Líf og list - 01.11.1950, Blaðsíða 12

Líf og list - 01.11.1950, Blaðsíða 12
Jóhannes Sveinsson Kjarval: ISLENZKT LITASPJALD Þegar beztu hæfileikamenn okkar í mál- aralist eru sammála um að skapa þróunar- sögu fyrir íslenzkt litaspjald - mundi það fást við langvarandi kynning - það er við raunverulega spjaldsetningu á náttúrulit- um lands okkar og línum - verður varla fyrr hjer neinn sameiginlegur raunsæis- skóli í málaralist Málarar, sem hafa hæfileika í komposition, mundu innvinna eðlilegum hæfileikum sínum möguleika að njóta sín - en dagleg vinna við lit- skráning yrði verðmæti, sem er eftirsótt fágæti vegna þeirra áhrifa, sem sann- leiksgildi þessara mynda ætti að hafa. Hin sjálfsagða lausn á listhneigð iðkenda með Ijereft og liti mundi á þennan hátt skapa vel undirbyggðan og traustan skóla - sem gæti lyft íslenzkri málaralist til vegs og gengis. En við eigum listamönnum margra landa mikið að þakka. Sá tími mundi koma hjá einstöku málurum, að hið stöð- uga naturalistiska studium mundi ekki fullnægja - þegar innunnin verðmæti ein- angra frá studium yfir í composition - En þá ætti líka listaspjaldinu að vera borgið - minnsta kosti fyrir dálítinn tíma - Með þessum hugleiðingum - sem eg hygg vera reynslu góðra málara, er hægt að slá því föstu, sem oft er búið að segja, AÐ LISTIN ER VINNA Og eitt enn - sem er mjög mikið um- hugsunarefni - er hvort íslenzkir listmál- arar geti á þennan hátt skapað eðlilegan samhljóm með þeirri gróandi samtíð, sem virðist taka opnum örmum öllu því, er list kallast - Sú samtíð ætti sannarlega skilið allan trúnað frá listamanna hálfu. 12 • LÍF og LIST

x

Líf og list

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Líf og list
https://timarit.is/publication/819

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.