Austurland - 23.12.1979, Síða 14
Við skulum ekki skjóta á Björgu. ]>á halda hinar, að hún sé að
hrekkja, hvíslaði Valur. Við Eyvi vorum þessari uppástungu sammála.
Eftir litla stund risum við á fætur og kíktum út. Stelpurnar voru nú í óða
önn að forma snjókerlinguna og virtust búnar að gleyma ónæðinu. ,,En
Adam var ekki lengi í paradís“. Ég sendi nú eitt skot á vangann á Öddu.
Hún rak upp voðalegan skræk.
— Hvað er að, spurði Geira.
- Það henti einhver snjókúlu í kinnina á mér, sagði Adda og strauk
vangann.
— Ert þú að láta eins og bjáni Þorri? spurði Geira og horfði alvar-
lega á bróður sinn.
— Nei, nei, svaraði Þorri greyið. enda sárasaklaus.
■— Þetta ert pú, Björg, sagði Adda ásakandi.
— Ég! Nei, alls ekki, svaraði Björg.
— Jú, þetta ert víst þú. Þú ert svo hrekkjótt, sagði Geira.
— Ég er ekkert hrekkjóttari . en júð, svaraði Björg.
— Ertu það ekki? Jú, góða mín ]?að ertu. Þú skalt bara fara heim. ef
pú þarft að láta eins og fífl, sagði Adda snúðug.
Stelpumar sném sér enn á ný að verkefninu, en Adda og Geira voru
að gjóa augunum laumulega til Bjargar.
— Þetta er flott. Þær halda að þetta sé Björg, Svakalega eru ]>ær
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs
Þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða.
Sveinn Sigurbjnrnarson
Jón Ragnor Óskarsson
Eskifirði
annars grænar, sagði ég. Já, við strákarnir skemmtum okkur aldeilis vel.
Valur skaut nú á Þorra og hitti beint á nefið á honum. Stráksi rak upp
ægilegt org, henti sér í snjóinn og greip fyrir nefið.
— Nú sá ég til ]>ín. kellingin! kallaði Adda til Bjargar. Ég sá alveg
grenilega, )>egar }>ú beygðir ]>ig niður.
— Ég var bara að reima skóinn minn, sagði Björg.
Geira var farin að stumra yfir bróður sínum. Hann hafði fengið, blóð-
nasir.
— Ég skal aldeilis segja mömmu. hverníg ]>ú hefur meitl Þorra. Þá
lætur hún frænku ]>ína flengja ]>ig, sagði Geira.
— Ég hef ekkert meitt Þorra. Ég hef ekkert verið að hrekkja, sagði
aumingja Björg.
— Af hverju kemur ekkert í ]>ig? spurði Adda og var afar náleg
í málrómi.
— Það veit ég ekkert. Ég er bara ekkert að hrekkja, svaraði Björg
og var gráthljóð í röddinni.
— Komdu bara Adda. Við skulum ekkert vera með henni, sagði Geira
og lagði af stað út Bakkann með bróður sinn við hönd sér. Hann var
snökktandi og hélt um blóðugt nefið.
í ]>ví skaut Valur og hitti Geiru í hnakkann.
— Voðalegur fantur ertu. Komdu Adda! kallaði Geira. Svo tóku
Aljtýðusamband Austurlands
óskar félögum sínum og annarri austfirskri alþýðu
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs
HOOVER
Ryksugur, þvottavélar, þurrkarar
NEFF
Eldavélar, gufugleypar, uppþvottavélar, ísskápar, frystiskápar
KENWOOD
Magnarar 2x4 rása, plötuspilarar, kasettutæki, hátalarar,
hljóðnemar, heyrnartæki
Fdlkinn hf.
Suðurlandsbraut 8 Reykjavík
14
Austurland jólablað 1979