Eining - 01.06.1965, Blaðsíða 7

Eining - 01.06.1965, Blaðsíða 7
EINING 7 Steindór Björnsson frá Gröf Áttatíu ára 3. maí 1965 Hugsjón stór og hreystimennska háan tryggðu aldur þér, þér, sem ávallt unnað hefur öllu því, sem göfugt er, ötull stundað íþrótt marga, iðkað fagurt snilldarverk. Því er sál þín ung sem áður, einnig höndin traust og sterk. Víða hönd að verki lagðir, var þó sjaldan spurt um laun. Þér var ljúft að þjóna, fórna, þrautgóður í hverri raun vígðist ungur hugsjón hárri, hátt var markið snemma sett: aldrei af þeim vegi víkja, velja aðeins satt og rétt. Áttræðan þig ungan hylla allir þínir samstarfsmenn. Víst er gott að vita slíka, víða finnast kappar enn. — Hafðu þakkir okkar allra, enn skal keppa fram á veg. Hossi þér til hundrað ára heilladísin ástúðleg. Þegar Steindór Björnsson varð 75 ára, gerði Eining honum nokkur skil, en vissulega átti hann það skilið að fá góð- ar kveðjur frá mörgum á áttatíu ára afmælinu, því að víða hefur hann rétt fram fórnfúsa og styrka hönd til lið- veizlu góðum málum í ýmsum félögum og einnig einstaklingum. Bai'nakennari var hann fyrr á árum, leikfimikennari um 20 ár, áhugamaður íþróttamála um áratugi, mörg ár gæzlumaður unglinga- starfs Stórstúku Islands, gæzlumaður barnastúkna um 30 ára skeið, um tíma aðstoðarritari stórstúkunnai', og 66 ár mun hann nú vera búinn að vera í Reglu góðtemplara. Öllum sínum störfum í þessum félagsskap hefur hann sinnt af mestu árvekni og brennandi áhuga, því að Steindór Björnsson er ekki hálfvolg- ur maður í lífsskoðun sinni og fylgi við bindindishugsjónina. Hann er heill og traustur hvar sem hann er. Það er ekk- ert smáræði, sem Steindór er búinn að fórna áhugamálum sínum. Hann er listamaður, skrautritari, skrifar t.d. nótur flestum eða öllum mönnum betur, og hefur þetta blað sannarlega notið góðs af þeim hæfileika hans, það er vissulega í skuld við hann fyrir marg- víslega liðveizlu. Hér er nú mjög fljótt yfir sögu farið, en lesa má þó margt á milli línanna. Steindór er fæddur að Hvanneyri í Borgarfirði, en kennir sig við Gröf, seinna Grafarholt, en þar ólst hann upp hjá foreldrum sínum til 18 ára. Nokkur ár stundaði hann nám í Latínuskólan- um í Reykjavík, einnig var hann við nám í lýðháskóla í Danmörku, en hóf svo starfsferil sinn, fyrst við barna- kennslu, eins og áður er getið. — Efnis- vörður landssímans var Steindór 38 ár. Kona Steindórs var Guðrún Guðna- dóttir frá Keldum í Mosfellssveit. Þau giftust 1911. Börn þeirra urðu 9, af þeim eru 7 á lífi. Barnabörnin eru 24 og barnabarnabörnin 13. Steindór Björnsson. I afmælisveizlunni að Rauðalæk 8 í Reykjavík, hjá bömum sínum, tengda- börnum og öðru venzlafólki, fagnaði hinn áttræði röskleikamaður gestum sínum glaður og reifur og sýndi hvorki þreytu né ellimörk. Þar áttu gestir góða stund við alúð og mikla gestrisni. Mörg erum við, sem óskum nú Steindóri allra heilla og blessunar Guðs á fögru ævi- kvöldi. Pétur Sigurðsson. Dagar víns og rósa Langt er síðan ég hef gengið í bíó og lengra verður sennilega þar til ég fer næst. I kvikmyndum er margt óeðlilegt. Fólkið verður oft eins og tröll, og hrað- inn ei' allt of mikill. Fyrir áskorun kunningja míns fór ég að sjá myndina Dagar víns og rósa. Blöðin hafa farið um hana lofsorðum og á hún það að vissu leyti skilið. Hún er allt of löng, óþarflega löng. Sumir kafl- arnir eru of ofsalegir. Sé sanngjarnt að kasta hnútum að bindindismönnum og kalla kröfu þeirra um algert bindindi öfgar og ofstæki, þá er í þessari ný- tízkubindindisboðun ekki minna of- stæki. Samt skil ég ekki, hvers vegna unglingum innan 16 ára aldurs er bann- aður aðgangur. Myndin er mjög sterk viðvörun við áfengisneyzlu, sem er aðeins ein af skaðnautnunum, en svo hefst sýningin á mjög ginnandi og glæsilegri sígarettu- auglýsingu. Það er blátt áfram móðgun við bíógesti að ætla þeim að sitja 15-20 mínútur að horfa á auglýsingadrasl. Næst kom svo sýning á kappreiðum, sem er að hálfu leyti falleg, en annars andstyggileg, knýja skepnur áfram unz þær hníga máttvana eða dauðar. Sígarettuauglýsingin minnti enn einu sinni á, hvílíkur djöfull í mannfélagi peningavaldið er. Nú, þegar vísindamenn víðs vegar um heim, eru að reyna að sannfæra menn um, hve óhollar reyk- ingar séu og mönnum þannig voði búinn, þá kemur á loft hnefi þessa voða valds — peningsins, tóbakssölu-auðvaldið og hamast við að auglýsa sígarettur. Hér endurtekur sig sagan frá bannárunum. Þetta er orsökin til þess að allur þorri manna hefur látið hendur síga og er orðinn sinnulaus um bindindismál. Fólk- inu finnst baráttan vonlaus, það sér enga leið til sigurs. Auðvaldspúkinn fer um alla jörð óbeizlaður, ríkisstjómir liafa á honum engan hemil, þetta ættu þær að gera sér ljóst. Og þetta verðum við allir að láta okkur skiljast, hver erkióvinurinn er, og haga baráttu okk- ar á viðeigandi hátt. Pétur Sigurðsson. Fyrirlitin ]pá, h.eimsfræg nú Morgunblaðið minnist 11. apríl sl. á Gettysborgarávarp Lincolns, sem flutt var árið 1863, og birtir hinn heimsfræga kafla á frummálinu og einnig í íslenzkri þýðingu. Verður ekki annað séð en að þýðingin sé dágóð. Hins er svo vert að minnast, að þegar Lincoln flutti þetta ávarp, var þar annar maður, sem flutti tveggja stunda ræðu og hrósuðu stórblöðin henni mjög, en sögðu um leið, að aumara hefði ekki verið unnt að bjóða mönnum, en það sem forsetinn sagði. Þannig er nútíðin oft glámskyggn á það sem fram fer, og níðir oft það sem vel er gert, þótt það síðar hljóti aðdáun flestra eða allra manna.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.