Austurland - 29.05.1991, Qupperneq 12
TROLLANAUST HF.
'mypjyieskaupstað S 71444
» Söluskáli - Bensín
Olíuvörur—Verslun—Vídeó—Billjard
Mestum afla
landað á Eskifirði
Neskaupstaður í fjórða sæti í apríllok
í bráðabirgðatölum Fiskifé-
lags íslands um heildarafla
landsmanna fyrstu fjóra mánuði
ársins kemur fram að mestum
afla hefur verið landað í Vest-
mannaeyjum en næstmestum á
Eskifirði. Neskaupstaðurer síð-
an í fjórða sæti verstöðva í lok
apríl.
Á Eskifirði hafði verið landað
28.958 tonnum um síðustu mán-
aðamót en til Neskaupstaðar
höfðu borist 27.279 tonn.
Drýgstur hluti þessa afla er að
sjálfsögðu loðna.
Fiér á eftir verður birt tafla
sem sýnir annars vegar landað-
an afla í austfirskum höfnum í
aprílmánuði 1991 og 1990 og
hins vegar heildarafla sem á
land barst til einstakra staða
austanlands fyrstu fjóra mánuði
þessa árs og síðasta árs. í töfl-
unni kemur skýrt fram hve mikil
áhrif minnkandi loðnuveiði á
síðustu vertíð hafði fyrir aust-
firskar loðnuhafnir.
Apríl 1991 Apríl 1990 Janúar 1991 - apríl 1990
Bakkafjörður 130 186 272 404
Vopnafjörður .... 602 669 6.579 ' 7.852
Borgarfjörður .... 26 122 47 229
Seyðisfjörður 139 31 10.334 89.572
Neskaupstaður .... 1.249 1.483 27.279 65.654
Eskifjörður 786 986 28.958 72.356
Reyðarfjörður .... 662 751 7.675 30.570
Fáskrúðsfjörður . . . 1.356 1.514 3.528 4.214
Stöðvarfjörður .... 513 604 1.533 1.467
Breiðdalsvík 357 826 1.052 1.865
Djúpivogur 663 373 1.699 1.606
Hornafjörður 2.863 2.488 10.855 22.949
Frá Djúpavogi, en þar er atvinnuástand gott og kvótinn hefur haldist í byggðarlaginu.
Djúpavogur
Helstu verkefni sumarsins
tengjast vatnsveitunni
AUSTURLAND hafði sam-
band við Ólaf Ragnarsson sveit-
arstjóra á Djúpavogi og spurði
hann hvaða verkefni yrðu efst á
baugi hjá sveitarfélaginu í
sumar.
Ólafur tjáði blaðinu að helstu
verkefnin tengdust vatnsveit-
unni. í fyrsta lagi yrði unnið að
úrbótum á vatnsbólinu inn á Bú-
landsdal og í öðru lagi yrði reistur
300 rúmmetra miðlunartankur.
Þá er ráðgert að byggja fyrsta
áfanga íþróttahúss en það er
framkvæmd upp á 13 milljónir
króna og felur í sér uppsteypu
á sökklum og kjallara undir
baðhús. Húsið er 934 fermetrar
að stærð.
Neskaupstaður
Tröllanaust
verslar með fisk
Söluskálinn Tröllanaust í
Neskaupstað hóf fyrir skömmu
að selja fisk sem pakkaður er í
lofttæmdar umbúðir. Er fiskur-
inn í öllum tilfellum fullverkað-
ur og tilbúinn í pottinn. Hér er
um að ræða mjög fjölbreytt úr-
val og er t. d. hægt að kaupa í
skálanum nýjan fisk, skötu,
kinnar, gellur, sigin fisk og salt-
fisk svo eitthvað sé nefnt.
Frá því að fisksalan hófst hefur
hún verið sívaxandi og virðast
viðskiptavinir vera sérstaklega
ánægðirmeðhiðmiklaúrval. Hafa
sumir þéirra haft á orði að það
væri kominn tími til að unnt væri
að njóta meira fiskúrvals í Nes-
kaupstaðen t. d. á Egilsstöðum.
Nú hefur Tröllanaust hafið
sölu á fiskinum til nágranna-
staða hér eystra og er ætlunin
að auka þau viðskipti. Þá hefur
lausleg markaðskönnun gefið til
kynna að unnt væri að selja
þennan fisk frá Tröllanausti í
stórum stíl til verslana á Reykja-
víkursvæðinu.
Guðrún Ósk Hrólfsdóttir afgreiðslustúlka í Tröllanausti með ftsk
í lofttœmdum umbúðum. Ljósm. AB
Vert er að geta þess að á
Djúpavogi er í byggingu dvalar-
heimili fyrir aldraða sem hýst
getur 12 vistmenn. Nú er lokið
við að steypa grunn en stærsti
hluti kostnaðar hefur verið
greiddur með gjafafé.
Fyrir utan þessar fram-
kvæmdir mun sveitarfélagið
sinna almennum fegrunar- og
viðhaldsverkefnum en hins veg-
ar verður hlé á gatnagerðar-
framkvæmdum. í fyrra var lögð
klæðning á 1,2 km gatna og var
ákveðið að láta fé renna til ann-
arra verkefna í ár.
Ólafur sagði að atvinnuá-
stand á Djúpavogi hefði verið
gott og sérstaklega mikið hefði
verið að gera í apríl og maí en
þá barst mikill steinbítsafli að
landi. Kvótinn í byggðarlaginu,
sem er um 4.200 tonn, hefur
haldist þar kyrr og ekki verið
seldur burt.