Eining - 01.10.1957, Page 4
4
E I N I N G
er sannfærandi, þó að hann sé ekki
margorður. — Ég álit, að Pétur Björns-
son hafi þegar unnið stórvirki sem erind-
reki áfengisvarnaráðs, og ef mér auðn-
ast líf og heilsa til þess að starfa að
áfengisvörnum fáein missiri enn, get ég
ekki hugsað mér það, nema ég megi
eiga samvinnu við Pétur eins og undan-
farið.
Hér á árunum barðist Pétur við hvim-
leiðan heilsubrest, en sem betur fer hef-
ir heilsa hans mjög batnað í seinni tíð.
Væntum vér, vinir hans og samherjar,
að hann megi enn miklu til vegar koma
til heilla fyrir fólk og föðurland.
Pétur Björnsson, er kominn í karl-
legg af svonefndri Skíðastaðaætt á Ytri-
Laxárdal. Eru margir athafna- og fjár-
málamenn af þeim ættmeiði runnir. Ég
tel Skíðastaðaætt hafa mikinn sóma af
Pétri.
Pétur og Þóra eiga fjögur mannvæn-
leg börn.
Ég flyt vini mínum, starfs- og reglu-
bróður beztu þakkir og árnaðaróskir á
þessum merku tímamótum ævi hans.
Brynleifur Tobiasson.
Sumarskólinn í Genf
er alþjóðaráðið gegn áfengisbölinu
gekkst fyrir í sumar, stóð frá 5.—16.
ág. s. 1. Er það þriðja sumarið, sem
skóli þessi eða námsskeið er haldið.
Sumarið 1955 mætti þar Kjartan Iækn-
ir Jóhannsson af hálfu áfengisvarnaráðs,
í fyrra enginn, en í sumar tók formað-
ur áfengisvarnaráðs þátt í námsskeiðinu
frá 7.—14. ágúst. Enn fremur sat hann
ráðstefnu í Genf með fulltrúum bindind-
ishreyfingarinnar frá ýmsum Evrópu-
löndum, undir forsæti framkvæmdar-
stjóra I. T.U. (International Temper-
ance Union), Archer Tongue, en þessi
samtök hafa miðstöð sína í Lausaune.
ísland á aðild að þessum samtökum, en
þau voru 50 ára gömul í sumar.
Aðsóknin að sumarskólanum í Genf
var nú meiri en nokkru sinni fyrr og
fleiri erindi flutt en áður. Þarna voru
Norðurlandamenn, Englendingar, Þjóð-
verjar, Hollendingar, Belgir, Frakkar,
Ameríkumenn, Svissarar, Pólverjar,
Tjekkar, Júgóslafar, Spánverjar, Italir,
Portúgallar, einn Ástralíumaður og
einn Islendingur o. fl. Erindi voru flutt
á frönsku, þýzku og enzku og þýtt af
einu máli á annað. — Mun nánar vikið
að þessum málum í næsta blaði.
—-----ooOoo-----
E IN IN G fagnar því, að samtök
og starf ungtemplara á íslandi er að
færast í aukana, og hefur það orðið að
samkomulagi, að blaðið láti ungtempl-
urum í té nokkurt rúm í dálkum sínum.
Birtist hér í þessu hefti blaðsins fyrsta
blaðsíðan, sem ungtemplarar sjá um.
Heill fylgi starfi þeirra.
Fm Guðlauf Marfa-
dótflr sexfug
Hún á einnig 50 ára templarafmæli.
10 ára gerðist hún félagi barnastúkunn-
ar VonarljósiS í Hafnarfirði, og síðan
hefur hún verið traustur liðsmaður í
sveit templara. Ætt hennar og ævisaga
verður ekki rakin hér, enda óþarft, því
að eftir öllu að dæma, er henni vork-
unnarlaust að lifa nokkra áratugi enn.
Þess skal aðeins getið hér, að hún hef-
Guðlaug Narfadóttir.
ur verið óþreytandi við bindindis- og
félaggmálastarfið.
Þegar frú Guðlaug var búsett í Gaul-
verjabæ, var hún æðstitemplar stúku
þar, einnig gæzlumaður barnastúku.
Um skeið var hún þingtemplar í Árnes-
sýslu. Eftir að hún fluttist til Reykjavík-
ur hefur hún unnið mikið í samtökum
kvenna um bindindi og áfengisvarnir,
og er nú formaður áfengisvarnanefndar
kvenna. Á vegum þeirra samtaka hefur
hún ferðast allmikið, sótt kvennaþing
og flutt mörg erindi hér og þar. Einnig
hefur hún ferðast töluvert sem erindreki
áfengisvarnaráðs, og nú síðast um GuII-
bringusýslu og heimsótt áfengisvarna-
nefndir þar. Sótti einnig kvennfélaga-
fundi og þing kvenfélagasambands. Hún
á sæti í áfengisvarnaráði.
Fædd er frú Guðlaug í Hafnarfirði.
Foreldrar: Narfi Jóhannesson, dugnað-
ar sjómaður, og Sigríður Þórðardóttir.
Bæði voru þau traustir templarar. Sig-
ríður gekk í regluna árið 1886 og var
henni trú til dauðadags. Frú Guðlaug
ólst því upp á slíku heimili er gaf henni
hið rétta veganesti, og þetta gengur í
arf. Frú Guðlaug á sex syni og eina dótt-
ur. Allt er það myndarfólk og reglusamt,
svo, að flestir barna hennar munu af-
neita bæði víni og tóbaki. Guðlaug er
tvígift. Með fyrri manni sínum, Halldóri
Bachman, átti hún tvo syni, Ólaf, sem
er búsettur verkfræðingur í Califomíu
og Halldór, vélvirkja í Reykjavík. Seinni
maður hennar var Hjörtur Níelsson og
með honum átti hún hin börnin fjögur.
Dagsverk Guðlaugar Narfadóttir er
bannig orðið allmikið. Henni hefur ver-
ið gefið mikið þrek og ýmsar góðar gáf-
ur. Hún sameinar dugnað og mikinn
áhuga á velferðarmálunum, og henni
hefur farnast vel og hún verið gæfusöm
eiginkona og móðir. P. S.
Dauði eða eymd
bíður milljóna barna
Forstöðumaður barnahjálpar sam-
einuðu þjóðanna, Maurice Pate, var fyr-
ir skömmu á ferð í Noregi, en för hans
var annars um 10 lönd í Evrópu til þess
að flytja skýrslu um hjálparstarfið.
Norðmönnum flutti hann beztu þakkir
fyrir mikið framlag þeirra til líknarstarf-
anna. Milljónir barna hljóta annaðhvort
að deyja eða verða aumingjar á einhvern
hátt, ef þeim verður ekki hjálpað. Þar
eru sjúkdómarnir skæðastir bæði meðal
barna og fullorðinna. Þar eru hitabeltis-
sjúkdómar, svo sem Frambösia — húð-
sjúkdómur. Af honum eru 40 milljónir
manna sýktar, 300 milljónir af augn-
veiki, sem blindar, fimm milljónir hafa
holdsveiki á ýmsu stigi og malaría er
enn í 40 löndum.
Hlutverk barnahjálparinnar verður nú
m.a., sagði forstöðumaðurinn, að herja
á sjúkdómana. Með góðri læknishjálp
má miklu til vegar koma. T.d. má lækna,
segir hann, húðsjúkdóminn, sem áður
var nefndur, með penicillini, er kostar
um 30 aura á barn. Hjálparstarfsemin
er nú stunduð í 102 Jöndum og lands-
svæðum. 210 milljónir barna hafa verið
berklaprófuð í 63 löndum og 80 milljón-
ir þeirra hafa verið bólusett með BCG.
45 milljónir barna og mæðra njóta góðs
af barnahjálpinni á yfirstandandi ári.
Einn liðurinn er að vinna að því á meðal
ýmissa þjóða, að börn geti fengið meiri
mjólk. Barnahjálpin hefur fram að þessu
sent út 400 milljónir kílóa af þurrkaðri
mjólk. I fyrra var framlag 80 þjóða 20
milljónir dollara, en vonir standa til að
1960 verði árstillag þjóðanna orðið
30 milljónir.
Ógni mannkyninu atómstyrjöld og
önnur óöld, má ekki gleyma björtu hlið
lífsins og öllu því líknar og menningar-
starfi, sem unnið er á meðal þjóðanna,
og er einsdæmi í allri sögu mannkynsins.
Slíkt hefur engin öld þekkt áður, og
vissulega munu hin góðu öfl sigra í fyll-
ingu tímans flest hin skæðu mein mann-
anna.
Frásögn þessi um barnahjálp samein-
uðu þjóðanna er hér höfð eftir norska
blaðinu Folket.