Eining - 01.10.1953, Qupperneq 10

Eining - 01.10.1953, Qupperneq 10
10 EINING Frá norræna bindindisþinginn Ályktanir þingsins, sem haldið var í Reykjavík 31. júlí til 6. ágúst, voru þessar: ,,Norræna bindindisþingið hefur at- frngað ástandið í áfengismálum Norð- urlandanna fimm. Sums staðar standa nú fyrir dyrum breytingar á áfengis- löggjöfinni, og hefur þingið íhugað, hvaða ráðstafanir beri að gera út af því. En þó að nokkur munur sé á áfengislög- gjöf landanna, er þingið einhuga um að halda fast við þá norrænu stefnu- skrá í áfengismálunum, er fram kom og samþykkt var 1947. Norræna bind- indisþingið skorar því á forvígismenn bindindismálsins á öllum Norðurlönd- um, að beita áhrifumj sínum á áfengis- löggjöf lands síns í fullu samræmi við þessa stefnuskrá. Reykjavíkþ. 6. ágúst 1953. XIX. NORRÆNA BINDINDISÞINGIÐ: Brynleiíur Tobiasson. Adolph Hansen. Vihtori Karpio. Björn Magnússon. Harald Löbak. Ockar Franzén. /Árni ÓlaCl. Auk þess samþykkti þingið einróma SÉRSTAKA ÁLYKTUN UM STERKT ÖL: ,,Um hið áfenga öl skal fram tekið, að vegna þeirra upplýsinga, er komið hafa fram í fyrirlestrum og umræðum á þinginu, þá er það vilji þingsins, að komið verði á löggjöf, sem rækilegast takmarkar eða stöðvar alveg fram- leiðslu, sölu og veitingar áfengs öls“. Stefnuskrá sú, er vísað er til í áfengis- málum frá 1947, var samþykkt á XVII. norræna bindindisþinginu í Stokkhólmi, og fer hún hér á eftir: Stefnuskrá norrœnu bindindishreyfing- arinnar, samþykkt í Stokkhólmi á XVII. norrœna bindindisþinginu sumarið ’47- Markmid: Áfengislaus Norðurlönd. Leið að markinu: Jafnt og stöðugt minnkandi áfengisneyzla. Sérstakar ráð- stafanir í þessu skyni: 1. Eannsókn með aðferðum nútíma vís- inda á afleiðlngum áfengisneyzlu, ráð- um til að draga úr henni og tjóni af nennar völdum. 2. a) Aukin bindindisfræðsla í háskólum, kennaraskólum og öðrum skólum, og fyrir hermenn. b) Víðtæk barátta fyrir bindindi, með stuðningi ríkisins. og með fyrirlestr- um, ritgerðum, blaðagreinum, út- varpserindum og kvikmyndum. 3. Fjárhagsiegur stuðningur til bindind- isnreyfingarinnar frá ríki og bæja- og sveitafélögum. 4. Háir skattar séu lagðir á áfenga drykki. 5. Unnið skal í tíma gegn drykkjuskap þeirra, sem hafa tilhneigingu til of- drykkju, eftir því sem unnt er, en ekki með allsherjarskömmtun áfengis. 6. a) Komið sé algerlega í veg fyrir, að einstaklingar geti hagnazt á með- höndlun áfengra drykkja. b) Veitingastaðir, þar sem áfengi er ekki haft á boðstólum, njóti fjár- hagslegs stuðnings. c) Aukin framleiðsla og neyzla góðra óáfengra drykkja. d) Áfengisauglýsingar séu bannaðar. 7. a) Áfengi sé aldrei haft um hönd í samkvæmum, sem kostuð eru af al- mannafé. b) Banna skal veitingar áfengra drykkja í sambandi við opinbera dansleika, í nánd við almenna skemmtistaði, almenningsgarða, íþróttavelli eða aðra slíka samkomu- staði æskulýðsins. 8. a) Ákvæði skal setja í lög og reglu- gerðir um tilbúning, sölu og veit- ingar áfengra drykkja, að sölu og veitingum áfengis sé þannig hagað, að neyzla verði sem minnst og að af henni leiði sem minnst tjón. b) Sveitafélög og bæjafélög fái óskor- aðan rétt til þess að banna vínsölu innan síns umdæmis. c) Bann sé lagt við sölu áfengis í nánd við sumarbústaði og í íbúðahverf- um. 4. Útsölutími áfengis sé hafður sem stytztur. 9. Þjóðfélagið verður að ki’efjast algers bindindis af hálfu þeirra manna, sem stjórna samgöngutækjum eða vinna við þau, og þeirra sem gegna herþjónustu. Þetta gildir og um öll önnur störf, þar sera áfengisneyzla er sérstaklega hættu- leg. 10. Milliríkjasamningar mega ekki skerða sjálfsákvörðunarrétt þjóða um skipun áfengismáia. 11. a) í áfengislöggjöfinni skulu refsi- ákvæði og uppljóstrunar sett þann veg, að sem sterkust vörn sé gegn afbrotahneigð manna á því sviði, og létti sem bezt framkvæmd lag- anna. b) Stofnanir ríkis og bæja- og sveita- félaga, sem skipaðar eru til þess að sjá um, að áfengislöggjöfinni sé framfylgt, skulu haga starfi sínu þannig, að lögin nái þeim tilgangi sinum, að áfengisneyzlan verði sem minnst. 12. Ríkisvaldið verður að taka í taumana gegn skemmtistöðum, sem gera sér skemmtanafíkn æskunnar að féþúfu til tjóns fyrir almenna bindindissemi og heilbrigði þjóðarinnar. Sveitafélög- um og bæjafélögum skal veittur réttur til að banna slíka skemmdarstarfsemi. Einnig að öðru leyti ber þjóðfélaginu að kosta kapps um að eyða þeim félags- legu meinum, sem örva áfengisneyzlu og magna það tjón, sem áfengið veld- ur. Jafnframt ber þjóðfélaginu að haga svo fræðslu- og menningarstarfsemi og tómstundaiðju, að komið geti í stað áfengistízkunnar, og sýni og sanni, að drykkjusiðirnir séu ósamrýmanlegir sannri menningu. Dauðadæmdi sveinnlnii Um síðustu áramót var 19 ára piltur tek- inn af lífi í Englandi. Fjöldi manna reis upp og mótmælti dauðadóminum, hundruð þingmanna gerðu hið sama, og sumir dóm- ararnir vildu að pilturinn væri náðaður, en ekkert dugði. Hann féll fyrir hendi böðulsins. Orsökin var sú, að hann var tal- inn meðsekur í morði lögreglumanns, en morðinginn sjálfur var of ungur til þess að hljóta dóm. Þessir tveir ungu sveinar, sem vafalaust hafa gengið hálar brautir, voru mjög ákafir í glæpamannakvikmyndir. Yngri pilturinn þrjózkaðist við að fá lögregluþjóninum byssu, sem hann ætlaði að taka af honum. Þá sagði hinn eldri: „Láttu hann hafa það“, og yngri pilturinn skaut lögreglu- þjóninn. Samkvæmt máli glæpakvikmynd- anna túlkaði dómurinn þetta sem hvatningu eldri piltsins til hins að skjóta lögreglu- þjóninn. Hvað sem réttmæti dauðadómsins líður, er hitt raunalegt, að þjóðir skuli selja áfengi og refsa mönnum fyrir að drekka það, svo að á beri, að þær skuli skemmta unglingum við glæpakvikmyndir og neyð- ast svo til að fella dauðadóm yfir þeim, er leiðast á glapstigu af þessum háskalegu kvikmyndum. Vaxandi glæpalíf hefur fylgt kvikmyndasýningum í hverju landi. í þeim er unglingum kennt glæpaiðja, og svo kem- ur áfengið oft til þess að örfa áræðið. XIii ómissandi mann- kostir Skáldið mikla og heimspekingurinn Goethe hefur sagt, að níu mannkostir séu uppistaða hins sigursæla lífs: Nægilega góð heilsa til þess að verkið getið verið gleðigjafi. Nægileg efni til þess að fullnægja nauð- synlegustu þörfunum. Nægilegt þrek til þess að takast á við erfiðleikana og sigra þá. Nægileg djörfung til þess að játa syndir sínar og vaxa frá þeim. Nægileg staðfesta til þess að halda áfram þar til einhverju er til vegar komið. Nægileg góðvild til þess að sjá og meta kosti nágrannans. Nægileg mannást til þess að rétta öðrum hjálparhönd. Nægileg trú til þess að gera það, sem Guðs er, að raunveruleika. Nægileg von og bjartsýni til þess að yfir- stíga kviða og allar áhyggjur viðvíkjandi framtíðinni.

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.