Húsfreyjan - 01.07.1960, Blaðsíða 13
vinstri sinnuðu stjórnmálaflokkum, já,
yfirleitt allir, sem ekki vildu starfa með
nazistum. Þá var bannað að kenna pólsku
í skólunum og því mótmælti fjöldi fólks
með því að hætta að senda börn sín í
opinbera skóla, en kenndu þeim þess í
stað á laun. Takmark nazista var að af-
má þjóðareinkenni Pólverja og auðvitað
var það þáttur í þeirri baráttu að svipta
æskuna þekkingu á tungu sinni og sögu.
Frjálslyndu fólki ætlaði Hitler að láta
útrýma með öllu og það var hundelt og
varð að lifa og starfa á laun öll árin frá
1939—1944, er uppreisnin hófst. Hún
stóð í 63 daga og þá féll fjöldi æsku-
fólks. Dauðinn stóð að allra baki, hver
dagur, sem maður komst lífs af, var
kraftaverk. Og þó að ekki væri alltaf
barizt í sjálfu Póllandi styrjaldarárin, þá
fóru herflutningar í sífellu fram um land-
ið og andspyrnuhreyfingin hélt uppi árás-
um og skemmdarverkum til að tefja þá
eftir mætti. Um hernám Póllands og allt,
sem þar gerðist, má með sanni segja það,
sem ein kunnasta skáldkona okkar sagði:
Hræðilegast er að maður skuli hafa skap-
að manni slík örlög.
Hvenær hófuð þér að starfa í utanríkis-
þjónustunni?
Eftir styrjöldina. Fyrst var ég blaða-
fulltrúi og um 1950 varð ég forstjóri
þeirrar deildar ráðuneytisins, sem fjall-
Pólskir þjóðbúningar
Varsjá endurbyggð
aði um málefni skandinavisku landanna.
1954 fór ég eitt ár til Kóreu í nefnd
þeirri, sem fylgjast átti með framkvæmd
friðarsamninganna og 1956 til Indókína
til að starfa þar í sams konar alþjóða-
nefnd. Síðar sama ár fór ég aftur heim
til Póllands, starfaði heima í hálft ár,
var þá send til Stokkhólms og starfaði
þar til 1959, að ég var send til íslands,
til þess að taka við forstöðu sendiráðs-
ins hér.
Hvernig var það á styrjaldarárunum
— var ekki kommúnistaflokkurinn bann-
aður í Póllandi?
Jú, það var hann, en hann starfaði
alltaf á laun og af þeim kjarna spratt
Verkamannaflokkurinn, sem nú myndar
stjórn landsins, ásamt fulltrúum frá
Bændaflokknum og Demókrataflokkn-
um. Allt eru þetta vinstri sinnaðir stjórn-
málaflokkar, en mismunandi róttækir og
í Verkamannaflokknum, sem róttækastur
er, munu ekki vera nema rösklega milljón
13