Eining - 01.02.1948, Side 1
J
Húsmál templara
í Reykjavík
Vesturhlið hússius.
yrðu að ljá því fylgi sitt til fullkom-
innar lausnar.
Þá sýndi formaður húsráðsins tvo
uppdrætti af miklu og glæsilegu húsi,
en tók þó skýrt fram, að slíkt væri að-
eins tillaga, en ekkert væri enn ákvaðið
til fulls, hvorki um hússtæði eða end-
anlega gerð þess- Meðfylgjandi myndir
sýna þessa uppdrætti-
Það er ekki aðeins eitt mesta áhuga-
og nauðsynjamál Reglunnar að koma
upp slíku félagsheimili í Reykjavík,
heldur er það líka þjóðþrifamál. Regl-
an hefur í raun og veru ráðið sig í þjón-
ustu þjóðarinnar við mikið mannúðar-
og björgunarstarf, en sanngjarnt hlýt-
ur það að vera, að hverjum verk-
manni sé fengið í hendur hin nauðsyn-
legu verkfæri. Minna má það ekki vera-
Arbók bindindismanna
Samvinnunefnd bindindismanna hef-
ur ákveðið að gefa út árbók bindindis-
manna. Ritstjóri hennar hefur verið
ráðinn Ármann Kristinsson stud jur.
Ælast er til þess að árbókin gefi full-
komið heildaryfirlit yfir alla bindind-
isstarfsemi í landinu. Eru því öll fé-
lög, sem eitíhvað leggja til bindindis-
máianna, beðin að senda skýrslu um
starf sitt á árinu 1947 til Ármanns
Kristinssonar, Sólvallagötu 29, Reykja-
vík, fyrir 1. júlí 1948.
Framlilið hússins. Uppdr. Freymóður Jóhannsson.
Húsráð Góðtemplara í Reykjavík
boðaði á sinn fund, 24- jan. s. 1. nokkra
blaðamenn og fréttaritara útvarpsins,
en mættir voru einnig stórtemplar, um-
dæmistemplar og þingtemplar-
Formaður húsráðsins, Freymóður
Jóhannsson listmálari, rakti nokkuð
sögu Góðtemplarahússins í Reykjavík,
sem nú er rúmra 69 ára, komið úr eign
Reglunnar, er á fallanda fæti og alger-
lega ófullnægjandi hinu margþætta
félags- og menningarstarfi Reglunnar.
Það eitt gæti bætt úr slíkri þörf, að
reist væri í Reykjavík vandað stórhýsi,
sem jafnaöist á við hin beztu samkomu-
hús og félagsheimili nútímans og gæti
orðið, ekki aðeins miðstöð félagslífs og
menningarstarfs Reglunnar í Reykja-
vík, heldur og miðstöð bindindisstarfs-
ins í landinu.
Allítarleg grein var gerð fyrir þessu
í síðasta blaði Einingar og verður það
ekki endurtekið frekar hér.
Formaður húsráðsins benti á, að þótt
reglufélagarnir mundu leggja mikið á
sig til þess að geta komið upp veglegu
stórhýsi í Reykjavík, þá væri slíkt þeim
samt um megn. Þess vegna hefði verið
leitað til þjóðarinnar í heild, ríkisstjórn-
ar og Alþingis, um stuðning til þess-
ara nauðsynlegu framkvæmda. Málið
hefði strax fengið góðar undirtektir
hjá mörgum, tafizt þó nokkuð í Alþingi,
en væri þar nú til umræðu og horfði
frcmur vel um það, þar sem væri frum-
varp utanríkisráðherra um aukin fjár-
styrk ríkisins til slíkra framkvæmda,
en allir, sem skilning hefðu á málinu,