Eining - 01.02.1948, Side 11

Eining - 01.02.1948, Side 11
* E I N I N G 11 V Annáll ársins 1847 Framh. Um sumarið kom Alþingi saman hér í bæ, 1. júlí og stóð til 7. ágúst- Forseti var kosinn Þórður dómstjóri Svein- björnsson, því að Bjarni Thorsteinsson hafði fengið sig leystan frá þingsetu (vegna vaxandi sjóndepru). Sem kon- ungsfulltrúi var mættur E- Bardenfleth stiftamtmaður, en P. Melsted sýslumað- ur var honum til aðstoðar eins og hið fyrra skipti. Tvö bindindisfélög voru stofnuð í bænum, annað fyrir skólapilta aðallega, en hitt fyrir bæjarmenn. Hið fyrr- nefnda félag hafði að réttu lagi verið stofnað meðan skólinn var enn á Bessa- stöðum, líklega árið 1844- Höfðu þá all- ir piltar (að einum undanskildum) gengið í félagið. En eftir að skólinn fluttist hingað, var félag þetta endur- skapað sem „Bindindisfélag Reykjavík- ur lærða skóla“ og gengu í það með piltum allir kennararnir- Fyrir hinu síðarnefnda bindindisfélagi (er hófst með 24 meðlimum), gekkst land- og bæjarfógeti Stefán Gunnlaugsson, (Stofnunardagur þess var 16. janúar)- Stefán Gunnlaugsson var ákafamaður i lund og óhlífinn. Hann hafði þegar árið 1844 gengið í hið íslenzka hóf- semdarfélag, sem stofnað hafði verið af Hafnar-íslendingum árið áður, og vildi nú vinna þessari hreyfingu fylgi í því lögsagnarumdæmi, sem hann var settur yfir, en gætti ekki alltaf sem skyldi, hvað lög heimiluðu. Svo var m. a. um auglýsingu, sem hann 24. febr. birti í Reykjavík og hljóðaði svo: „Þeir, sem drekka og drabba, samt styðja dag- lega krambúðarborðin, verða skrifaðir í bók og fá engan styrk af fátækra- sjóði“--Háskólinn í Marburg útnefndi Jón Thorstensen landlækni „dr. phil“. Á fyrstu mánuðum skólahaldsins í hinum nýja eða endurreista latínuskóla var stofnaður „Bræðrasjóður Reykja- víkur-skóla“. Stofnfé sjóðs þessa var andvirði báts, sem skólapiltar á Bessa- stöðum áttu, en höfðu selt eftir flutn- inginn til Reykjavíkur, með því að slíks báts gerðist ekki framar nein þörf. Þeg- ar vextir sjóðsins væru orðnir 20 rdl. á ári skyldi vöxtum varið til styrktar fátækum piltum, er ekki gætu fengið neina ölmusu. Urðu margir á hinum næstu árum til að styrkja sjóð þenna með gjöfum, en hverjum skólasveini var gert að skyldu, að greiða til sjóðs- ins 3 mörk á ári. Stofnfé sjóðsins voru 100 rdl- (þar af voru 43 rdl. andvirði bátsins; hitt höfðu kennarar skólans og einn maður utan skóla gefið). (Nú er eign sjóðsins orðin um 73.500,00 kr.). Um veturinn kom upp áköf taugaveiki í skólanum og fjöldi pilta sýktist; einn- ig sýktist umsjónarmaður skólahússins, Jóhann Petersen, og dó. Var þá Páll Mélsted cand. phil. falin umsjón skól- ans og gegndi hann því starfi tvo vetur. Hoppe stiftamtmaður fékk um vet- urinn lausn frá embætti með biðlaun- um, (varð ári síðar amtmaður í Sórey) og fór utan um sumarið alfarið, sam- skipa Bardenfleth konungsfulltrúa, en hafði áður afhent embættið eftirmanni sínum hér, M- H. Rosenörn kammer- junkara, er fengið hafði veitingu fyrir embættinu 7. marz. — Samkvæmt fyr- irheiti (gefnu 7. júní 1841) var um vorið (með konungsbréfi 21- maí) á- kveðið, að prestaskóla skyldi setja á stofn um haustið og hafði dr. Pétur prófastur Pétursson s- d. verið skipað- ur forstöðumaður hins áformaða nýja skóla- Nokkru síðar var Sigurður Mel- sted skipaður fastur kennari við sama skóla. Var skólanum ætlað húsnæði í húsi latínuskólans — ein fyrirlestra- stofa og eitt svefnherbergi fyrir 10 nemendur. Prestaskólinn var settur í fyrsta sinn 2. okt. um haustið og vígður við sama tækifæri. Flutti Helgi Thord- ersen biskup vígsluræðuna. Höfðu þá 8 stúdentar fengið inntöku i skólann- Dr- Pétur settist að í húsi, sem Hans Möller kaupmaður hafði reist á horni Austurstrætis og (núverandi) Póst- hússtrætis, en Sig. Melsted í húsi Sím. Hansens kaupmanns, (sem seinna átti Teitur Finnbogason). Milli þessara húsa, (við Austurvöll austanverðan), fékk Hallgr. Scheving sér útmælda byggingarlóð og reisti þar hús um sum- arið. — Knudtson seldi þá um sumarið mylluna, sem hann hafði látið reisa í Þingholtunum árið áður, H. J. Ohlsen malarasveini- Hafði honum ekki þótt rekstur hennar borga sig. Á þessu ári önduðust hér í bæ Jóhann G. Möller lyfsali 27- febr., 37 ára, „frá mörgum börnum og miklum skuldum“, og Símon Hansen kaupmaður (sonur Bátsenda-Hansens) 25. sept- 65 ára gamall. (Árbækur Reykjavíkur. Dr. Jón Helgason biskup). Óþokkabrögð felu- mannsins „Oft er flagð undir fögru skinni“. Stundum er mesta hrakmennið klætt sem prúðmannlegast- Undir hinum þunna siðmenningarh j úpi þjóðanna leynist stöðugt hinn glefsandi vargur villidýrsins. Á styrjaldarárunum kastar hann grímunni. Á gamlárskvöld í Reykjavík geta felu- menn svalað sínum innra manni, sem leikur sér að skemmdarverkum og stofn- ar jafnvel til manndrápa- Þegar kveikt er í húsum í námunda við bensíngeyma og þar, sem hættan er mest, eins og gert var í Reykjavík síðasta gamlárs- kvöld, þá er sannarlega efnt til mann- drápa, þótt afstýrt verði- Þessi og önn- ur ódáðaverk geta menn framið í skjóli mannfjöldans, hávaða og ærsla. Ég gekk vestan úr bæ, kl. 12 á mið- nætti, niður að höfn, um Hafnarstræti og Austurstræti, upp um Þingholt og heim, austur á Bergþórugötu 53. Ég var ánægður, er ég kom heim, því að ég hafði ekkert ljótt séð, nema nokkra menn veltast dauðadrukkna á Austur- stræti og annan hóp reika um á Óðins- götu- Hópur ungmenna kom á móti mér, syngjandi og glaður í lund. Unga fólkið var vel búið, stúlkurnar með skraut- húfur á höfðum og gátu táknað álfa- meyjar. Þær voru rjóðar, brosandi og elskulegar, og piltarnir áþekkir. Ég ætlaði að víkja mér framhjá þeim, en unga fólkið sló hring um mig, syngj- andi og kátt, rétti mér svo hlýjar hend- ur og bauð gleðilegt nýtt ár, og hélt svo leiðar sinnar, syngjandi og dans- andi- Ég hefði getað kosið mér félags- skap þess lengur. Því ekki að skemmta sér á þenna hátt? Hér var á ferð æsku- lýður, algáður, en haldinn æskufjöri og kátínu, og slíkt elska allir menn. Þetta var nú það, sem ég sá á gaml- árskvöld, en skýrsla lögreglunnar bregð- ur upp annarri mynd, og veit ég að hún er eins sönn og hún er sorgleg. Þessi reynsla mín er ekkert ósvipuð því, er íslendingar eru að far út um lönd og þykjast ekkert áfengisböl sjá hjá sumum þjóðum, og sennilega sjá þeir það ekki, en skýrslurnar hafa aðra sögu að segja, og þar er raunveru- leikinn. Eigum við ekki að búa okkur undir það, að geta við næstu áramót haft þau áhrif á bæjarlífið, og sett einnig þau ákvæði um sölu hættulegs sprengiefnis, að óþokkabrögð felumannsins geti ekki varpað skugga á fögnuð áramótanna? 750.000 sjúklingar Samkvæmt blaðinu National Business og endurprentun þeirrar greinar í Reader’s Digest í október 1947, eru nú 750,000 króniskir alkóhólistar — lífs- tíðar áfengissjúklingar í Bandaríkjun- um, en 3 milljónir ofdrykkjumanna á hættulegu stigi. „Áfengissýkin er orð- in alvarlegur þjóðarsjúkdómur“, segir þar. Sérfræðingar við Yale-háskólann, sem fást við þennan sjúkdóm, segja, að „konur og karlar, sem séu að verða áfengissýkinni að bráð, haldi sig oft vera hófdrykkjumenn“. Dýru verði er gerfigleði áfengisneyt- enda keypt og gróði seljandans- Hátt upp í eina milljón áfengissjúklinga og þrjár milljónir ofdrykkjumanna í Bandaríkjunum, 60—100 þúsund á- fengissjúklingar í Svíþjóð, 40 þúsundir í Noregi og 70 þúsundir barna í fjöl- skyldum drykkjumanna hjá þeirri litlu þjóð. Hvað mun þá hjá stórþjóðunum. Heimur, sem flýtur í blóði, með stuttu millibili, og ævinlega í áfengi, en svelt- ir og kvelur milljónir manna, er engin glæsimynd né vegsauki hinni svo köll- uðu menningu.

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.