Birtingur - 01.07.1960, Side 4

Birtingur - 01.07.1960, Side 4
að þeir séu ávallt samdóma um iistir, en um eitt skilst mér að þeir séu sammála: ákveðnar lágmarkskröfur, sem gera verður til höfunda og verka þeirra, svo þau geti talizt boðleg í siðuðu þjóð- félagi. Þeim er og ljóst, að listin er engin dægurfluga, kjaftasaga, sem hver og einn geti hent á lofti áreynslu- og hugsunarlaust. Til þess að tileinka sér listmennt verða menn að leggja á sig erfiði, þreifa fyrir sér, öðlast reynslu. Mér dettur í hug grein, sem Stefán Jónsson rithöfundur skrifaði einhvern tíma um uppeldi: „Ef við lítum til dýranna, sjáum við upp- eldisaðferðir þeirra, margbreytilegar en agasamar og þó mjög ein- faldar. Eldri kynslóðin ræður, mótar lífsviðhorfin hjá hinni yngri og kennir henni. Þannig var þetta líka á síðustu tímum í mamv heimi og einnig hér hjá okkur og þannig hlýtur þetta að eiga að vera. En nú er þessu raunverulega alveg snúið við“. Áður fyrr þótti það sjálfsagt að hæfileikamenn á sviði byggingarlistar gegndu for- ustuhlutverki og þeir mótuðu meira og minna umhverfi síns tíma. Aðall, konungar og kirkja sóttust eftir slíkum mönnum, sem sagan gleggst ber vitni. Hér hjá okkur er þessu raunverulega alveg snúið við á síðustu tímum: Skussarnir ráða mestu. Þeir sem einkum hafa sett svip á nýju hverfin í Reykjavík og út um landsbyggðina eru hinir menntunarlausu og hæfileikasnauðu, menn sem hvergi í heim- inum fengju að teikna hús nema hér á landi. Það er ekki nema gott um það að segja að eiga sín hreppaskáld og hossa þeim sem vera ber, en hitt er alvarlegra, þegar þessi skáld- verk falla í viðjar járnbentrar steinsteypu. Bók gleymist og bók er hægt að fela, en hús standa við veginn og verður ekki í einu vet- fangi kastað á sorphauga. Hver sem haldið getur á blýanti og ekki er fáviti teiknar hús í dag á Islandi, og það sem meira er, fær það samþykkt. Það er eins og sían sem sigta skal hismið frá kjarn- anum sé mjög farin að slitna, stundum virðist hún gjörsamlega týnd. Ég tel byggingarnefndir héraða og bæja bera einna mesta ábyrgð á því hörmungarástandi, sem hér ríkir í byggingarmenningu. Það er ásamt öðru aðkallandi nauðsyn að breyta starfsháttum þeirra. Svo virðist sem viðkomandi aðilar hugsi aðeins um það hvort hús geti staðið uppi, en ekki hitt, hvort það fái staðizt fyrir augum siðaðs fólks. Á Islandi virðist hin ómótaða tilfinning fyrir fegurð hluta, sniði þeirra og stærðum, sem býr með hverjum heilvita manni, hafa brotizt úr böndum, rutt burtu hinni eðlilegu stíflu að- halds, aga og menntunar. 2 Birtingur

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.