Austurland - 23.12.1981, Page 23
Kari Shetelig Hovland
Norskar
seglskútur
d íslandsmiðum
SMÁRI GEIRSSON OG BJARNI ÞÓRÐARSON, ÞÝDDU
FRAMHALD
1882 — Náttúran
grípur 1 taumana
ísaár
Allir norsku leiðangramir, sern hafa hús á Austfjörðum, ná til
ákvörðunarstaða í júní og byrjun júlí. Þeir síðustu eru heppnir
með veður á leiðinni. Askeland skipstjóri á galías „Heimdal,
skrifar útgerðarmanninum Peder Amlie frá Eskifirði 10. júlí og
segir að „við fengum ágæta ferð, hæg veður og góðan byr alla
leið. Við komum hingað í gærmorgun eftir 5 sólarhringa. Hér er
enginn orðrómur um síld ennj?á, en sagt er að sfld sé í fiski, sem
veiðist úti fyrir Fáskrúðsfirði. Ég verð að segja yður, að Dina og
Heimdal höfðu samflot allan tímann svo við gátum talast við
daglega". Askeland skýrir einnig frá því, að þeir fái að starfa
á sama hátt og í fyrra, en í ár verði allir að búa í landi og á Eski-
firði nota þeir nafn (Mons) Larsens. Húsið á Fáskrúðsfirði er
óskemmt. Þeir hafa nú fengið tollafgreiðslu og halda til Fáskrúðs-
fjarðar strax og mögulegt er ásamt ..Dina,“ jakt Amliesð).
Á Norðfirði hefur leiðangur O. A. Knudsens bækistöð sína með
skonnortuna „Anny Föyen“ og galíasinn „Regres,“ og íslands-
félagið frá Flekkefjord með jaktina „Rosendal“ og galíasana
„Sella“ og „Elektra“. í ár reisir H. J. Svendsen frá Kopervik nýtt,
norskt hús á Nesi í Norðfirði „til afnota fyrir pá, sem stunda
fiskveiðar í hans nafni“io). Sami maður á hús fyrir á Mjóafirði.
— Stafangursbúinn Ole Hodne, sem sumarið áður byggði sjóhús
á Seyðisfirði, kemur þetta ár upp húsi á Eskifirði fyrir utan bæki-
stöð Odlands, á Svínaskálail).
Á Mjóafirði er örðugt um húsagerð Jætta sumar. Þrír útgerðar-
menn frá Haugasundi byggja þar þetta ár: Johan Thorsen á Hest-
eyri, bræðumir Öritsland á Skolleyri og Rönnevig á Brekku. Við
hlið Rönnevigs byggir H. Svendsen frá Stafangri (sem frá fyrri
tíð átti hús á Seyðisfirði). Bóndinn á Brekku, Vilhjálmur Hjálm-
arsson, hafði fengið timburfarm með norsku skipi. Hann reisir
nú stórt, tvflyft íbúðarhús úr timbri spölkom frá sjónum, þar
sem túnið erl2).
Þeir, sem hafa fasta búsetu í Mjóafirði og stunda þaðan fisk-
veiðar allt sumarið, em á skattskrá Mjóafjarðarhrepps, með skip
og báta. Á Asknesi eru fjögur nótalög: Zachariasen og Strömsváld
hvor með eina jakt, einn nótabát og j>rjá færeyinga, H. J. Svend-
sen með eina seglskútu, tvo nótabáta og ]>rjá færeyinga, og N. M.
Svanberg með tvær seglskútur, fjóra nótabáta og sex færeyinga.
Johan Thorsen á Hesteyri er með eina seglskútu, tvo nótabáta
og tvo færeyinga. Félag Nils Olsen Veas á Skolleyri er með tvo
galíasa, fjóra nótabáta og sex færeyinga, j>ar liggja líka nóta-
bassinn Jan Jansen Gásnes frá Stolmen með tvær seglskútur, tvo
nótabáta og tvo færeyinga, og nótabassinn Anders Grasdal frá
Selbjöm með tvo nótabáta og }>rjá færeyinga. Knut Stokka býr
}>ar einnig, hann er bara með einn færeying og er Ifldega hand-
verksmaðuri3).
Um sumarið viðraði illa á Austurlandi. Það er sífelld rigning
og súld. Bændumir geta ekki þurrkað eitt strá af ]>ví vesældar-
lega grasi, sem óx eftir kuldann. Sfldar verður vart í júlí. Til
Mandal berst bréf frá Seyðisfirði dagsett 11. júh'. Þar segir að
nótalögin hafi fengið tvær til tíu tunnur hvert. Smátt og smátt
myndast þéttar sfldartorfur langt úti í fjarðarmynninu, en vegna
hins kalda vatns koma }>ær ekki lengra inn. Allan ágústmánuð
gengur dreifð sfld í Austfirðina. Fiskimennimir kasta á smátorf-
ur. Það er stöðugur stormur og straumur mikill í sjónumi4).
Meðan veiðiflotinn liggur innifrosinn í Eyjafirði, stundar
Ludolf Eide porsk- pg hákarlaveiðar frá bækistöð sinni á fsa-
firði. Skútumar hans komu að sunnan, sigldu norður með vestur-
ströndinni til fiskimiðanna fyrir Vestfjörðum, J>ar sem hinn bless-
aði golfstraumur hefur alltaf betur í viðureigninni við hafísinn.
Eide tekur einnig lifur í lýsisbræðslu sína, — Eftir miðjan júlí
verður sfldar vart á miðunum fyrir vestan. Fyrsta fslandssíld
ársins kemur til Haugasunds 26. ágúst með „Liberal,“ galías
Ludolfs Eideið).
En úti fyrir Norðausturlandi liggja skipin og sigla fram og aftur.
Þau komast ekki til hafnar fyrir }>éttum ís. Skonnorta Berentsens
„Lagius“ liggur úti í 11 vikur. Nótabassinn Nils Djupevág er um
borð. Dauðleiðir á hinni endalausu bið halda þeir til Færeyja,
}>ar er íslaust, en ]>eir halda slrax til baka. í dimmviðri ná }>eir til
Mjóafjarðar. Þegar birtir upp, fer einn af áhöfninni upp á fjallið
og sér niður í Seyðisfjörð. Þar liggja aðrar skútur Berentsens.
„Lagius“ er dreginn af árabáti út fjörðimi. Þeir fá byr, sigla fyrir
Langanes og varpa akkerum við Grímsey. Þar er nægur fiskur,
}>eir renna og fá stórlúðu 80—90 kg. — Þeir leggja líka línu.
Loks komast }>eir til Hríseyjar, dytta að húsi og bryggju og búast
til veiðalfi).
Norðmenn hafa }>egar hafið störf á frosnum ströndum Eyja-
fjarðar. Menn Lehmkuhls komast fyrst í gang. Gufuskipið
„Nordkap“ var á Akureyri ]>egar síðast í júlí. Á leið út fjörðinn
kom skipið við á Fagrabæ á austurströndinni )>ar sem Kristoffer
Lehmkuhl leigði sjávarlóð af Birni Halldórssyni. Samningurinn
er dagsettur í Laufási 28. júlí 1882. — „Nordkap“ hélt síðan
áfram til Litla Árskógssands, stóra nessins á vesturströnd fjarð-
arins rétt innan við Hrísey. Þar leigði Kristoffer Lehmkuhl lóð
á Sandinum af Rósu Jónsdóttur hinn 1. ágúst.
„Nordkap“ liggur sumarlangt á Eyjafirði. Skipið er með
timburfarm og áhöfnin reisir sjóliús á Sandinum. Byggt er íbúð-
arhús með veggjum af torfi og grjóti, klætt panel að innan. Þar
er svefnherbergi fyrir 16 manns (]>riggja manna og tveggja manna
kojur á tveim hæðurn). í öðrum enda hússins er eldhús og herbergi
stjómanda. Lehmkuhl er í Hrísey 19. ágúst ogtekur á leigu sjávar-
lóð á Syðstabæl7).
Rósa Jónsdóttir í Litlaskógi leigir K. O. Kleppe frá Björgvin
húsgrunn austan við lóð Lehmkuhls, 75 álna með sjónum.
Samningurinn er undirritaður 29. ágúst um borð í gufuskipinu
„Avance“. Bærinn Bimunes er milli Litlaskógar og Selár. Þar
leigir sama dag Kleppe af Kristjáni Jónssyni alla sandströndina
yst á nesinu. Næsta dag tekur hann á leigu hjá Sigurði Jóhannes-
syni á Selá sjávarlóð í Selái-vík sunnan við lóð O. A. Knudsen.
Fólkið á bænum skal hafa rétt til allrar vinnu, og byggi leigutakinn
hús, getur bóndinn haft ]>ar veiðarfæri sín að vetrinumi8).
Kutter á þorskveiðum við ísland.
Knut Velde leigir sjávarlóð í Miðbæ norðan við Syðstabæ í
Hrísey mót vestri. Velde kernur fram fyrir Smedsvig, Blixhavn og
Rönnevig, útgerðarmenn í Haugasundi. Hér eftir kallast fslands-
leiðangur }>eirra „Risöe Expeditionen“. Þeir byggja tvö hús og
bólverk í Miðbæi8).
„Svipull er sjdvarafli”.
Þegar hús og bryggjur eru komin upp í Hrísey síðla í ágúst,
fer nótalag Berentsens að svipast um eftir sfld. Þeir hafa hið
nýsmíðaða gufuskip „Erik Berentsen“ sem dráttarbát og komast
auðveldlega frá firði til fjarðar. Þeir reyna með nokkur köst á
Siglufirði, en veiði er dræm. Þá halda ]>eir austureftir aftur allt
til Mjóafjarðar. Dálítið er }>ar af sfld og fiskimennimir liggja ekki
á liði sínu. Nótalag Berentsens kastar 51 sinni, en eftirtekjan er
rýr. Loks eru nætumar svo útjaskaðar, að nótabassinn veigrar
sig við að kasta á smáar torfur. En skipstjórinn er }>ó á þeirri
Austuiland jólablað 1981
23