Húsfreyjan - 01.07.1966, Side 33

Húsfreyjan - 01.07.1966, Side 33
FRÁ LEIÐBEININGASTÖÐ HÚSMÆÐRA SRJALL UM KRYDD Mikið' af kryddi liefur upp á síðkastið ver- ið’ flutt til landsins. Við sjáum nú alls kon- ar kryddtegundir í fallegum og girnilegum baukum og glösum í liillunum í sjálfsaf- greiðslubúðunum. Alltaf er gaman að breyta til í matargerð, svo að margar bús- mæðurliafa að sjálfsögðu ábuga á að kynna sér allar Jjessar kryddtegundir nánar. Krydd er Jmrrkaðar plöntur eða hlutar af plöntum. Vegna bragð og lyktarefna, sem í þeim eru, eru Jjau látin í matinn, svo að liann verði bragðbetri, bragðsterkari og kannski til J)ess að hann fái einlivern skemmtilegan keim. Tilgangurinn með því að láta krydd í matinn er í stuttu máli sá, að erta bragðskynjunina á þann liátt, að við njótum J)ess að borða hann. En margs konar nýtt grænmeti er notað sem krydd. Sem dæmi má nefna alls kon- ar lauka. Laukur hefur sennilega verið ræktaður hér á landi á landnámstíð, því í Frostaþingslögum eru ákvæði um J)að, að ef maður gengur í laukagarð annars manns eða hvanngarð (og stelur), J)á má refsa lion- um þegar í stað. Minnst laukbragð er af graslauki. Hann er mjög auðveldur í ræktun og er hann notaður hrár, niðursneiddur. Strá má graslauk ofan á brauðsneiðar með áleggi eins og t. d. harðsoðnum eggjum, reyktri síld, salötum o. fl. Einnig má nota liann til að strá ofan á eggjaköku, ofan á soðnar kartöflur og fisk. En þar sem matarsiðir frá suðlægari lönduin eru farnir að liafa álirif á okkar matargerð, kunna margir nú að meta hvít- lauk. Hvítlaukur er bragðsterkasti laukur, sem J)ekkist. Það á einungis að nota örlítið magn af bonum. Mikill livítlaukskeimur kemur af grænurn salatblöðum, sé skálin, sem við berum salatið fram í, nudduð með livítlauk. Einn hvítlaukur er samsettur af mörgum litlum laukum. I dönskum upp- skriftum er oft nefnt „et fed hvidlög“, og er J)á átt við einn af þessum litlu laukum. Hvítlaukur er einnig þurrkaður og mulinn í duft og seldur sem livítlauksduft, eða j)á að duftið er blandað saman við salt og kall- að livítlaukssalt. Krydda má með livítlauk alls konar sósur og kjötrétli, en munið að fara varlega í sakirnar. IIÚSFREYJAN 29

x

Húsfreyjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.