Austurland - 29.05.1991, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR, 29. MAÍ 1991.
Seyðisfjörður
Aðalfundur
Dvergasteins hf.
Aðalfundur Dvergasteins hf.
var haldinn sl. miðvikudag. Út-
koma sl. árs var neikvæð um 7
milljónir króna enda var starfs-
tími stutlur og þar að auki var
síldarsöltun sáralítil. Stjórn fé-
lagsins var endurkjörin.
Á yfirstandandi ári hefur ver-
ið vöntun á fiski til vinnslu. í
aprílmánuði var nægur fiskur og
var þá rekstur jákvæður. Togar-
inn Gullver landaði sl. mánudag
80 tonnum en fór síðan í sigl-
ingartúr og er þá hætt við að fisk
muni skorta til vinnslu hjá
Dvergasteini. Nokkur afli berst
þó frá smábátum en afli þeirra
hefur verið mjög tregur nú
undanfarið.
Hjá Dvergasteini hf. starfa 60
- 65 manns og er fyrirtækið
stærsti atvinnurekandi á
staðnum. Pað er því mikilvægt
að vel gangi hjá þessu unga fé-
lagi. JJ
Útgerðarvörur - veiðarfæri - hreinlætisvörur-vinnufatnaður-íþróttavörur
í Útgerðarvörurdeildinni eigum við flest til togveiða, línuveiða og
handfæraveiða. Einnig hreinlætisvörur og ýmsar aðrar rekstrarvörur fyrir
útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki. Góðar vörur á góðu verði.
í sportvörudeildinni eigum við m. a.: fótbolta, fótboltaskó, legghlífar,
töskur, sokka og boli frá Hi-Tec, sundoli, sundskýlur og sundgleraugu frá
Speedo, hlaupa-, trimm- og gönguskó frá Reebok og Head, sport- og
útivistarfatnað frá Benger og Sjóklæðagerðinni.
Auk þess mikið úrval af vinnufatnaði, stígvélum og vinnuskóm. -
Sendum í póstkröfu.
VERSLUN W1
HAFNARBRAUT 6 - NESKAUPSTAÐ S 7 11 33
Meðhjálpara vantar í Norðfjarðarkirkju
Ert þú ekki tilbúinn að taka að þér starf
meðhjálpara í kirkjunni þinni?
Hugleiddu þetta og hafðu samband við
Steinþór í síma 71488, Neskaupstað.
Nýjung á Norðfirði
Bætt þjónusta
Greiðslumat vegna húsnæðislána
Frá 6. maí sl. hefur
Sparisjóöur Norðfjarðar
annast greiðslumat fyrir þá
sem hyggja á fasteignakaup.
Þessi þjónusta er veitt
samkvæmt samningi við
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Allar nánari upplýsingar
veitir Magnús D. Brandsson
skrifstofustjóri
Sparisjóðurinn
Hagur heimamanna
Sendum sjómönnum
og fjölskyldum þeirra
Fótboltinn heillaóskir í tilefni
farinn
að rúlla
sjómannadags
Netagerð Friðriks Vilhjálmssonar hf.
Neskaupstað
Eins og fram hefur komið
hófst keppni í 3. deild karla í
knattspyrnu um síðustu helgi.
Þróttur lék þá gegn ÍK á gervi-
grasinu í Kópavogi og lauk
leiknum með jafntefli 1-1.
Leikurinn hófst nokkuð fjör-
lega og sótti Þróttur mjög stíft
fyrsta ljorterið enda með vind í
bakið. En fljótlega tók að draga
til tíðinda; ÍK-menn fengu
dæmda vítaspyrnu, sem ívar
Sæmundsson gerði sér lítið fyrir
og varði glæsilega. Skömmu síð-
ar var svo Sigurjóni Kristinssyni
vikið af velli á vafasaman hátt.
Við þetta róaðist leikurinn.
Strax í upphafi síðari hálfleiks
náði ÍK forystu. Við það efldust
Þróttarar og yfirspiluðu Kópa-
vogsmenn. En það var ekki fyrr
en þremur mfnútum fyrir leiks-
lok að baráttan skilaði sér en þá
skoraði hinn efnilegi og 17 ára
gamli ívar’Kristinsson jöfnunar-
mark eftir glæsilegan undirbún-
ing Kristjáns Svavarssonar.
Næsti leikur Þróttar í 3. deild
verður á laugardag kl. 1415 á
malarvellinum í Neskaupstað.
Þá kemur Skallagrímur frá
Borgarnesi í heimsókn.
Einn leikur var leikinn í Aust-
urlandsriðli 4. deildar um helg-
ina, Valur sigraði Hugin 5 - 1 á
Seyðisfirði. EK
r
Oskum norðfirskum
sjómönnum og
fjölskyldum þeirra
til hamingju með
sjómannadaginn
SÍLDARVINNSLAN HF.
Neskaupstað