Birtingur - 01.12.1960, Side 22
um orðum um þann skáldskap, sem nú
hefur verið verðlaunaður, rétt til að
benda fólki á að kynna sér hann, þvi
margir íslendingar gætu lesið hann á
sænsku eða ensku, ef þeir eru ekki læsir
á frönsku.
Þeir löngu bálkar (sbr. Útlegð, Vindar,
Vitar), sem St. J. Perse yrkir, eru nokk-
urs konar drápur, þó ekki lof um kónga
með sama sniði og við íslendingar vorum
frægir fyrir (tvær stuttar drápur um
fursta og drottningu eru af allt öðrum
toga), heldur eins konar lífsdrápur, sig-
ursöngvar lífsins. Hann yrkir fyrst um
bernsku sína, það verður fyrsta bók hans,
nefnist Lofgerðir. En þótt bernska hans
verði honum ekki beinlínis að yrkisefni
upp frá því, er einsog hann haldi sí-
felldlega áfram að kveða lofgerðir um líf-
ið og manninn á jörðinni og í alheimin-
um, því bak við allan sannleikann í skáld-
skap hans, þar sem við sjáum fyrir okkur
ósigra jafnt og sigra mannsins á jörð-
inni, hrundar borgir ekki síður en glæsi-
legar sigurgöngur, og skynjum voveif-
leg, myrk öfl sem þrengja sér inn í
sönginn einsog bitru tónarnir í gleði-
hljómkviðu Beethovens, á bakvið allan
þann sannleik er lífstrúin einsog vernd-
ari, einsog hlífiskjöldur, sem skýlir skáld-
inu, forðar því frá voli og sút, jafnvel
í útlegðinni, þegar Þjóðverjar reigsa sig-
urglaðir um Parísarborg og ræna hand-
ritum skáldsins, er situr landflótta í
Norður-Ameríku, og smala löndum þess
í fangabúðir eða leiða þá til aftöku.
Franska skáldið Claudel er ef til vill
helzti lærimeistari Perse af nútímaskáld-