Húsfreyjan - 01.07.1960, Síða 5

Húsfreyjan - 01.07.1960, Síða 5
jafnréttisákvæði hjúskaparlaganna er sá háttur víða hafður enn, að fjármál hjón- anna eru öll í höndum heimilisföðurins, svo að konan veit lítið eða ekkert, hvað þeim líður. En þá verður þess ekki kraf- izt af henni, að hún viti til fulls, hvað fjárhagur heimilisins þolir og hvað hann þolir ekki. Þá er annar aðstöðumunur karls og konu mikill í nútímaheimili í kaupstað, sá, hve karlmaðurinn getur leyft sér miklu meiri fjarvistir frá heimilinu en konan, einkum þar sem lítil börn eru í heimilinu. Konan er bundin störfum heima með miklu lengri vinnudegi en karlmaðurinn. Konan þolir fjarvistir hús- bóndans um stund, en til lengdar þolir hún ekki að vera vanrækt. Ósjaldan kem- ur einmitt þetta upp, þegar ung hjón lenda í ógöngum með hjúskapinn og heimilið. Breyttum aðstæðum frá því, sem áður var, verður að svara með breyttum viðbrögðum. Skilningur á því verður að aukast, að sumt af þeirri ábyrgð, sem áður hvíldi á húsmóðurinni einni, verður heimilisfaðirinn að bera með henni eftir að hún er orðin ein um heimilisstörfin. Ég kem hér í Reykjavík inn í fjölda af ungum heimilum, hjá korn- ungum og ungum hjónum. Þar er víða ánægjulegt að koma, meðal annars vegna margs, sem ung hjón geta veitt sér nú af lífsþægindum, en ekki kom til mála að geta látið eftir sér snemma hjúskapar fyrir örfáum áratugum. En ánægjulegast af öllu þykir mér að sjá, hve elskulega sumir kornungir heimilisfeður annast heimilið sjálft í samvinnu við konuna. Sú gamla karlmannarómantík á ekki lengur heima, sem var í fullu gildi, þegar ég var að alast upp, a.m.k. ekki eins og aðstæður fjölmargra ungra heimila eru. Sjálfsagt mun ýmsum finnast þetta smámunir, sem litlu skipta raunverulega hamingju karls og konu. En þeir, sem eiga alvarlegt tal við ung hjón á örlaga- stund, geta ekki kallað þetta smámuni. ,,Hið smáa er stórt í harmanna heim“, og þegar hamingja heimilisins er í veði, verður sjálft hið smáa að stórmáli. Svo óendanlega mikils virði er heimilið, heill þess og lán. ★ Ágætu prestskonur, þegar þér gerðuð mér þann sóma að biðja mig að segja eitthvað á þessum fundi, var ég í vafa um, um hvað ég ætti að tala. Mér datt í hug, að einhverjum yðar kynni að verða til ánægju að heyra karlmann i-æða mál, sem oft ber á góma yðar sjálfra í milli, og um heimilið vildi ég feginn tala, veg- semd þess og vanda, og ég er ekki viss um, að margar konur komi inn í fleiri heimili en prestur í stórum verkahring, þótt hann ræki ekki húsvitjanir með sama hætti og áður fyrr var gert, hafi engan veginn tíma til þess. Og ekki ræði ég um heimilið við yður vegna þess, að ég telji það skilyrðislaust hinn eina rétta og. leyfilega starfsvettvang konunnar. Prestskonan þarf t. d. að annast miklu fleira en heimili sitt eitt. Þeir tímar eru auk þess liðnir, er aðrir möguleikar en heimilisstarfið buðust konunum tæplega. Og mikið af marklitlum viðkvæmnis- þvættingi er tíðum sagður í sambandi við konuna og heimilið, eins og nú er orðið högum háttað í nútímaþjóðfélagi. En sagan sýnir oss það, að á liðnum öld- um, jafnvel löngu liðnum öldum, leituðu íslenzkar konur sér menntunar og starfs- sviðs utan þeirra vébanda, sem heimilið setti þeim. Öllum er kunn sagan af Ingunni, sem kenndi prestsefnum í skóla Jóns ög- mundarsonar á Hólum. Vafalaust má telja, að íslenzk kona, Margrét hin odd- haga, hafi skorið hinn dýrlega biskups- bagal, sem fannst í steinþró Páls biskups fyrir fáum árum í Skálholti. Og má nærri um það fara, að svo dýrleg listiðja hafi ekki verið stopul ígripavinna þeirrar konu, og að margt fleira hafi hún skorið í bein og tré, sem listamenn teljast full- sæmdir af að vinna enn í dag. Þórunn, dóttir Ólafs sýslumanns Árnasonar í Haga á Barðaströnd og Halldóru Teits- dóttur, sem þjóðsagnakenndar sögur fara HÚSFREYJAN 5

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.