Austurland - 23.12.1979, Side 17
ástandi í sjávarútvegi á Austfjörðum fyrir tiikomu íshúsanna á eftir-
farandi hátt:
„ . . ■ það er óhœtt að fullyrða, að frá því fyrst á vorin, að fiskvart
varð, og þar til á haustin, að hœtt var vegna veðra og algjörs beititleysis,
að alhtr helmingurinn af tímamtm varð ónýtur einungis fyrir beituleysi
Austfirðingar voru fljótir að átta sig á hvaða gagn mátti hafa af
íshúsunum. fshús Konráðs var reist 1895. en í grein í ísafold 5. tbl. 25.
jan. 1896 kemur fram að ]?á voru ekki færri en átta íshús uppkomin eða
í byggingu á Austfjörðum, öll byggð fyrir forgöngu og eftir fyrirsögn
fsaks Jónssonar. Þessi hús voru á Mjóafirði. }>rjú á Seyðisfirði (Brimnesi.
Búðareyri og Þórarinsstaðaeyrum), á Vopnafirði, Norðfirði. Fáskrúðs-
firði og Eskifirði.
íshúsin sönnuðu fljótt gildi sitt og reyndust hinar mestu gullkistur.
Með tilkomu jæirra var hægt að geyrna beitusíldina í langan tíma og
útgerðin var ekki háð samfelldri beituöflun allt útgerðartímabilið,
Upphaf umsvifa Konráðs á Norðfirði
f æviferilsskýrslunni getur Konráð ]’ess að hann hafi flutt frá Mjóa-
firði til Norðfjarðar 1912, en ]>ess ber að geta að Konráð hóf umsvif á
Norðfirði nokkru áður. Það var Iíklega árið 1905, sem ]>cir bræður Gísli
Verbúðir og fiskreitir Konráðs í Mjóafirði.
og Konráð Hjálmarssynir hófu rekstur fyrirtækis á Norðfirði, sem oftast
gekk undir nafninu „Bræðraverslunin“. Þessi verslun þeirra bræðra starf-
aði aðeins í u. p. b. tvö ár. Árið 1907 hóf Konráð Hjálmarsson rekstur versl-
unar með eigin nafni á Norðfirði, en borgarabréf á Norðfirði og ]?ar með
verslunarleyfi hafði hann fengið árið áður. Allt \>ar til Konráð fluttist
til Norðfjarðar árið 1912 rak hann einnig fyrirtæki sitt á Mjóafirði.
Stærstu skip Konráðs
Eins og Konráð getur um í æviferilsskýrslunni var hann brautryðj-
andi á sviði útgerðar gufubáta. Fyrri gufubáturinn, sem Konráð eignaðist
var byggður í Bergen í Noregi 1898 og hét Reykir. Útgerð ]>essa báts
eekk heldur erfiðlega og seldí Konráð hann til Noregs árið 1900. Mun
þetta vera ein fyrsta tilraun til útgerðar gufubáts á íslandi. Ekki gafst
Konráð upp við svo búið og lét byggja annan gufubát, nokkru stærri, í
Hardanger í Noregi árið 1902. í ritinu Skútuöldin eftir Gils Guðmunds-
son er sagt frá j>essu skipi, en það hét Súlan. Mun Súlan hafa haft gufuvél
og segl til hjálpar. Var gufuvélin ekki stærri en svo, að með henni gekk
skipið 6 sjómílur í góðu veðri. Konráð átti Súluna í ]>rjú ár og gerði hana
út á porskveiðar með línu. Var fiskað á doríur frá skipinu. Árið 1905
seldi Konráð skipið. Var Súlan síðan í eign ýmissa aðila og var skipinu
oft breytt og ]>að umbyggt. Súlan fórst ]>ann 10. apríl 1963 á leið frá
Vestmannaeyjum til Reykjavíkur með um 700 tunnur af síld. Fimm
menn fórust er skipið sökk.
Skonnortuna þrímöstruðu. sem Konráð minnist á í æviferilsskýrsl-
unni, mun hann hafa keypt, ásamt Páli Þormar Guttormssyni tengdasyni
sínum, ]>ann 23. febrúar 1917. Var hún byggð úr jámi í Danmörku 1915,
161,91 tonn, og hafði skipið hjálparmótor. Kom skonnortan, sem hét
Rigmor, fyrst til heimahafnar á Norðfirði í enduðum júnímánuði eft'r
ævintýralega ferð. Lagði skipið upp frá Kaupmannahöfn pann 30. maí
en ]>jóðverjar hertóku skipið og sást ]>að sigla um Eyrarsund undir pýsku
flaggi. Heimsstyrjöldin fyrri stóð sem hæst um þessar mundir, en ]>jóð-
verjarnir slepptu \>ó skipinu fljótlega.
Um miðjan september árið 1918 sigldi Rigmor með Saltfiskfarm til
Spánar. Þann 1. desember j>að ár var skipið statt í höfn í lbiza á Spáni
og var ]>á eitt af fjórum íslenskum skipum sem fyrst flögguðu íslenska
fánanum í erlendri höfn á fullveldisdegi j>jóðarinnar. í ]>essum sama mán-
uði lestaði Rigmor salt í Ibiza, sem átti að fara til Færeyja. Eftir að skiplð
sigldi frá Spáni lenti ]>að í óveðri og varð fyrir sjóskaða ofan]>ilja. Vegna
skemmdanna varð að leita til hafnar í Portúgal og sendi skipstjórinn
]>aðan skeyti ]>ess efnis að skipið myndi sigla nýopnaða leið, en á }>essum
tíma var verið að slæða tundurdufl frá heimsstyrjöldinni, sem )>á var
nýlokið, og opna siglingaleiðir sem höfðu verið lokaðar á stríðsárunum.
Þetta var ]>að síðasta sem fréttist af Rigmor, en menn gerðu sér í hugar-
lund að skipið hefði rekist á tundurdufl og farist annaðhvort í lok
desember 1918 eða í byrjun janúar 1919. Með skipinu fórst.öll skipshöfn-
in.
Fjórða skipið, sem Konráð minnist á í æviferilsskýrslunni, var byggt
Skonnortan Rigmor ót Norðfirði.
Austurland jólablað 1979
17