Austurland - 31.08.2001, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001
Austuiland
Ritstjórn, afgrciðsla og auglýsingar:
Hafnarbraut 4 - Pósthólf 75 - 740 Neskaupstaður
ffi 477 1750 - Fax: 477 1756
Netfang: austurland@eldhorn.is
Ritstjóri/blaðaniaður: Elma Guðmundsdóttir
® 477 1532 og 861 4767
Auglýsingastjóri: Erla Traustadóttir S 477 1571
Útgefandi: Austurland
Ritncfnd: Einar Már Sigurðarson, Elma Guðmundsdóttir,
Guðmundur Bjamason, Smári Geirsson (ábm)
og Steinunn L. Aðalsteinsdóttir
Umbrot: Austurland - Prcntun: Nesprent hf.
Austurland er í Samtökum
bœjar- og héraðsfréttablaða
Yirkjun og
orkufrekur iðnaður
Fátt hefur verið meira rætt undanfarin misseri en fyrirhugaðar
virkjunar og álversframkvæmdir á Austurlandi. Andstæðingar þessara
framkvæmda hafa farið hamförum gegn þeim og ljóst má vera að
þessum framkvæmdum hefði verið slegið á frest, ef ekki hefði komið
til einörð afstaða mikils meirihluta austfirðinga og eindregin stuðn-
ingur ríkisstjórnar og stjómarflokka við framkvæmdir.
Austfirskir sveitarstjórnarmenn hafa verið í forystusveit austfirðinga
í þessum málum og komið þar fram sem samstæð og nær órofa fylk-
ing. Á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi sem haldinn
var á dögunum var samþykkt nær samhljóða eftirfarandi ályktun:
Aðalfundur SSA haldinn á Vopnafirði dagana 23. og 24. ágúst 2001
ítrekar enn eindreginn stuðning sambandsins við áform um virkjunar-
framkvæmdir á Austurlandi og fyrirhugaða nýtingu hreinnar og end-
urnýjanlegrar orku til framleiðslustarfsemi og atvinnuuppbyggingar í
landshlutanum.
Þá santþykkir aðalfundurinn að fela stjórn SSA og Orku- og stór-
iðjunefnd sambandsins að yfirfara úrskurð Skipulagsstofnunar þar
sem lagst er gegn byggingu Kárahnjúkavirkjunar og heimilar stjóm-
inni og nefndinni að kæra úrskurðinn. I tengslum við virkjunar- og
stóriðjumálin tekur fundurinn eftirfarandi fram:
Fagna ber því hve mikil áhersla hefur verið lögð á vandað umhverf-
ismat vegna virkjunar- og álversframkvæmda enda hefur verið tryggt
að öll matsvinna standist alþjóðlegan samanburð. Fundurinn leggur
gífurlega áherslu á að allt verði gert til að þær tímaáætlanir sem settar
voru fram í NORAL- yfirlýsingunni standist.
Lýst er yfir mikilli ánægju með það nána samstarf sem fram-
kvæmdaaðilar virkjunar og álvers ásamt stjórnvöldum hafa haft við
hlutaðeigandi sveitarfélög og stofnanir sveitarfélaga í landshlutanum.
Slíkt samstarf hefur gert kleift að undirbúa hið austfirska samfélag
betur en ella fyrir allar þær breytingar sem fyrirhugaðar framkvæmdir
hafa í för með sér.
Áhersla er lögð á að bygging álvers og virkjunar mun hafa mikil og
jákvæð samfélagsleg áhrif á Austurlandi og eins munu þessar fram-
kvæmdir verða mikilvægar fyrir þjóðarbúið.
Fyrirhugaðar virkjunarframkvæmdir og bygging álvers á Austur-
landi er án efa stærsta byggðaaðgerð sem íslensk stjórnvöld eiga
möguleika á að ráðast í. í ljósi byggðaþróunar síðustu ára er einkar
mikilvægt að af framkvæmdunum verði og með markvissum hætti
verði stuðlað að því af öllum sem hlut eiga að máli.
Austurland tekur heilshugar undir alla áhersluþætti í ályktun
Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og væntir þess að þær miklu
framkvæmdir sem þar er um fjallað verði að veruleika.
Undirstaða efnahagslegrar velgengni íslendinga byggist á því að við
við nýtum náttúruauðlindir okkar, sem fyrst og fremst eru sjávarfang
og orka.Takist okkur það ekki getum við ekki búist við því að við
getum miðað okkur við nágrannaþjóðirnar um almenn lífskjör og
menntunarstig, því peningar verða ekki til í bönkum eða fjárfestinga-
fyrirtækjum. Þessar einföldu staðreyndir hafa íslenskir vinstri menn
alltaf skilið. Því er það ömurlegt fyrir okkur, sem talið höfum okkur
hingað til til vinstri kants í íslenskum stjórnmálum að horfa upp á
framgöngu stjómarandstöðunnar í virkjana- og stóriðjumálum á
Austurlandi. Sérstaklega veldur framganga forystumanna Samfylking-
arinnar miklum vonbrigðum. Með framgöngu sinni hefur þeim tekist
að flæma kjósendur sína á Austurlandi frá flokknum og sennilega
skammt að bíða þess að stærstur hluti flokksmanna á Austurlandi segi
sig úr Samfylkingunni.
GB
Fegurðarverlaun í Fjarðabyggð
Á þriðjudaginn fór fram af-
hending viðurkenninga fyrir
fallegustu garðana í Fjarðabyggð
svo og voru afhentar viðurkenn-
ingar fyrir snyrtilegasta umhverfi
fyrirtækja og stofnana og til
þeirra einstaklina sem hafa lagt
meira af mörkum en aðrir til
fegrunar umhverfisins. Það var
Petrún Bj. Jónsdóttir, formaður
Umhverfísmálanefndar sem
afhenti viðurkenningamar en þær
hlutu fyrir fallegustu gaiðana:
Erla Traustadóttir og Dagbjart-
ur Ari Gunnarsson Sæbakka 5,
Neskaupstað, Hólmfríður M.
Sigurðardóttir og Gunnar Gísla-
son, Steinholtsvegi I, Eskifirði og
Pálína M. Guðmundsdóttir og
Aðalsteinn Eiríksson, Heiðarvegi
13, Reyðarfirði
Umhverfismálanefnd valdi um-
hverfi Síldarvinnslunnar hf. við
Norðfjarðarhöfn, snyrtilegasta
umhverfi fyrirtækja í Fjarðabyggð
og umhverfi safnaðarheimilis
Reyðarfjarðarkirkju hlaut viður-
kenningu sem snyrtilegasta
umhverfi stofnana í Fjarðabyggð.
Þá fær’i nefndin Höllu Einars-
dóttur og Gunnari Hjaltasyni,
Austurvegi 17, Reyðarfirði,
viðurkenningu fyrir lofsvert
framtak til umhverfismála og
þeirra þátt í fegrun sveitarfél-
agsins svo og þeim Pjetri Sævari
Hallgrímssyni Urðarteigi 37 a í
Neskaupstað, og Jennýju Eyfeld
Jakobsdóttur og Guðmundi
Agnarssyni, Blómsturvöllum 20 í
Neskaupstað, samskonar viður-
kenningu.
Að athöfn lokinni var viðstödd-
um boðið upp á veitingar.
(------------------------------------------------1
I Skautasvell á íþróttavellinum |
!
i i
■ i
! Undanfarin kvöld hefur verið margt um manninn !
I I
| á íþróttavellinum í Neskaupstað. Þar hefur verið j
j gott skautasvell sem óspart hefur verið notað. Er i
[ ekki ónýtt að hafa skautasvell á svo aðgegnilegum
! stað. — En er ekki orðið tímabært að fara að huga
! að bygginu skautahallar? Gaman væri og gagnlegt !
I
i að geta reist hana þegar íþróttahúsið er fullbúið.
Austurland 16. febrúar 1968 \
1 I
I
I
I
Haustopnun frá 27. ágúst 2001
Mánudaga - föstudaga
06:45 - 09.00 og 17.00 -19:30
laugardaga 10.00 - 18.00
sunnudaga 10.00 - 14.00
gufubað konur, þriðjudaga og laugardaga
gUfubað karlar, fimmtudaga og sunnudaga