Íslenskt skákblað - 01.12.1926, Síða 17
ÍSLENSKT SKAKBLAÐ;
15
ur og Eggert skyldu vera aðalráðamennirnir hvor við sína skák,
þannig, að ef atkvæði allra keppendanna sameiginlega fjellu jöfn,
þá skyldi þeirra atkvæði hvors um sig vera odda atkvæði, að því
er snerti þá skák, sem hann var við aðallega. Ákveðið var í þess-
ari reglugerð fjelagsstjórnarinnar, að ritari lijeldi gerðabók fyrir
kapptöflin, og bókaði þar allar tillögur keppenda, svo og saniþyktir
og annað það, er skákirnar varðaði, eftir fyrirmælum skákstjóra.
Keppendurnir voru og með reglugerðinni skyldaðir til að fara í öllu
eftir fyrirmælum skákstjóra með fyrirkomulag og framkvæmd, að öðru
en því, hverju leikið væri.
íslensku keppendunum var skift þannig niður, að við borð
nr. 1 voru þeir Brynjólfur, Guðmundur og Sigurður, en við borð
nr. 2 voru þeir Eggert, Erlendur og Pjetur. íslendingar höfðu hvítt
á borði 1 og svart á borði 2.
Af hendi Norðmanna var það ákveðið, að Skákfjelagið »Berg-
ens Schakklub<' tefldi fyrir liönd Norðmanna, og voru keppendur
þeirra þessir:
Thv. Modahl,
M. Lysted,
K. Salbu,
O. Kavli-Jörgensen,
John Schei,
R. Thunold.
Skákstjóri Norðmanna var oberstlöitnant Vaage, og komu skák-
stjórarnir sjer saman um, að tilnefna sem oddamann formann danska
Skáksambandsins, herra yfirrjettarlögmann Gjersing. Seinna fóru
Norðmenn fram á, að í hans stað yrði tilnefndur formaður sænska
Skáksambandsins, herra Ludvig Collijn.
Leikirnir voru símaðir á milli landanna nieð sjers*ökum »sím-
lykli«, sem kendur er við amerískan mann, að nafni Uedemann. Á
þann hátt var fyrirbygt, að ruglingur gæti orðið á leikjunum eða
leikjaröðinni, því ávalt eru símaðir saman tveir leikir (sá síðasti og
svo svarleikurinn). Petta hepnaðist ágætlega, og kom aldrei fyrir
ruglingur á leikjunum, sem stafað gat af skakkri símritun. Pessi
aðferð, til að símrita eftir, er langtum öruggari en venjulega að-
ferðin, sem notuð hefir verið við símskákirnar milli Akureyrar og
Reykjavíkur, og verður hún vonandi notuð við allar símritaðar
skákir hjer á landi eftirleiðis.
Sunnudaginn 7. febrúar sendu Norðmennirnir símskeyti þess