Birtingur - 01.07.1960, Page 26

Birtingur - 01.07.1960, Page 26
Þetta eru samsíða skálínur, sem eru þverskornar sitt á hvað af nokkuð þéttriðnum styttri línum. Fyrir bragðið sýnist okkur upp- haflegu línurnar dansa sitt á hvað. Að lokum sýni ég hér tröppuna frægu sem ýmist er hægt að sjá rétta eða á hvolfi. Þetta sýnir hve allt rúmskyn er háð mannshug- anum og skýringum hans á fyrirbærunum sem að berast. Sagt er kð un^börnum og blindum mönnum er fá sjónina aftur sýnist ver- öldin flöt ásýndum. Við höfum sagt að heimur mynda og heimur náttúrunnar væri smíð- aður úr öreiningum í sífelldri hrynjandi, þannig virðist og fleira líkt með þessum veröldum: Án mótsetninga andstæðna getur hvorug þeirra öðlazt líf fyrir sjónum okkar, annars væri um aldeyðu, sí- bylju eða óskapnað að ræða. Þar birtast andstæður ljóss og myrkurs, hrings og fernings, andstæður guls og blás litar. Þar er að finna mótsetningar fjölda og fæðar, stórra og smárra stærða. Þá þykir okkur hlutur fagur eða samræmisbundinn, ef hann birtir átök and- 24 Birtingur

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.