Húsfreyjan - 01.07.1960, Síða 7

Húsfreyjan - 01.07.1960, Síða 7
Handavinnusýning frá Statens Kvinnelige Industriskole í Osló SAMVINNA ritstjórnar Húsfreyjunnar er frábærlega góá, og þegar ritstjórinn bað mig að segja eitthvað frá ofannefndri sýningu, fann ég sárt til vankunnáttu minnar í kvenlegum iðnum og flýtti mér til Elsu Guðjónsson í liðsbón. Við fórum eina morgunstund að líta á sýninguna og taka saman lýsingu á þeim grundvelli, að hún legði til vitið, en ég tíndi til orðin. Við gengum fyrst að ullarsýnishornun- um, sem komið var fyrir á miðju gólfi í Bogasal Þjóðminjasafnsins, þar sem sýn- ingin stóð. Spurði ég Elsu um álit hennar á þeirri kennsluaðferð, sem beitt er í hinum norska handavinnukennaraskóla, að láta nemendur læra meðferð ullar allt frá frumstigi, og urðum við sammála um, að slík kennsluaðferð hlyti að vera mjög æskileg, og að gott væri, að lögð yrði enn meiri rækt við meðferð og greiningu ullar hérlendis en gert er. Ullarvinna stendur hér á gömlum merg og mjög væri miður, að sú þekking og leikni hyrfi, sem marg- ar íslenzkar konur hafa haft til að bera um hagnýtingu ullar. Á þessari sýningu voru mjög góð og greinileg sýnishorn af því, hvað vinna má — og vinna á — úr mismunandi ullarflokkum. Togbandið slétt og gljáandi, misfínn þráður úr mis- góðri ull, allt niður í það band, sem spunnið er úr úrgangsull og ætlað er í gólfábreiður. Allt má hagnýta, ef rétt er á haldið. Prjónlesið, sem þarna var til sýnis, tók að því er áferð snerti, í engu fram því, sem hér er unnið, en eitt var þar mjög skemmtilegt — nemendurnir höfðu sjálf- ir skapað munstrin í útprjónið og þau voru hreinleg og einföld og litasamsetn- ing góð. I einu horni salarins var messuhökull, ofinn úr togbandi, munstrið all nýtízku- legt, en fagurt og litasamsetningin ótrú- lega blæbrigðarík. Svona klæði hefur ekki á sér gerfigljáa, það mun halda lit sínum og áferð meðan nokkuð er eftir af því. HÚSFREYJAN 7

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.