Húsfreyjan - 01.07.1960, Blaðsíða 25

Húsfreyjan - 01.07.1960, Blaðsíða 25
Matbrauð með ýmsu áleggi Manneldisþáttur Smurt brauð Smurt brauð getur verið mjög breyti- legt, hvað stærð, brauðtegund og álegg snertir, og ýmist má bera það fram kalt eða heitt. Margir bera því við, að það sé bæði dýrt og seinlegt að útbúa smurt brauð. En það getur verið bæði lystugt og fallegt, án þess að of mikil vinna sé í það lögð og miklu til kostað, ef unnið er af hagsýni. Að einu þarf þó alltaf að gæta: allt álegg verður að vera nýtt og ó- skemmt. Þegar smurt brauð er borið t.d. fram með öli og á að koma í stað heillar mál- tíðar, eiga brauðsneiðamar að vera stór- ar og áleggið má og á helzt að standa út af brauðsneiðunum. Hina óskyldustu afganga má með hægu móti nýta upp sem álegg, t.d. fisk bl. í majonies eða eðra sósu, og kjöt og ýmsar pylsur m/sósu, súru eða fersku grænu. Jafnvel má nýta kartöflur og grænmeti. Er ágæt regla að skammta smurt brauð einu sinni til tvisv- ar í viku og hagnýta þá það, sem til er í ísskápnum. Smurt brauð í nestispakkann þarf að vera auðborðað og auðmeðfarið. Bezt er að smyrja samlokur í nestispakkann, ann- ars á allt álegg að liggja flatt og lagður smjörpappír á milli. Fjölbreytni þarf að hafa í áleggi, sem má ekki vera mjög blautt, eigi t.d. að nota tómata, er sjálf- sagt að láta þá heila í pakkann. Nýsmurt brauð, sem ýmist er borið fram sem for- réttur til miðdegisverðar eða með kaffi, á að vera frekar smátt, girnilegt og hug- myndaríkt. Áleggið á að vera óskylt, en þó mynda eins og eina heild á að líta. Oft eru sneiðarnar skornar undan mót- um, skal þá áleggið skorið á sama hátt. Smurt brauð með vínblöndu er haft munnbitasmátt og pinnum stungið í. HÚSFREYJAN 25

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.