Birtingur - 01.12.1960, Qupperneq 21

Birtingur - 01.12.1960, Qupperneq 21
Jón Óskar: Ljóð það eftir St. J. Perse, sem hér birtist á íslenzku, er inngangur að drápunni „Austurför“. Aftan við dráp- una er „söngur" i sama formi, en dráþan sjálf er með öðrum hætti. Segja má ef til vill, að upphafssöng- urinn boði þá för, sem farin verður, en í lokasöngnum ríki endurminningin um för- ina. Hvernig á að skrifa um skáldskap, án þess að eiga það á hættu að gera skáld- inu rangt til og fæla ef til vill væntan- lega lesendur frá þeim dásemdum sem maður vildi laða þá að? Hversu margar þrautleiðinlegar greinar höfum við ekki lesið um dýrlegasta skáldskap, hvílík há- fjöll af skilningsleysi, andleysi og hátíð- legum belgingi hafa ekki hlaðizt upp um óviðjafnanleg listaverk. Og því spyr ég hvernig eigi að skrifa um skáldskap, að margir mér lærðari og færari menn hafa skrifað um það efni að litlu gagni, en ég hef það mér til afsökunar í þetti skipti, að ég leitast við að kynna mikið skáld sem íslendingum hefur til skamms tíma verið með öllu ókunnugt um að til væri. Æ, nei, ég ætla ekki að gerast neinn rit- skýrandi. 1 fyrra, þegar brot úr kvæði eftir St. J. Perse var prentað í Birtingi, spurðu eflaust margir: Hver er St. J. Perse? Nú þurfa menn ekki að spyrja: liann er búinn að fá Nóbelsverðlaun. Þá fara jafnvel íslenzkir norrænumenn og r.Órir bókmenntagarpar að lesa sér til um hann, ^f þeir sjá grein um hann í dag- blaði eða heimilisblaði, og komast ef til vill að því að hann sé mikill fjallgöngu maður. En mig langar til að nota tæki- færið að fagna því hvílíkum framförum sænska akademían hefur tekið að verð- launa lifandi list, og er sem þar ríki nú betri andi en oft áður, það er einsog um hana sé farið að streyma nýtt blóð, hún Iiafi skyndilega hrokkið upp af dvala og sé hætt að vera kölkuð. Það er ekki ætlunin að fara nema fáein- Mikið skáld fœr Nóbels- verðlaun Birtingur 19

x

Birtingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.