Birtingur - 01.07.1960, Blaðsíða 32

Birtingur - 01.07.1960, Blaðsíða 32
Fleira kemur í ijós þegar bók þessi er athuguð. Hún heitir að vísu „íslenzk íbúðarhús“, en við nánari aðgæzlu sést að í bókinni eru yfir- leitt birt hús efnafólks eða betri borgara. Að sumu leyti er það eðli- legt, þar sem segja má að arkitektar fái þar frekar tækifæri til að reyna hæfni sína og minna er þar til sparað en ella, enda ekki að svo komnu má,li jafnaður auðsmunur. Hinu má ekki gleyma, að efna- minna fólk hefur líka reynt að koma sér þaki yfir höfuð og á engu minni rétt til þægilegra og smekkvísra húsakynna. Hvar er þess hlutur? Það skyldi þó aldrei koma upp úr kafinu að það hafi verið vanrækt? Húsagerðarmeistarar nútímans hafa hins vegar talið það eftirsóknarvert viðfangsefni að skapa hinum almenna manni verðuga híbýlamenningu, enda hafa þær tilraunir sett einna sterkast svipmót á nútímabyggingalist. Lítið sem ekkert ber á þeim verkum í bókinni „Islenzk íbúðarhús“ og nánast engin tilraun gerð til að brjóta til mergjar vandamál íslenzkra bygginga í dag. Það hefur sem sé komið í ljós af rannsóknum, sem reyndar var grunur sumra, að á íslandi er húsrými illa nýtt. Þjóð sem telur aðeins 170 þúsund manns skyldi fara sparlegast allra með fjármuni sína í byggingarframkvæmdum, en ekki bruðla með þá eins og raun ber vitni. Um þá sérstöðu sem af fámenni þjóðarinnar leiðir í húsagerð hér um slóðir er ekkert fjallað í téðri bók, hvað þá að bent sé á lausnir. Meginstefna okkar hefur verið að ögra þessari staðreynd eða sniðganga hana í algjöru sinnuleysi. Ástæðurnar eru sjálfsagt margar, en einkum þó þríþættar að eðli: Sálfræðilegar, þjóðfélagslegar og menningarlegar. I húsgerð- arlist og híbýlamenningu hafa íslendingar ekki kunnað að sníða sér stakk eftir vexti. Þeir sveitast við að vera annað en þeir eru og miða allar greinar þjóðlífsins við hætti stórþjóða. Smáþjóðarhugtakið fer mjög í taugarnar á okkur, og sanna skal jafnt útlendum sem sjálfum sér, að hér búi ekki menn lítilla sanda, lítilla sæva. Ég er ekki að halda fram kotungsviðhorfum, en vitanlega verður að reka þjóðfélag 170 þúsund manna með öðru sniði en milljónaþjóðir stýra sínum bú- skap. Það er hörmulegt til þess að vita, að hin minnsta meðal sjálf- stæðra þjóða skuli hafa hagað uppbyggingarstarfi sínu í húsgerðar- list og borgarskipulagi jafn fálmkennt og raun hefur á orðið. Við skulum taka dæmi frá síðari árum: Hálogalandshverfið mun hýsa um 6000 manns. Hliðstætt byggðahverfi væri t. d. í Skandinavíu skipulagt og reist undir samræmdri stjórn ábyrgra aðila, bæði hvað viðvíkur listrænni útfærslu og verklegum framkvæmdum. Hér er allt annar háttur hafður á. Að vísu er til heildarskipulagsuppdráttur 30 Birtingur

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.