Eining - 01.06.1965, Blaðsíða 14

Eining - 01.06.1965, Blaðsíða 14
14 E I N I N G Hvaii kostar áfengii) þjóðina? Fyrir skömmu upplýsti hr. dóms- og iðnaðarmálaráðherra, Jóhann Hafstein, á Alþingi, að til athugunar og undir- búnings væri nú af hálfu ráðamanna þjóðarinnar stóriðja í landinu. Gat hann þess að til greina hefði komið að alúmin- iumverksmiðja og olíuhreinsunarstöð. Þessi bæði fyrirtæki gætu veitt fjölda manna atvinnu fyrir utan spamað í gjaldeyri og öðru fleira, sem komið gæti til góða. Hann gat þess að stofnkostnað- ur væri lauslega áætlaður um 1450 millj- ónir króna, bæði fyrirtækin og taldi að lánsútvegun á erlendum vettvangi væri fyrirhuguð í þessu sambandi. Ég veit að mörgum finnst þetta há upphæð og margir spyrja hvort hægt sé að yfirstíga stofnkostnað við slíkar framkvæmdir og vissulega er mikið á sig og þjóðina leggjandi til tryggingar framtíð hennar, og eiga þeir, sem að þessum málum hafa unnið sérstakar þakkir fyrir stórhug, og væri óskandi að ekki liði á löngu þar til þessar hug- myndir yrðu að veruleika. Ég fór líka að hugsa um fjárhagshlið þessa máls. Mér varð litið í fjárlög ríkisins fyrir árið sem nú stendur yfir. Ég hef ekki lengi flett þegar ég rek augun í stóran lið, en það er sala áfengis og tóbaks- verzlunar ríkisins fyrir þetta ár. Hún er þar áætluð 626 milljónir og ef að vanda lætur, hlýtur sú áætlun að stand- ast og fyllilega það. Hugsa sér. Þessi upphæð í rúm tvö ár, aðeins rúm tvö ár, er sú sama og við þurfum til að geta stofnsett glæsilegustu iðjuver á ís- landi. Með öðrum orðum, ef allir íslend- ingar yrðu það þjóðhollir og hættu þess- um reykingar- og drykkjuskap og létu andviðrið fara til að tryggja íbúum framtíðarinnar hér á íslandi örugga framtíð. En er nokkur von til þess að slíkt geti á nokkurn hátt komið til mála. Er ekki um alltof mikla fórn að ræða ? Og svo þegar maður sér blasa við afleiðingar þær, sem af þessum 626 milljónum leiða, liggur við að spyrja liýar sú þjóð sé stödd, sem leyfir sér slíkt, en hikar svo við eðlilegar þróunar- framkvæmdir vegna fjárskorts. Er ekki eitthvað bogið við þetta allt saman. Nú er mikið rætt um hina miklu fjármála- óreiðu, sem svo víða blasir við í íslenzku þjóðlífi. Það fer að verða erfitt að trúa mönnum fyrir stórum fjárhæðum hvað þá meira. Orsaka er leitað og menn auð- vitað eins og fyrri daginn ekki á eitt sáttir. En mundi nú ekki megin orsök þess vanda liggja einmitt í því hversu áfengisnautn hefur aukizt hér í landi. Með henni finnst mér spilling í fjármál- um hafa aukizt í hlutfalli. Áfengið deyf- ir almenna dómgreind manna og í því hugarástandi sem skapast, virðast nokk- uð margir þá vera til í allt. Væri ekki rétt að þetta atriði væri athugað í leið- inni? öllum þeim mönnum, sem hugsa af raunsæi um þessa hluti hrýs nú hugur. Til allra menntamála landsins veitir Alþingi nú rúmar 400 milljónir, til allra heilbrigðismála 102 millj. En áfengi og tóbak kaupa menn fyrir 626 millj. Hugs- ið um slíka öfugþróun! Ég minntist þess að þegar bannlögin voru felld árið 1933, töldu þeir sem veittu þeim sterkustu atlöguna, að öll spilling myndi úr landinu hverfa og drykkjuskapur minnka. Sumir, jafnvel hámenntaðir menn gengu svo langt, að mér skildist þeir legðu æru sína að veði um, að þá myndi renna upp einhver sælutíð. Þeir fengu vilja sinn. Hvað segja þeir nú? Finnst þeim ástandið hafa batnað? Og nú koma fleiri raddir. Hleypa ölinu inn og selja það nógu víða, þá hætta allir að drekka sterka drykki. Og þessu á maður svo að trúa eftir allt, sem á undan er gengið. Nei, ég get sagt ykkur hiklaust, að ég er ekki hissa á þeim tímum, sem við lifum á núna. Ekkert hissa á þessu tak- markalausa misferli í fjármálum, og hinu mikla kæruleysi fyrir öllu, jafnvel vinnusvikum og öðru, sem uppi veður, þegar tónninn í þjóðlífinu er slíkur, sem á hefur verið drepið. Og ég veit það líka eins og tvisvar tveir eru fjórir, að við fáum enga lausn á þessu vandræðaástandi og hugarfari, nema við þorum að viðurkenna stað- reyndir og læra af þeim. Mun mörgum finnast kominn tími til þess. En hve- nær á að byrja? Og hver á að byrja? Eftir höfðinu dansa limirn- ir, stendur einhvers staðar. Við höfum kosið 60 manns á Alþing Islendinga til að ráða málum lands og þjóðar þannig, að við getum lifað hér hamingjusöm í landinu. Ég þekki marga þessa menn og veit að þeir vilja í’eynast starfi sínu vaxnir og flestir viðurkenna, já ég vil segja allir, að ekki sé efnilegt með fram- tíðina þegar þjóðin leyfir sér að verja hundruðum milljóna í eiturnautnir sér til skammar og skaða, á meðan brýnum verkefnum er ekki sinnt vegna fjár- skorts. Nú er spurningin: Myndu ekki allir heilbrigt hugsandi menn og konur fagna því, ef þessir 60 menn á Alþingi Islend- inga segðu þessu hugarfari stríð á hend- ur og hjálpuðu okkur, sem að menn- ingarmálum vinnum til að leiða þjóðina á braut heilla og hagsældar. Árni Helgason. Vísir, 20.2. 1964. -k -x -x * -k Útvarpserindi læknanna Tveir læknar, þeir Baldur Johnsen og’ Helgi Ingvarsson, yfirlæknir Vífilstaða- hælis, hafa nýlega flutt fróðleg og ágæt útvarpserindi um áfengisneyzlu og af- leiðingar hennar. Báðir gátu þeir þess í upphafi erinda sinna, að þeir hefðu verið beðnir að flytja þessi erindi. Um leið og blaðið flytur þeim beztu þakkir fyrir þeirra ágæta framlag í þessu máli, þykir rétt að geta þess, að beiðnin um að flytja erindin kom frá Landssam- bandinu gegn áfengisbölinu, formaður þess er nú sem stendur Björn Magnús- son, prófessor. -X -k -)< -K -K Leiðrétting í síðasta tölublaði Eining’ar var frú Anna Jónsson sögð Jónsdóttir, í fyrirsögn í greinar- korni um hana. Frúin er beðin afsökunar á þessum leiðinlega hrekk prentsmiðjupúkans, en þeir sem halda blaðinu saman, ættu að leiðrétta þetta í blaðinu. Þá er í sama blaði afleit prentvilla, sem þarfnast leiðréttingar. Hún er í greininni um rithöfundinn Folke Fridell, í fyrsta dálki, upphafi neðstu málsgreinar: „Hann neitar því að vera talinn mannhatari," á að vera véla- hatari (maskinhatare). -k -k -x -x Kennarinn var að tala um nytsemd bólu- setningar og spurði litla stúlku, hvort hún skildi þetta. Já, já, sagði sú litla, þá verður maður ómót- stæðilegur. * * * Mundu það, góði minn, sagði mamma litla drengsins, að sælla er að gefa en þiggja. — Þá vona eg, sagði snáðinn, að margir verði sælir á afmælisdaginn minn. * * * Lítill snáði kom hlaupandi grátandi inn til mömmu sinnar, leikfélagi hans hafði verið vondur við hann, en svo stóð á að mamma hans var að baka kökur. Þá sagði sá litli: Gef mér bita og þá þegi eg’.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.