Birtingur - 01.12.1960, Qupperneq 16

Birtingur - 01.12.1960, Qupperneq 16
særður. „í mínum augum var þetta bara kona, skiljið þér“. „Hm, hm, og hvað þýðir þá þetta héma ... „svanaháls, brjóst og simbal og trumba“ ... Er þetta þessi frjálsu hug- myndatengsl?“ „Má ég sjá“, sagði skáldið undrandi og rýndi í blaðið. „Svanaháls, brjóst og simbal og trumba .. ., hvað getur það verið?“ „Það þætti mér líka gaman að vita“, dæsti dr. Mejzlík gremjulega. „Bíðum nú við“, sagði skáldið og hugsaði sig um, „hér hlýtur eitthvað að vera sem minnti mig á ... Heyrið þér, hefur yður aldrei fundizt tölustafurinn tveir eins og svanaháls? Sjáið þér hérna“, hann teikn- aði þennan tölustaf með penna. „Jahá“, sagði dr. Mejzlík og sýndi áhuga, „en brjóstið þá?“ „Það er auðvitað tölustafurinn þrír, tveir bogar, ekki satt?“ „En trumba og simbal þá?“ „Trumba og simbal . .. trumba og simbal“, tautaði skáldið og braut heilann, „gæti það ekki verið tölustafurinn fimm. Lítið nú á“, og hann skrifaði töluna fimm. „Neðri hlutinn er eins og trumba og svo simbalið ofaná ...“. „Bíðið nú við“, sagði dr. Mejzlík og skrif- aði á blað hjá sér 235. „Eruð þér vissir um, að númerið á bílnum sé 235?“ „Ég sá ekki nokkurn tölustað“, sagði Jaroslav Nerad ákveðinn, „en það ætti að vera eitthvað í þá áttina ... hvaðan skyldi ég annars hafa það?“ sagði hann undr- andi og grúfði sig í þungum þönkum yfir kvæðið. „Þetta er einmitt það bezta í kvæðinu, sjáið þér“. Nokkrum dögum síðar heimsótti dr. Mejz- lík skáldið sem í þetta sinn svaf ekki einn, heldur var með kvenmann hjá sér. Nerad leitaði án árangurs að lausum stól til að bjóða fulltrúanum sæti. „Ég ætla ekkert að stanza“, sagði dr. Mejzlík, „ég kom bara til að segja yður, að númerið á bílnum var einmitt 235“. „Hvaða bíl?“ spurði skáldið hissa. „Svanaháls, brjóst og simbal og trumba“, þuldi dr. Mejzlík í belg og biðu. „Og Singapúr líka“. „Aha, nú man ég“, sagði skáldið. „Þarna sjáið þér, að til er innri veruleiki. Viljið þér, að ég lesi fyrir yður fleiri kvæði? Þér munuð skilja þau nú“. „Seinna“, flýtti fulltrúinn sér að segja, „þegar ég fæ nýtt mál til meðferðar!“ Geir Kristjánsson þýddi 14 Birtingur

x

Birtingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.