Austurland


Austurland - 01.04.1992, Page 2

Austurland - 01.04.1992, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR, 1. APRÍL 1992. Austurland MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS Útgeíandi: Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Austurlandi Ritnefnd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjamason, Einar Már Sigurðarson, Smári Geirsson og Steinunn Aðalsteinsdóttir Ritstjóri: Elma Guðmundsdóttir (ábm.) @ 71532 Ljósmyndari: Ari Benediktsson Ritstjórnarskrifstofa: S 71750 og 71571 - Fax: 71756 Auglýsingar og dreifing: Sólveig Hafsteinsdóttir @ 71571, 71750 og 71930 Ritstjórn, afgreiðsla og auglýsingar: Egilsbraut 8 • Pósthólf 75 ■ 740 Neskaupstaður ■ @ 71750 og 71571 AUSTURLAND er aðili að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða Prentun: Nesprent s Atök á vinnumarkaði? Samningar milli aðila á vinnumarkaði hafa verið lausir frá haustdögum. Þrátt fyrir margvíslegar tilraunir til samninga hafa þeir ekki tekist. Undan- farnar vikur hafa samtök launafólks verið í samfloti við samningatilraunir, en þrátt fyrir hógværar kröfur fulltrúa launafólks hefur nú slitnað upp úr samningaviðræðum. Aðstæður nú þegar reynt er að ná samningum, hafa m.a. mótast af aðgerðum núverandi ríkisstjórnar. Pegar ríkisstjórnin boðaði aðgerðir sínar sl. haust, mátti lj óst vera að þær aðgerðir gerðu allar aðstæður til kj arasamn- inga miklu mun erfiðari. Meginþungi aðgerða ríkisstjórnarinnar bitnaði á þeim sem síst skyldi og veldur því að kaupmáttur launafólks hefur skerst verulega umfram það sem ella hefði orðið. Almennt atvinnuástand hefur ekki verið verra í áratugi og margt sem bendir til þess að atvinnuleysi geti orðið það mesta á lýðveldistímanum verði ekkert að gert. Eitt megin einkenni stefnu ríkisstjómarinnar í atvinnu- málum er að láta eins og henni komi ástand atvinnuveganna ekkert við. Þessi stefna stjórnarinnar hefur m.a. aukið mjög á vanda atvinnuveganna, auk þeirrar óvissu sem fylgir því að ekki eru gerðir nýir kjarasamningar. Samtök launafólks hafa lagt mikla áherslu á stöðugleika og litla verðbólgu í kröfugerð sinni, og hafa stillt kröfumsínum í algert lámark. Til að auðvelda samningagerðina hafa samtök launafólks reynt að hafa áhrif á stjórnvöld, og farið fram á nokkrar breytingar á efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar. Þessum óskum hefur ríkisstjórnin svarað á þann hátt að undrun sætir. Stefna ríkisstjórnarinnar er augljóslega helsti þröskuldur í vegi þess að gerðir verði nýir kjarasamningar. „Kemur okkur ekki við“ stefnan í atvinnu- málum, er greinilega einnig ráðandi varðandi kjarasamningana, þrátt fyrir það að ríkisvaldið sem slíkt er stærsti einstaki samningsaðilinn á vinnumark- aðnum. Helstu hugmyndir sem heyrst hafa frá ríkisstjóminni meðan samn- ingaviðræður hafa staðið eru ekki til þess fallnar að leysa samningamálin. Hugmyndir um að leggja á fjármagnsskatt til að lækka á móti skatta af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, og tillögur um nýja tegund sjúklingaskatts virka eðlilega eins og kaldar vatnsgusur framan í samningamenn launafólks. Það er mikill ábyrgðarhluti fyrir ríkisstjórnina ef hún ætlar að þvinga samtök launafólks til varnaraðgerða í þeirri mynd að til stórfelldra átaka komi á vinnumarkaði. Samtök launafólks hafa sýnt mikið langlundargeð í samningaviðræðum, en verði ekki fljótlega breyting á stefnu ríkisstjórnar- innar eiga samtök launafólks ekki nema eitt svar. ems Frá bæjarmálaráði ABN Bæjarmálaráðsfundur að Egilsbraut 11 (Kreml) í kvöld kl. 2030 Stjórn bæjarmálaráðs Nemendur 3. bekkjar B í Nesskóla ásamt kennara sínum í heimsókn á skrifstofum Austurlands í síðustu viku. Ljósm. AB Getraunir Já, 200 milljónir! Potturinn í getraunum um næstu helgi verð- ur 200 milljónir og því aldeilis tilefni til að taka þátt. Að sögn Einars í Króka hafa heimtur á merktu getraunaseðlunum ver- ið frekar dræmar og eins og áður sagði nú er sko ástæða til að taka þátt. Ekkert slen, drífið ykkur niður í Króka og tippið. Ástæð- an fyrir því að potturinn er um 200 milljónir og þar af um 70 í 1. vinning er sú að þetta er svo- kallaður aurapottur. Aurapott- urinn er þannig til kominn að vinningar í Svíþjóð og á íslandi eru látnir standa á heilum tug og afgangurinn settur í sérstak- an pott, aurapott og honum síð- an bætt við vinningsupphæðina tvisvar á vetri. Seðillinn um næstu helgi er ansi skrautlegur, 5 leikir úr sænsku úrvalsdeildinni, All- svenskan, og fara þeir allir fram á sunnudag eins og 6. leikurinn á seðlinum sem er viðureign Liverpool og Portsmouth f undanúrslitum enska FA bik- arsins en síðan eru 7 leikir úr ensku 1. deildinni. En víkjum þá að getrauna- keppninni sem hófst á föstu- dagskvöld. Úrslit um helgina voru ansi snúin og árangur hóp- anna eftir því. Sigurvegararnir frá síðustu keppni, HBB, byrj- uðu þó vel og voru efstir með 8 rétta ásamt Peningapúkum. Pessi árangur HBB er nokkuð merkilegur í ljósi þess að í 10 kr. keppninni var Bubbi með 2 rétta og Bói með 1 réttan, ann- ars var árangur í 10 kr. keppn- inni ekki merkilegur nema hjá Hnykklunum, þeir komu mjög á óvart og voru með 8 rétta! en einungis 7 rétta í hinni keppn- inni þar sem má nota ótal kerfi. Kannski þeir hætti því og sendi framvegis bara inn eina röð. Eins og venjulega þá var Smári með 2 rétta. EK 4* Brídge Brídge O Bridge ^ Páskamót Bridgefélags Norðfjarðar verður haldið í Egilsbúð laugardaginn 18. apríl nk. og hefst kl. 1230. Spilað verður um silfurstig. Glæsileg verðlaun til þriggja efstu paranna. Þátttökugjald erkr. 6.000,-áparið og er innif alinn í því verði þriggj a rétta kvöldverður í Hótel Egilsbúð. Skráning er hafin hj á Elmu í síma 71532/71750, Heimi 71461/71507 og Jóhönnu 71612/71776. Stefnt er að þátttöku 34 para og lýkur skráningu 14. apríl. Bridgefélag Norðfjarðar Fáskrúdsfjöröur Frakklandsferð Nemendur9. bekkjar Grunn- apríl og rennur ágóði af henni í skóla Fáskrúðsfjarðar halda til þennan ferðasjóð. Þá verður Frakklands 14. maí og dvelja á leiksýning 9. apríl og árlega er frönskum heimilum í Gravelin- efnt til Maraþonkeppni í ein- es, vinabæ Fáskrúðsfjarðar, um hverri grein til styrktar ferða- viku tíma. sjóðnum. Einnig munu nemend- Gravelines er á Ermasunds- urnir afla fjár í ferðasjóð sinn strönd Frakklands á milli Cale með rækjusölu fyrir páskana. og Dunkirk. Á meðan dvalið verður í Nemendurnir hafa unnið að Frakklandi mun hópurinn ýmsum fjáröflunum í vetur. Þeir skreppa til Parísar og skoða sig hafa bakað kleinur og selt, verið þar um. Heimleiðis verður haldið með blómasölu og þeir hafa tek- 22. maí. Alls verða þetta 12 nem- ið að sér að þvo og bóna bíla. endur og tveir kennarar sem fara Árshátíð skólans verður 5. til Frakklands. MS/EG

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.