíma til að þjálfa radd- og taltæki, auðvitað með réttri öndunarað- ferð. Uppskriftin er þessi: Einstak- ir sérhljóðar fimm mínútur á dag, einstakir samhljóðar tíu míirútur á dag. Og halda æfingarnar út a. m. k. í tvo rnánuði! Árangurinn verður meira hljómmagn og minna erfiði. Frumhöfund verksins, Clarence yngra á unga aldri, lék Stemdór Hjörleifsson. Steindór er útskrif- aður úr lcikskóla Lárusar Pálsson- ar, en hefur ekki stunclað lciklist- arnám erlendis. Hlutverkið er að sjáll'sögðu nokkuð erfitt, þar sem hann á að leika ungling undir tví- tugsaldri, sem er undir föðuraga, en þó um leið stúdent, sem á að fara á Yale-háskólann og ætti því kröfu til nokkurs sjálfræðis. Þar við bætist, að hann er allsendis ó- læs á stafróf ástarinnar, þegar hann töfrast af ungri og laglegri stúlku. Steindór er á réttri leið sem leik- ari. Hann temur sér enga kæki eða „tricks,“ en lifir sig vel inn í hlut- verkið. Steindór er hann sjálfur og enginn annar, Hann getur því LÍF 0g LIST 17

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.