Eining - 01.10.1957, Síða 1
15. árg. Reykjavík - Október - 1957. 10. tbl.
JÁ
eimóóhn juinólm ýoróetalii
jonanna
Af Norðurlöndum þremur er Finn-
land fjarlcegast Islandi, en finnska þjóð-
in er alls ekki fjarlcegari hjarta íslenzku
þjóðarinnar, en hinar nágranna þjóðirn-
ar. Finnsku forsetahjónin, sem dvöldu
hér dagana 13.—19. ágúst, fyrstu þrjá
dagana í opinberri heimsókn, voru því
áreiðanlega mjög kœrkomnir gestir.
Einhver sérstök lífskjör beggja þjóðanna
á liðnum öldum eiga vafalaust sinn þátt
í því, að sterk samúðartengzl hafa mynd-
ast milli þeirra. Þeir eru sjálfsagt fcerri
gestirnir, sem koma frá Finnlandi til ís-
lands, en frá íslandi til Finnlands, en
þar fá íslendingar hjartanlegar móttök-
ur og bera þeir landi og þjóð góða sögu.
Það er áreiðanlega hin heitasta ósk ís-
lenzku þjóðarinnar, að Finnar fái á kom-
andi árum og öldum að búa við full-
komið frelsi og þá menningu, sem sú
vel gerða og tápmikla þjóð er fœr um
að skapa sér. — Fleimsókn finnsku
forsetahjónanna mun lifa í minningu
okkar íslendinga.
Rceður forsetanna, við móttökuat-
hótnina, fara hér á eftir.
RÆÐA FORSETA ÍSLANDS
^erra forseti Finnlands og frú Uhro
Kekkonen !
Þessi heimsókn yðar er oss
íslendingum mikið fagnaðarefni. 1 fyrsta
sinn stígur nú finnskur forseti fæti sín-
um á íslenzka fold. Gömul og ný vinátta
og hrifning íslendinga leikur nú um
vora tignu gesti eins og ,,golan, sem
kyssir kinn“.
Okkur hjónunum er þetta kærkomið
tækifæri til að flytja yður og finnsku
þjóðinni innilega þökk fyrir ágæta mót-
Forseti Finnlands og frú Dóra Þórhallsdóltir ganga inn í veizlu-
salinn í Hótel Borg.
Forseti íslands og forsetafrú Fínnlands ganga inn i veizlusalinn
i Hótel Borg.