Líf og list - 01.11.1950, Blaðsíða 23
Á kaffihúsinu
Framh. af bls. 2.
eiga tilveru sína að þakka lifandi
tengslum íslenzkra menntamanna við
erlendar þjóðir og nánu sambandi
við evrópskt menntalíf á hverri öld.
Vér vorum aldrei einangraðir að þessu
leyti, jafnvel ekki á hinum mestu ein-
angrunartímum sögu vorrar. Og það er
hart, þegar hin landfræðilega einangr-
un loks er að fullu rofin og vér heyr-
um dag hvern erlendan fluggný í lofti,
að vér skulum ekki, hve fegnir sem
vér vildum, geta fengið að vita, hvað
efst er á baugi í hinum mikla erlenda
menntaheimi. Það er satt, að Banda-
ríkjamenn hafa opna lesstofu hér í
Reykjavík, og mun þar liggja frammi
ýmislegt nýrra bóka, og þetta er góðra
gjalda vert. En ekki er það okkar
dygð að þakka, og hve margir njóta
þess arna? Vér þurfum að geta keypt
útlendar bækur, valið úr þeim í bóka-
búðunum og pantað aðrar, sem oss
leikur hugur á. Annars lendum vér í
volæði, áður en langt um líður, mennt-
ir vorar kyrkjast, bæði skáldskapur
og fræði.
Vér kostum hundruð kennara til að
kenna svo til hverju mannsbarni í
landinu eitt eða fleiri erlend tungu-
mál. Til hvers? Til þess að gera fólk-
ið læst á bækur, sem bannað er að
flytja inn. Þetta virðist vera lítil hag-
speki. Ef vér erum svo djúpt sokknir
efnalega, að vér getum ekki flutt inn
bækur svo að nokkru nemi, er það
sorglegt neyðarástand. En þessu er
varla þannig farið. Vér eigum lítinn
gjaldeyri og verðum að láta nauð-
synjavörur sitja fyrir. Þetta er satt, en
bækur eru nauðsynjavara, ein hin
mesta lífsnauðsyn, næst brauði handa
börnunum og olíu handa vélunum.
Þetta þurfa gjaldeyrisyfirvöld vor að
vita og skilja. Þau verða að gefa oss
þetta daglega brauð vort, og það áður
en vér er-um orðnir að skrælingjum.
Gleðilegt sumar í vetur.
ÞAÐ er kominn vetur. Þeir fuglar,
sem sungu á síðast liðnu sumri, eru
flognir suður yfir brimótt höf, og hin
sælu blóm hvíla undir snjónum í
vetrargröf. Hinn þrúðgi gýmir kveður
stirðan óð, þar sem þögull sjófugl
þyrpist nærri brimströndinni. Aftur á
móti þrífst nú sönglíf og blómlíf prýð-
isvel inni, með söng og sögu við yl
arinblossans, þar sem góður andi býr
sér til sumar, þá frost herðir ytra og
kingir snjó. Vér óskum öllum kaffi-
hússgestum góðs andlegs sumars í vet-
ur og vonumst til að eiga með þeim
marga ánægjulega stund, unz sumri
fer að halla með vori. Gleðilegt sumar.
Húsgagnaverzlun
Austurbæjar h.f.
hefir óvallt eftirfarandi húsgögn fyrirliggjandi
og selur gegn afborgunum:
Stofuskápar, margar teg. — Bókaskápar, margar teg. —
Sófasett — Svefnsófar — Armsófar — Armstólar — Dívan-
ar — Klæðaskápar, margar teg. — Barnarúm, með eða án
dýnu — Rúmfatakassar — Barnabaðker — Barnagrindur
— Barnapúlt — Kommóður, margar teg. — Standlampar
— Vegghillur — Blómasúlur — Stofuborð — Borðstofu-
borð — Sófaborð — Spilaborð — Eldhúsborð — Útvarps-
borð — Innskotsborð — Skrifborð — Ritvélaborð — Borð-
stofustólar — Eldhússtólar, margar teg. — Garðstólar —
Garðsett — Píanóbekkir — Straubretti — Ermabretti —
Kamínur — Baðspegiar.
HÚSGAGNAVERZLUN AUSTURBÆJAR H.F.
Laugaveg 118. Símar: 4577, 5867.
Karlar, konur athugið!
Við sprautum:
Skó,
töskur,
belti,
hanzka,
hnappa, o. fl.
Höfum: Svart, hvitt, grátt, Ijósgrátt,
dökkgrœnt, Ijósgrœnt, ljósbrúnt,dökk-
brúnt, Ijósblátt, dökliblátt, drappgult,
vínrautt, gull, silfur.
MÁLARAVINNUSTOFAN VELTUSUNDI I
Sími 80945
LÍF og LIST
23