Birtingur - 01.12.1960, Síða 7
náunga sinn, sem húkir á sama hátt í
öðrum helli. Hin mikla alþjóðafjöl-
skylda mannanna er tálsýn, sem hæfir
lágkúrulegustu röksemdafærslu. Auk
þess afhjúpast hugmyndin um van-
þakkiætið við að horfa á frjósöm júgur
þín; því við hugsum óðara til þeirra
fjölmörgu foreldra, sem eru svo van-
þakklátir skaparanum að þeir setja
ávöxtinn af vesölu sambandi sínu út
á gaddinn. Ég heilsa þér, gamla haf.
Isidore Ducasse, sem tók sér höfundar-
nafnið Comte de Lautréamont (Greif-
inn af Lautréamont), er fæddur í
Montevideo, Uruguay, árið 1846. Faðir
hans var ættaður frá Pyreneafjöllum.
Isidore ólst upp í Montevideo, en árið
1860 fer hann til Frakklands og sezt
þar í menntaskóla. Hann hefur verið
afbraqðs námsmaður. því hvað eftir
annað fær hann verðlaun fyrir vmsar
námsgreinar, einkum latínu. stærðfræði
og teikningu. Það er í Suður-Frakk-
landi, í nánd við Pyreneafiöll, sem hann
stundar nám sitt, en að loknu prófi fer
hann til Parísar. Um veru hans þar er
nálega ekkert vitað.