Birtingur - 01.07.1960, Page 14

Birtingur - 01.07.1960, Page 14
Staða eða staður eining hrynjandi hlutfall. „Púnktur heitir einn staður í rúminu“, segir Ólafur Daníelsson í bók sinni um flatarmyndir. Frumstærð, frumeining er púnkturinn, staðarhugmyndin. 1 allri rúmskipan skiptir staðarhugtakið miklu máli. Við skipum þessum fleti, þessum glugga á stað, sem sam- svarar ákveðinni innri kröfu okkar. Nátengt staðarhugtakinu er einingarhugtakið. Gjörvallur heimur okkar er uppbyggður af óendanlegum fjölda eininga. Röð eininga: púnkta, flata, glugga, tóna, atóma í lögmálsbundinni skipan, það köllum við hrynjandi, rytma. Lögmálsbundin hreyfing eða sveifla. Allt hrynur: plánetur, flóð og fjara, blóðrás manna og dýra, öndunin. Ljóðlína, húshlið, mynd. Við skynjum innra með okkur þennan undarlega takt. Tökum einfaldasta dæmi um hrynj- andi í formheimi: 12 Birtingur

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.