Líf og list - 01.11.1950, Blaðsíða 15

Líf og list - 01.11.1950, Blaðsíða 15
LEIKLIST ÞJÓÐLEIKHÚSIÐí - PABBI — Leikur í þremur þáttum eftir Hovvard Lindsay og Russel Crouse. Eins og í leikskránni segir, er gamanleikurinn „Pabbi“ saminn upp úr einni bók ameríska rithöf- undarins Clarence Day um endur- niinningar sínar í föðurgarði. Hér er því um „sannsögulegt" efni að ræða, enda er nöfnum ekki breytt, svo að „Pabbi“ er faðir höfundar, heitir líka sama nafni, og Clarence Day, sjálfur höfundur endurminn- inganna, er Clarence ungi í leik- ritinu, leikinn af Steindóri Hjör- Pabbi (Alfreð Andrésson) lcifss. Síðan liafa fjallað um þetta tveir slyngir leikhúsmenn, leikar- inn og leikritahöfundurinn Lind- say og leikstjórinn og leikritahöf- undurinn Crouse. Það er nauðsynlegt, að gera sér allar aðstæður ljósar, áður en far- ið er að dæma leik. Þetta, sem nú þegar er upplýst, gefur leikritinu bæði kosti sína og galla. Það þykir kannske djarft af íslenzkum leik- dómara að tala um galla á leikriti, sem hefur verið sýnt í átta ár sam- fleytt í þeirri miklu borg New York eða 3183 sinnum samtals! En leikrit í sýningu er slungið mörgum þáttum og líklega fleiri en nokknr önnur list. Þó að gall- ar séu á, geta kostirnir og hljóm- grunnurinn fyrir hylli áhorfenda vegið langsamlega upp á móti göll- unum. Og þá er bezt að byrja á þeim. Leikritið er í sjálfu sér ekki leikræns eðlis í þeim skilningi, að jtar sé fylgt öllum þeim flóknu reglum, sem góð leikrit eru sniðin eftir. Það segir sig enda sjálft, þar sem það er samið upp úr bók, sem er rituð a. m. k. að miklu leyti sem endurminningar. Sama gildir um leikrit samin úr sögum. Hið upp- runalega form þvingar leikritahöf- undinn til að fara út fyrir takmörk hins leikræna í strangasta skilningi orðsins. Beztu leikritin eru hugs- uð sem leikrit þegar í upphafi. Þannig er „Óvænt heimsókn" eftir Priestley leikrænna en „Pabbi", enda þótt jvað kunni ekki að ná eins miklum vinsældum. En að- sókn og hylli fólksins fer ekki allt- af eftir réttum leikreglum. Svo að ég nefni dæmi um, hvað ég er að fara, þá snýst leikurinn „Pabbi“ ekki um neitt sérstakt efni, nema ef vera skyldi það, að „mamma“ þarf með einhverjum brögðum að láta skíra „pabba“ gamla, sem af einhverjum óútskýrðum ástæðum hefur sloppið við þessa kirkjulega athöl'n, sem út af fyrir sig kemur oss spánskt fyrir sjónir miðað við tímann jjá um aldamót og það kirkjúfélag, sem hann telur sig vera í, hina biskupalegu kirkju. En það er út af fyrir sig aukaatriði og í rauninni notað á skemmtileg- an hátt í lciknum. Þessi viðleitni Mamma (Inga Þórðai'dóttir) LÍF og LIST 15

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.