Birtingur - 01.12.1960, Page 9

Birtingur - 01.12.1960, Page 9
Eugene lonesco: Öll leikrit mín eiga rætur sínar í tvenns- konar megin-hugarástandi. Stundum er annað ástandið alls ráðandi, stundum hitt; stundum blandast þau hvort öðru. Þetta er tvenns*konar tilfinning, annarsvegar hverfleika-tilfinning og hinsvegar þunga- tilfinning, tilfinning tómleika og tilfinn- ing ofhlæðis; tilfinning fyrir gagnsæjum óraunveruleika heimsins og ógagnsæjum þéttleika hans; skynjun ljóss og djúpra skugga. öll okkar hefur á vissum stundum lient að finnast heimurinn gerður úr ein- hverju draumkenndu efni, að veggir hefðu ekki lengur neina þykkt. Þá er eins og við sjáum í gegn um allt, eins og við lifum í heimi án rúms, heimi sem er ekki annað en ljós og litir; öll tilvera okkar; öll heimssagan finnst okkur þá helber markleysa, meiningarlaus og ómöguleg. Ef menn ekki átta sig á þessu fyrsta stigi villu sinnar (mönnum finnst nefni- lega endilega að þeir séu staddir í al- ókunnum heimi) endar hverfleika-tilfinn- ingin í angist, líkast því að menn sundli. En þetta getur allteins orðið mönnum létt- ir: angistin breytist snögglega í frelsis- kennd; ekkert skiptir lengur máli nema sú dásemd að vera til, þessi furðulega, morgunferska reynsla okkar og nýfengið frelsi; okkur rekur í rogastanz við að uppgötva, að við lifum í heimi sem sýn- ist vera eintóm blekking og hugarburð- ur — þar sem öll hegðun manna birtir okkur fáránleika sinn og öll sagan af- hjúpar fullkomið tilgangsleysi sitt; veru- leikinn allur og sjálft málið gliðnar í sundur, hrinur í mola og missir alla merk- ingu, og þegar allt hættir þannig að skipta máli, hvað er þá annað að gera en hlæja Hvaðan leikrit mín eru runnin Birtingur 7

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.