Eining - 01.10.1953, Side 1
11. árg.
Reykjavík, október 1953.
10 tbl.
. Krýnd Elisabet II Bretadrottning
Stórviðburðirnir ráku hver annan á
fyrri hluta ársins. Valdamesti maður
austursins hvarf af sjónarsviðinu. —
Heimsfrægur herforingi settist í æðsta
valdastól máttugasta ríkis vesturveld-
anna. Og krýnd var ung drottning þriðja
y voldugasta heimsveldisins, Elisabet II
Bretadrottning.
Þótt margir væru áhorfendur krýn-
ingarinnar, voru hinir samt fleiri, er
urðu að láta sér nægja, að lesa um hana
og sjá hana í kvikmynd. Þegar eg
horfði á þá kvikmynd, sótti helzt á mig
sú hugsun, sem ásækir mig oft, hvílík
börn og óvitar mennirnir eru yfirleitt.
— Þjóðirnar heyja styrjaldir, þjázt og
gráta blóði. Börnin leika sér að skelj-
um og leikföngum, byggja hús úr leir
og á sandi. Þjóðirnar leika sér að sið-
um sínum og alls konar viðhafnar-
athöfnum, svo sem vígslum, krýning-
um og ýmsu þess háttar. En siðirnir
hafa það gildi fyrir einstaklinga og
þjóðir, er þær leggja í þá. Krýning
æðstu valdamanna þjóðanna, konung-
anna og drottninganna, er meira en
skrautleg viðhöfn, þar sem gullin
kóróna er sett á höfuð ungrar drottn-
ingar eða konungs. Krýningin er hinn
bjarti öldufaldur, en hin magnþrungna
alda sjálf er þjóðfélagið. Óskaplegt
magn er í haföldunni voldugu, sem
lyftir björtum og hvítfreyðandi faldinum
hátt móti himni. Og máttug eru þau
y*
Strax eftir krýninguna var mynd þessi tekin af brezku konungsfjölskyldunni í hásætisherberginu í Buckingham höll. — Fremri röð:
talið frá vinstri: Alexandra prinsessa af Kent, Michael prins af Kent, hertogafrúin af Kent, Margret prinsessa, drottning Elisabet
II, drottningarmóðir Elísabet, prinsessa Royal, hertogafrúin af Glousester og tveir synir hennar, William prins og Richard prins.
Að baki drottningarinnar, sem ber kórónu samveldisins, eru hertogamir þrír, af Glousester, Edinborg og Kent.
k'