Birtingur - 01.12.1960, Blaðsíða 4

Birtingur - 01.12.1960, Blaðsíða 4
Comte de Lautréamont: ÚR SÖNGVUM MALDORORS Ég leyfi mér, án þess að vera hrærður, að þylja hárri röddu þau alvarlegu og köldu orð, sem þið nú fáið að heyra. Veitið athygli því, sem þau hafa að geyma, og gætið ykkar á óþæginda- kenndinni, sem þau eru vís til að skilja eftir einsog brennimark í ruglaðri ímyndun ykkar. Hyggið ekki að ég sé að því kominn að deyja, því enn er ég ekki beinagrind, og ellin hefur ekki sett mörk sín á enni mér. Vísum því á bug hverri hugmynd um samanburð við svaninn á þeirri stund þegar líf hans líður burt, og sjáið ekki fyrir framan ykkur annað en ófreskju, sem ég er feginn að þið getið ekki séð framan í; og þó er hún ekki jafnskelfileg og sál hennar. Þrátt fyrir þetta er ég ekki glæpamaður . . . Sleppum því. Það er ekki langt síðan ég sá hafið aftur og þrammaði um á stjórnpöllum skipanna, og ég man það skýrt einsog það hefði gerzt í gær. Verið samt, ef þið getið, jafn róleg og ég við þennan lestur, sem ég iðrast þegar eftir að bjóða ykk- ur, og roðnið ekki við tilhugsunina um hvað mannshjartað er. Ó, kolkrabbi með lambsaugun! Sál þín er óað- skiljanleg sál minni, þú, fegurstur af íbúum jarðkúlunnar, sem ríkir yfir kvennabúri með fjögur hundruð blóð-

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.