Húsfreyjan - 01.07.1960, Side 8
Rektor skólans, frú Helen Engelstad,
sagði, að þó að kirkjugestir hristu kannski
í fyrstu höfuðið yfir því að ætla slíkt
efni í kirkjuskrúða, þá væri reyndin sú,
að þeir sem sæju slíka hökla í kirkjun-
um, kynnu þeim ákaflega vel og eftir-
spurn eftir slíkum messuklæðum færi
vaxandi.
A sýnishorn af hökli var spjaldofið
skrautband utan á höklinum. Þetta sézt
einnig á gömlum kirkjumunum, sem til
eru hér í Þjóðminjasafninu, t. d. má sjá
spjaldofin kögurbönd á altarisskrúða og
utan um stóra, refilsaumaða altarisklæðið
frá Hólum er slyngd brún. En á sýning-
unni voru fleiri sýnishorn af sérlega fal-
legum og fínum spjaldvefnaði og slík
bönd geta verið skemmtileg til skreyt-
inga á ýmsan hátt.
Við færðum okkur að fremsta borði
sýningarinnar, sem á voru sýnishorn af
útsaumi. Á veggnum uppi yfir því héngu
saumaðar smámyndir og dúkar. Þar, sem
annars staðar, kom greinilega í ljós, að
nemendur Industriskólans vinna sjálf-
stætt. Á myndunum á veggnum voru
með einföldum linum skapaðar ótrúlega
fjölbreyttar táknmyndir. Söngflokkurinn
með nótnaborðinu neðst á myndinni,
myndin af skólanum með táknum
kennslugreina og námsmeyjum, myndirn-
ar af verbúðum, bátum, fiskum og fólki
o.s.frv. Allt var þetta saumað með margs-
konar sporum, eftir því hvað gaf bezt
áhrif á hverjum stað.
I möppu á borðinu var úrlausn verk-
efnis, sem eðlilega vakti sérstaka athygli
okkar. Einn af nemendum skólans kom
til Islands s.l. sumar og sá þá á Þjóð-
minjasafninu m.a. teppi frá 18. öld, saum-
að með augnsaumi. Nemendum var fengið
það verkefni, að þær skyldu hugsa sér,
að á stuttu námskeiði ættu þær að kenna
einhverja gamla útsaumsaðferð, en sam-
ræma hana kröfum nútímans. Stúlkan,
sem til íslands kom, gerði lítinn dúk með
augnsaumi. Gamli íslenzki augnsaumur-
inn er saumaður með jafnstórum spor-
um, hlið við hlið. Norska stúlkan gerir
Dúkur með augnsaumi
sporin mislöng og lætur þau skekkjast,
svo að áferðin verður létt og hæfir því
efni, sem hún saumar í, þannig fær hin
gamla útsaumsaðferð nýjan svip. Og hún
gengur þannig frá dúknum, að í faldbrún-
ina saumar hún smálínu með afturspori
í sama bláa lit og er annars staðar í út-
saumnum, svo að örlítil litbrigði fást til
áherzlu á útlínur dúksins.
Þarna voru mörg ákaflega einföld
mynztur mjög haglega gerð og frábær-
lega vel saumuð, til dæmis er tvöfalt
þræðispor og flatsaumur saman í dúki,
svartur glitsaumur á hvítum grunni er
afar áhrifarikur og augnsaumur ofan í
ofinn bekk er mjög skemmtileg skreyt-
ing.
Áður en við hurfum frá útsaumnum,
virtum við fyrir okkur hvíta líntreyju við
þjóðbúning, með útsaumuðum kraga og
linningum, og okkur kom saman um, að
æskilegt væri að stefna að því, að gera
íslenzka upphlutinn þjóðlegri með því að
skapa fyrirmyndir að útsaumuðum skyrt-
8
HÚSFREYJAN