Austurland


Austurland - 23.12.1979, Side 25

Austurland - 23.12.1979, Side 25
Kristinn V. Jóhannsson: Eina vísu yrkja var ég beðin Ekki getum við Norðfirðingar státað af mörgum pjóðskáldum. Hér eins og annars staðar hafa menn j>ó löngum lagt stund á að „yrkja ser til hugarhægðar en hvorki sér til lofs né frægðar". Hér á eftir fara nokkrar vísur eftir norðfirska hagyrðinga. Flestar þeirra eru frá eldri tíð og höfundar |>eirra ýmist látnir eða brottfluttir. Nokkrar vísur yngri manna fylgja með til að sýna að enn er ort og enn leynast meðal okkar snjallir hagyrðingar. Ég hef mikinn hug á að safna saman sem mestu af vísum og ljóðum eftir Norðfirðinga og væri ]>ví J>ökk í að fólk, sem á slíkt í fórum sínum hefði samband við mig. Þessar vísur eru birtar í peirri trú, að J>að sé rétt sem ágætur norð- firskur hagyrðingur, Óskar Bjömsson, sagði eitt sinn: Fylgir ávcillt gagn og gaman góðum, léttum stökum. Þegar rímið rennur saman réttum gripið tökum. Jónas Þorsteinsson frá Harðangri var snjaj.l hagyrðingur. Hann orti eitt sinn á hörðum vetri. Fannir stœkka, freyðir hrönn fenna góðar vonir senn. Sannarlega bjargarbönn brenni helst þó skortir menn. Mjöllin kœfa mengi vill mollan þyngist eigi holl. Tröllum hæfir tíð'm ill tolli hríðin þeim við koll. F.n öll él styttir upp um síðir og vor tekur við af vetri. Blómin fríðu þróast þétt þekur víðir hjalla. Róminn blíða lóan létt lætur tíðum gjalla. Yrkisefni Guðmundar Magnússonar (Munda Magg) eru svipuð. Fyrsta vísan var ort í júnímánuði J>egar gerði öskubyl. / minni sál er allt í kafi úti napurt veðrahrak. Get ég til að guð nú hafi gleymt að fá sér almanak. Fuglar kvaka fögrum róm fönnin burtu rýkur. Um fiðlustrengi fingurgóm fagra vorið strýkur. María Bjamadóttir orti jöfnum höndum ljóð og lausavísur. Af miklu er að taka en hér eru tvær góðar. Brunnið geta borgir þær. sem byggðn hendur manna. En éldur grandað aldrei fær anda hugsjónanna. Stakan óðum tapar tryggð týnast Ijóðavinir. Auðga þjóð um íslands byggð aðrir gróður-hlynir. Einar Sveinn Frímann átti marga ðlíka strengi á ljóðahörpu sinni eins og eftirfarandi vísur sýna. Þitt blóð var heitt, en sál þín eins og ís nú ertu dauður, kannski er þetta breytt: Þitt blóð er kalt, þitt lík á fjölum frýs, — en finnst ei sálu þinni nógu heitt? „Elskið alla menn,“ kvað Mannsins sonur, en mönnum þótti krafan nokkuð stór. Þá sagði Fjandinn: „Elskið allar konur,“ og allir hlýddu. Síðan fór sem fór. Týndu ei þinni léttu lund lífs þó harðni slagur. Enn mun rísa yfir grund annar bjartur dagur. Áður fyrr trúðu menn J>ví að til væm kraftaskáld og kannski em J>au líka til. Sagan segir að Ingimann Ólafsson hafi eitt sinn verið á fæmm hér suður með Síðunni. Hann dró upp smátitt, losaði hann af, henti færinu út aftur og sagði: Drottinn gefur gjafirnar gamall dýrðarhrókur. Þakksamlega þeginn var þessi blöndulókur. Allir vilja óska sér eftir bestu vonum. En geturðu ekki gefið mér graðýsu með honum? Það stóð á endum að lngimann hafði lokið kveðskapnum og sakkan náði botni. Tók hann gmnnmál, fékk um leið gott viðbragð, dró færið upp í flýti og innbyrti — spikfeita graðýsu. Teitur Hartmann er landsþekktur hagyrðingur. Hann var málari að iðn og eitt sinn málaði hann hús Kristins Ólafssonar bæjarfógeta. Þegar Teitur kom að heimta verkalaunin var Kristinn ekki heima. Var Teiti tjáð, að hann væri hjá séra Jakobi. Þegar Kristinn kom heim skömmu síðar varð fyrir honum }>essi vísa með hendi Hartmanns. Hér er engan aur að fá una verður frestinum. Fógetinn er farinn á fyllerí með prestinum. Kvöld eitt gekk hann inn í blómagarð og hugðist vökva )>ar blómin lítíð eitt en var vísað út úr garðinum með óhefluðum orðum. Þá sagði Hartmann. Enga frekju, haf þig hægan, heyrðu sannleikann: Til að gera garðinn frœgan gekk ég inn í hann. Einhvern tíma voru ]>eir saman á Björgvin NK, Bjami Þórðarson, Valdi Eyjólfs og Óskar Bjömsson. Valdi var kokkur, Bjami vélstjóri, Óskar háseti. Einu sinni á útstími kemur Valdi upp og segir: Kafteinninn og kokkurinn á knerri saman stóðu vakt. Ekki dvínar eldurinn og ekki verður strikið skakkt. Þeir fengu illsku veður í róðri eitt sinn og }>á sagði Valdi við Óskar. Ef við náum heilir höfn heiti ég á þig Skari. Austurland jólablað 1979 25

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.