Íslenskt skákblað - 01.12.1926, Page 18
16
ÍSLENSKT SKÁKBLAÐ
efnis, að þeir gæfust upp á borði 1, og höfðu þá verið leiknir á
því borði 42 leikir af báðum.
Mánudaginn 22. febrúar buðu Norðmenn jafntefli á borði 2,
og neiiuðu íslensku keppendurnir því eindregið, við það borð.
Síðan voru Ieiknir 25 Ieikir á því borði, og þótti þá flesfum sjeð,
að það væri óvinnandi, og buðu því íslendingar jafntefli á því borði
mánudaginn 26. apríl, og höfðu þá verið leiknir 74 leikir. Norð-
menn samþyktu jafnteflisboðið, og var þar með kappteflinu lokið
með 1V2 vinningi fyrir ls'endinga gegn lh hjá Norðmönnunum.
Fáir munu geta gert sjer það fyllilega Ijóst, hve mikið starf
hefir verið lagt í þetta kapptefli. Allir þeir, sem að því störfuðu
fyrir hönd íslendinga, höfðu daglegum störfum að gegna, og gátu
því ekki notað annan tíma við kappteflið, en sinn hvíldartíma. Peir,
sem þekkja til rannsókna á vandasömum taflstöðum, munu fara
nærri um, að hvíldartíminn muni oft hafa styst allrnikið þá daga,
sem leikir voru sendir hjeðan. En allir gerðu sitt ítrasta, og eng-
inn taldi eftir sjer, að vaka yfir skákunum, og þrautkanna allar
hugsanlegar leiðir til sigurs. Allir voru einhuga um, að leggja fram
sitt ítrasla til að vinna helst báðar skákirnar, og áhugi manna al-
staðar á landinu hvatti keppendurna til starfs og dáða. Jeg efast
heldur ekki um, að allir íslendingar eru þakklátir þeim mönnum,
sem slegið hafa því föstu í eitt skifti fyrir öll, að íslensk skáklist
þolir allan samanburð við skáklist nágrannaþjóðanna.
Elís Ó. Guðniundsson.
SKÁKFRÆÐI.
S K O S KI LEIKTJRINN O G SKOSIÍA BR AGSIÐ.
Taílbyrjun þessi er ekki mjög gömul, en var um eitt skeið
mikið notuð, og nota ýmsir skákmenn hana enn. Gefur hún oft
frjáls og fjörug töfl og mun hún þess vegna hafa urnið fremur
hylli eldri skákmanna. Hún var fyrst leikin af skoskum taflmönnuni
í kappskákunum milli Edinborgar-skákfjelags og Lundúna skákfjelags
árin 1825—1828.
Skoski leikurinn.
1. e2—e4 e7—e5
2. Rgl-f3 Rb8—c6
3. d2—d4 . . .
Tilgangurinn með því aö lcika
hjer drotningarpeðinu um 2 reili
er sá, að koma drotningaibisk-
upnum sem skjótast á frainfaeri.
Ætlun hvíts er sú, þegar svartur
hefir tekið peðið, að taka aftuf