Líf og list - 01.04.1951, Blaðsíða 10
Það var víst í þriðja bekk. Ég tók að lesa skáld-
rit. Ég las alla þá höfunda, sem mér þótti mest
í munni að þekkja.
Ég kynntist nýjum stefnum, nýrri tækni, nýj-
um hugsunum. Ég hætti að leita að ný og dý
eins og kona, sem leitar að samlitum tölum til
að festa á flíkina, sem hún er að gera við.
Nú var list mín göfugri. Nú tjáði ég tilfinn-
ingar mannssálarinnar, eins og þær fossa fram í
ástríðumagni trylltra nautna. Ég samdi sögur um
elskendu.r og lágt kjarr, um holtasóleyjar, dögg
og vellandi spóa. Ég orti mikið um málaðar var-
ir og ávalar mjaðmir, um brjóstakreistingar og
þukl.
Ég var mikið skáld í þá daga.
Eftir g'agnfræðapróf hélt ég áfram í skólanum.
Ég var víst talinn stunda námið slælega. Mér
var sarna. Ég vissi, að ég var virðulegasta per-
sóna, sem innan skólans var. Ég var rithöfund-
ur. Ég var listamaður.
Ég m.an ennþá, þegar ég var kominn í fjórða
bekk, hvað ég fýrirleit busana. Ég gekk um
gangana. Ég sneri lófanum ofurlítið út og sló til
hendinni, og ég fann, hvernig þeir horfðu á eft-
ir mér í sljórri aðdáun. Ég fann það. Ég gekk
hvatlega og vingsaði mér ofurlítið til.
Ég fyrirleit kennarana. Þeir tróðu þurrum fróð-
leik í nemendurna í stað þess að opna augu
þeirra fyrir dásemdum mannlífsins. Ég fann, að
4g var hafinn yfir þe.‘ssa flötu eyðimörk.
Ég finn nú, að ég hefði átt að dá fleira, en
fyrirlíta færra.
Þegar ég tók að læra frönsku, fannst mér ég
vera kominn heilum áfanga lengra á skáldbraut
minni en áður. Ég vissi, að á þá tungu höfðu
margar hugsjónir verið skráðar. Mér fundust
himnar ljúkast upp. Ég talaði frönsku, ég ræddi
um frönsku, mér fannst ég jafnvel hugsa á
frönsku.
En allt kom fyrir ekki. Ég var aldrei álitinn
skáld. Félagar mínir brostu aumkvandi, er ég
hafði orð á því við þá, að mér veittist léttara að
hugsa á frönsku.
Ég fann sjálfur, að ég var skáld, og ég varð
að koma öðrum í skilning um það.
Ég fór að læra nöfn. Nöfn rithöfunda og heim-
spekinga, sérstaklega heimspekinga. Mér fund-
ust nöfn rithöfundanna skyggja á sjálfan mig.
Ég var næstum afbrýðissamur við nöfn þeirra.
Ég kunni orðið fjölda nafna, og ég lét þá kunn-
áttu mína oft 1 ljós.
Þegar ég hugsa um þetta nú, er ég reyndar
hálfhreykinn að hafa getað látið félaga mína
halda, að ég væri svo fróður um bókmenntir og
heimspeki. En þeir héldu, að ég kynni töluvert,
af því að þeir vissu minna. Þeir kunnu ekki einu
sinni nöfnin. Og bað yljaði mér um hjartaræt-
urnar að láta þá líta upp til mín.
Við sátum oft á kaffihúsum. Við drukkum kaff-
ið hægt og sötrandi. Við vorum hátíðlegir. Svo
reyktum við. Ég man, hvernig ég hallaði mér
aftur í stólnum og fann værð reyksins læðast
út í fingurgóma. Ég hálflokaði augunum. Mont-
parnasse, l’art pour l’art, tautaði ég og skáblíndi
spekingslega út í loftið.
Þeir hlutu að halda, að ég væri að hugsa. En
ef til vill brostu þeir aðeins háðslega. En þeir
voru heldur ekki skáld.
Stundum las ég fyrir þá ljóð mín. Ég heyrði
björg hrynja og hafrót í hverri setningu. Þá sátu
þeir bara sljóir. Það vottaði ekki fyrir hrifningar-
glampa í augunum.
Ég fyrirleit þá. Þeir vildu ekki viðurkenna
snilld mína. Ég fór að hata þá. En í hjarta mínu
var það hugsun mín, að eg var eitt þetta mikla
skáld, sem misskilin eru í æsku. Skáld, sem ung-
ar stúlkur elska, þegar þau eru dauð, þær, sem
ekki eru of heimskar til þess.
Ég tók stúdentspróf. Ég innritaðist í Háskól-
ann. Ekki fann ég miklar andlegar hræringar
þar. Hann batt mann þó ekki við andleysið.
Nú kynntist ég fleiri ungum skáldum, en engu
eins miklu og mér. Ég drakk kaffi í Hressingar-
skálanum. Ég labbaði um Hljómskálagarðinn og
vestur á Nes. Ég gekk með þverslaufu og span-
jólu. Ég var skáld.
Ég lét skegg mitt vaxa og hár mitt síkka og
var róttækur og víðsýnn. Ég orti um firrð og
hjóm og auðn og tóm, og allir mínir gömlu fé-
lagar fóru að hlæja að mér.
Ég skrifaði og skrifaði. Stundum skrifaði ég
heilar nætur. Þá var ég innblásinn. Stundum
kom ein og éin setning á stangli. Undirvitund
mín kom oft fram. Skáldandi minn stóð nakinn
í mikilleik sínum.
Enginn áleit mig skáld. Ungar stúlkur hlógu
að mér. Það sárnaði mér. Þær vissu ekki, hvað
ég var.
Ég fór á dansleiki, fór í veizlur og var í partí-
um. Þá reis ég stundum á fætur, lyfti glasi mínu
og þrumaði nýjustu ljóð mín. Stundum settist
ég á stólbrík hjá lostfögrum konum, beygði mig
10
LÍF og LIST