Íslenskt skákblað - 01.12.1926, Síða 6
4
ÍSLENSKT SKÁKBLAD
/. Því næst las endurskoðandi Jón Sigurðsson upp reikninga
Sambandsíns ásamt athugasemdum endurskoðenda.
Pegar hjer var komið var gjaldkeri mættur. Spunnust all-
fjörugar umræður um reikningana með meðfylgjandi athuga-
semdum. Að svo búnu voru reikningarnir með athugasemd-
unum samþyktir í einu hljóði.
//. Lagabreytingar. Gerði forseti grein fyrir lagabreytingum þeim,
sem fyrir fundinum lágu og hverjar þær væru:
1. að minsta kosti tvö af hverjum þremur Skákþingum sjeu
haldin í Reykjavík.
2. að ef Skáksambandið legst niður, þá falli öll yfirráð og
umsjón um Skákþing ísl. undir Taflfjelag Reykjavíkur.
3. að fulltrúar frá taflfjelagi í Sambandinu geti ekki jafnhliða
farið með umboð fyrir annað taflfjelag.
Eftir miklar umræður voru breytingarnar bornar undir at-
kvæði lið fyrir- lið og samþyktar með öllum greiddum atkvæð-
um með þeim fyrirvara, að þessar lagabreytingar standi þó
því aðeins, að Taflfjelag Reykjavíkur gangi í Sambandið.
III. Stjórnarkosning. Fjellu atkvæði þannig, að
forseti var kosinn
varaforseti — —
gjaldkeri — —
varagjaldkeri — —
ritari — —
vararitari — —
Ari Guðmundsson,
Jón Sigurðsson,
Karl Ásgrímsson,
Porst. Thorlacius,
Jóh. Havsteen,
Stefán Ólafsson.
IV. Endurskoðendur reikninga voru kosnir, þeir: Sigurður Krist-
jánsson og Elinór Jóhannsson.
V. Jóhann Havsteen vakti máls á því, að fundurinn þyrfti að
kjósa ritstjórn og ritnefnd Skákblaðsins. Var ritstjórinn end-
kosinn, Þorst. Thorlacius, með kröftugu lófaklappi. Óskaði
hann sjer til aðstoðar, þá: Ara Guðmundsson, Stefán Ólafs-
son og Jóhann Havsteen og voru þeir samþyktir.
V7. Fundurinn fól stjórninni að ákveða næsta aðalfundarstað.
Fundargerðin var lesin upp og samþykt.
Var þá fundi slitið.
Sig. Ein. Hlíöar.