Eining - 01.10.1957, Side 11

Eining - 01.10.1957, Side 11
EINING 11 HRAFNHILDUR Skcddsaga eftir Ásfríði Torfadóttur. „Allt, sem fyrirgefa þurfti, er fyrir löngu fyrirgefið, en veru minni á Hrauni verður sjálfsagt ekki unnt að gleyma, unz yíir lýkur. Það er áreiðanlega satt, Pétur, að eg hef ekki gleymt veru minni á Hrauni, og ef það gæti glatt þig eitthvað, get eg sagt það, að hugur minn dvelur miklu oftar við ánægju og sælustundirnar, sem eg átti þar, en hinar“. — „Ánægju og sælustundirnar þínar hafa naumast verið margar þar. Eg hafði svo einstaklega gott lag á að hrekja allt slíkt burt frá heimilinu og vera þeim verstur, sem vildu mér bezt. Það var sem á mér væru þau illu álög að gera ykkur Bergljótu allt til skaprauna, en ef þið hefðuð vitað um allt það stríð, sem eg átti stundum, þá er eg viss um, að þið hefðuð oft fellt yfir mér enn beiskari tár. Eg get fullvissað þig um, að mig langaði oft til að nálgast ykkur á annan veg en eg var vanur, en það var sem einhver ósýnileg kynjaöfl ýttu mér í hvert sinn lengra og lengra burt frá ykkur, og dýpra og dýpra sökk eg niður í foraðið. Eg hef sannarlega fengið að reyna það, síðan þú varst að yfirgefa mig, að ekki þarf maðurinn alltaf að komast inn í annað líf til þess að taka út hegningu synda sinna. Eftir að þú fórst frá mér, gekk allt öfugt hjá mér. Dagarnir liðu hver af öðrum, örðugir og viðbjóðslegir, og svo kom að þeim síðasta, er eg átti að flytja úr gamla bænum. Eg átti ekkert til framar, var allslaus með vesalings Pétur litla og síhlæandi vitfyrringinn, konunna, sem smeygði sér inn í líf mitt, þegar eg var sokkinn dýpst og ósjálfráður gerða minna. Eg hafði ekki sofið margar undan- farnar nætur og margt þrengdi að. Eg reyndi lengi að leita að einhverju hálmstrái til að hanga í, en komst loks að þeirri niðurstöðu, að fyrir mig væri aðeins ein leið út úr vandræð- unum. Ákvörðun þessi tók mig föstum tökum. Eg gekk að rúmi Péturs litla. Hann svaf fast og vært, vesalingurinn. Eg horfði lengi á hann, þetta afkvæmi syndar minnar, sem eg hafði þvingað miskunnarlaust út á þá braut, er eg hafði geng- ið. Mér varð það ljóst, að þótt ekki nema hans vegna, væri það skylda mín að hverfa. Þegar eg væri horfinn, munduð þið Bergljót taka ykkur af honum og ef til vill tækist ykkur að bjarga honum. Eg hélt því af stað út til tjarnarinnar í hrauninu, sem afi minn hafði látið girða svo vandlega, að enginn gæti dottið í hana. Eg vissi, að hún var hyldjúp og skilaði engu aftur, er hún hafði veitt móttöku. Eg taldi heppilegast að hverfa þannig, að eg findizt aldrei. Á leiðinni út í hraunið tíndi eg smásteina í vasa mína og fyllti þá, einnig vettlinga mína, batt treflinum um mittið og gat þá látið steina í treyjuna. Allt var vel undirbúið og eg rólegur eins og væri eg að ganga að venjulegu starfi. Þegar eg komst upp á hraunið, skyggnist eg um. Það var stillilogn og kyrrð yfir öllu. Þokuslæða lá miðhlíðis í fjöllum. Eg settist niður í Bergljótarbás og ætlaði að láta eftir mér að horfa yfir byggðina í síðasta skipti áður en eg færi í langferðina. Eg studdi olnbogunum á knén og höndum undir kinnar og yfir mig færðist einkennileg friðar- rósemd. Mér fanst eg ekki eiga til neina hugsun framar, en fyrr en varði steig upp úr djúpi sálar minnar mynd þín, Hrafnhildur. Mynd þín, er þú komst hlaupandi, fögur og fagnandi niður að sjónum til mín morguninn þann, er eg móðgaði þig í fyrsta sinni og sýndi þér kulda og lítilsvirðingu, og galt þannig ástúð bína og umhyggju. Eg lokaði augum og reyndi að halda myndinni fastri, en það tókst ekki, en í eyrum mér hljómaði rödd eins og úr fjarska:: „ef þú fram- kvæmir áform þitt, færðu aldrei að eilífu að sjá hana aftur. Aldrei, aldrei að eilífu að sjá hana framar. Eg sat lengi hreyfingarlaus með lokuð augu. Þegar eg svo stóð upp, gekk eg hægt að girðingunni. Eg átti nægilegt áræði til þess að framkvæma fyrirætlun mína, en ósjálfrát tók eg að tína hvern steininn af öðrum úr vösum mínum og kasta þeim í hyldýpið, unz þeir voru allir farnir. Eftir þá sáust engin merki, nema litlir gárahringir á spegilfögrum vatnsfletinum. Þegar eg sneri mér frá tjörninni var sólin að gægjast framundan honum Geislahnjúki, og ósjálfrátt fórn- aði eg upp höndunum til himins og bað til Guðs um styrk, og sór hátt við nafn þitt, Hrafnhildur, og annað sem mér er heilagt, að eg skyldi gera allt, sem í mínu valdi stæði, til þess að yfirvinna breyskleika minn og sjálfan mig. Og eitt- hvað í áttina hef eg komizt“. Hann þagnaði andartak og hélt svo áfram: „Mér er það Ijóst, að eg á ekki eftir að lifa í návist þinni í þessu lífi, en seinna ef til vill, seinna, Hrafnhildur, ef mér tekst umbótarverkið í mér sjálfum“. Hann andvarpaði og sat hljóður stundarkorn. Hrafnhildur hafði setið þögul undir frásögn hans, en tárin runnið þétt og ótt niður kinnar hennar. — Hann tók aftur til máls: „Eftir stutta stund tók eg að búa mig til heimferðar. Þeg- ar eg hélt niður hraunið, var eg svo ánægður og léttur á mér sem væri eg nývaknaður af værum blundi, en hversu undr- andi varð eg ekki, er eg sá Bergljótu sitjandi undir hraun- jaðrinum. Hún varð mín ekki vör fyrr en eg stóð rétt fyrir framan hana. Hún var auðsjáanlega í þungum þönkum, því að í svip hennar mátti lesa örvæntingu og angist. Hún hefur líklega vitað hvað mér leið, eins og fyrri daginn. Hún hefur alltaf haft auga með mér, hvernig sem eg hef lifað og látið frá því eg var barn og hún tók mig að sér munaðarlausan og ósjálfbjarga. Hún hefur reynt að bjarga mér yfir allar tor- færur, hversu örðugar sem þær hafa verið. Eg skildi strax» er eg sá hana, að loks hafði hana þrotið kjark til þess að fylgja mér eftir. Um leið og hún sá mig, hrópaði hún upp yfir sig: „Guð veri lofaður.“ en hún vildi ekki kannast við, að hún sæti þarna mín vegna. Eg gekk til hennar og við leiddumst heim. Það höfum við aldrei gert uppfrá því er eg sigldi, til illrar minningar. Á heimleiðinni trúði hún mér fyrir því, að hún væri orðin þreytt á einverunni og ætlaði að þyggja boð Önnu dóttur okkar og búa framvegis hjá henni. Mér var það ljóst, að einnig mín vegna gerði hún það að yfirgefa Hraun. Hún vissi, að eg var allslaus og átti hvergi neitt að halla mér að, og nú bað hún mig að flytja í húsið og annast vel um það, sem eftir væri af eigninni, „handa þér hef eg geymt blettinn minn“, sagði hún og grét sáran. „Eg var alltaf hrædd um, að svona mundi fara, en nú byrjar þú nýtt líf í nýju húsi, Pétur, er það ekki ráðið. Eg tók hana í fang mér og við grétum bæði. Mig langaði til að segja henni frá áformi mínu, en gerði það ekki, trúði ekki nógu örugglega að mér tækist að yfirvinna sjálfan mig. Þenna sama dag flutti hún til Önnu okkar og eg úr gamla bænum. Þetta voru erfiðir dagar, Hrafnhildur. Flutningurinn var ekki mikill. Eg tók Bessu upp í fang mitt, framhjá þeirri þjáningu varð ekki komist, og bar hana út í litla húsið. Þetta voru hin þyngstu spor, sem eg hef gengið um daga mína. Mér fannst sem eg bæri ekki aðeins mína eigin syndasekt, heldur og allar sorgir og syndir allra ógæfusamra manna. Þegar eg lagði hana í rúm Bergljótar í litla herberginu, rak hún upp svo tröllslegan hlátur, að hann líður mér ekki úr minni. Eg flýtti mér að loka hana inni og fór svo að ná í ekkjuna hans Páls gamla, sem Bergljót hafði vistað til þess að annast um heimilið. Síðan hef eg aldrei séð Bessu. Nýr eigandi flutti svo í gamla bæinn og skömmu síðar reis fallegt hús á gömlu brunarústunum. Þannig fór um draum- ana okkar.

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.